Þegar völdin skipta máli og ekkert annað

Ætli flestir spyrji sig ekki þessarar spurningar á þessum degi hefur þetta fólk umboð þjóðarinnar til að fara með stjórn landsins. Margir hafa talað um að ríkisstjórnin sé leiðtogalaus og get ég tekið undir það sjónarmið. Þessar breytingar eru og munu ekki breyta neinu um stöðu ríkisstjórnarinnar í huga þjóðarinnar sem telur að hún eigi að víkja og hefði átt að gera það fyrir löngu.
Það vita það allir að þessi 3 flokka ríkisstjórn er margklofin og nær ekki saman í neinum málum.
Jóhanna nær ekki fram sínu helsta markmiði með þessari breytingu á ríkisstjórn að ná Jóni Bjarnasyni út og fær í hausinn aftur Ögmund Jónasson sem leiðir órólegu deildina í vg.

Límið sem heldur þessu blessaða vinstra fólki saman er hatrið á Sjálfstæðisflokknum - það er bara þannig -


Við skulum vona það fyrir hönd þjóðarinnar að þessi ríkisstjórn Samfylkigarinnar með hækjuflokknum fari frá völdum sem fyrst þannig að við getum farið að horfa með björtum augum til framtíðarinnar.


mbl.is Fjórir á leið úr ríkisstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigríður Jósefsdóttir

Límið sem heldur þessari ríkisstjórn saman, er ótti Steingríms J. við kosningar.  Hann veit sem víst, að atkvæðin sem hann fékk í síðustu kosningum vegna andstöðu VG við ESB, munu ekki skila sér aftur.  Þetta veit Samfylkingin, og notar sér óspart.

Sigríður Jósefsdóttir, 1.9.2010 kl. 09:17

2 Smámynd: Rúnar Þór Þórarinsson

Alger misskilningur hjá ykkur. Það eina sem heldur þessari stjórn við völdin er logandi skelfing landsmanna við að hálfvitadeild þjóðarinnar hafi stækkað nægilega mikið til að kjósa Sjálfstæðisflokkinn aftur sem stærsta flokkinn og verða þess valdandi að hann fái stjórnarmyndunarumboð. Það er ekki flóknara en það. Minnihluti þjóðarinnar réð í krafti gallaðs fulltrúalýðræðis í 18 ár, eða nógu langan tíma til að koma landinu á vonarvöl. Það er möguleiki að vitlausa deildin nái undirtökunum aftur - Það er bara þannig - og allt er betra en það.

Rúnar Þór Þórarinsson, 1.9.2010 kl. 13:05

3 Smámynd: Óðinn Þórisson

Sigríður - alveg sammála auðvitað er það hluti af skýringunni fyrir því að þessi tæra vinstri ríkisstjórn heldur saman er hræðsla vg við kosningar enda hefur flokkurinn sett hugsjónar sínar og stefnu til hliðar fyrir völd -
Rúnar - það finnast semsagt enn einhverjir sem stiðja vonlausu&verklausu vinstri stjórn Jóhönnu Siguardóttur - þú styður semsagt getuleysi og ákvarðanafælni þessar ríkisstjórnar og það miðstýrða forræðishyggjusamfélag sem þetta fólk vill koma hér á. - ef ég mætti ráðleggja þér þá myndi ég vanda það sem þú skrifar því ekki allir eru eins miklir lýðræðissinar og ég og hefðu tekið út þessa ath.semd -

Sjálfstæðisflokkurinn

stétt með stétt

Óðinn Þórisson, 1.9.2010 kl. 17:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Óðinn Þórisson

Höfundur

Óðinn Þórisson
Óðinn Þórisson

Það hefur aukist hér talsvert skoðanakúgun, hvað fólk má segja og hvað ekki. Ef fólk segir brandara fær það yfir sig holskeflu af gagnrýni frá þeim sem telja sig vera í þeirri stöðu að ákveða hvað má segja og hvað ekki. 

Skoðanakúgun hefst nákvmlega svona, fólk hættir að þora að tjá sig vegna hættu frá fólkinu sem telur sig eiga að ákveða hvað má segja og hvað ekki.

Tjáningarfrelsið skiptir okkur öllu máli , við búum enn í lýðræðisríki þar sem fólk á að hafa leyfi til að hafa sínar skoðanir án þess að vera hundelt fyrir það.

Ég vil verja tjáningarfrelsið og réttarríkið sem við búum í. 

Styð heilshugar baráttu Ísraels.

Frjálslyndur Íhaldsmaður sem telur að öflugt atvinnulíf sé forsenda öflugs velferðakerfis.
Lækka skatta og álögur á fólk sem leiðir til aukins hagvaxtar og það gengur betur hjá öllum

 

Spurt er

Eigum við að draga til baka ESB-aðildarumsóknina
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • Ísrael stend með
  • Halldór Jónsson
  • Samfylkingin 2006
  • Flagg Ukrainu
  • karen elísabet

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 2
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 866899

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband