Pólitísk aðför að heiðurskonunni Hönnu Birnu

Hanna Birna hefur ekkert að fela og mun svara þessum spurningum frá umboðsmanni alþingis.

Það mun koma fram að þessi aðför að Hönnu Birnu er orðin tóm og mun væntanlega enda með þvi að DV mun biðja heiðurskonuna Hönnu Birnu Kristjánsdóttur afsökunar á þeirra fréttaflutning.

Ég lýsi yfir 100 % stuðning við Hönnu Birnu Kristjánsdóttur.


mbl.is Hanna Birna: Beitti ekki þrýstingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Þú ert vel upplýstur Óðinn, þú veist greinilega meira en allir hinir. Ættir að skella símtali á umboðsmann og fræða hann á því sem þú veist.

Jón Ingi Cæsarsson, 30.7.2014 kl. 18:07

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Er til góð spilling Óðinn? Eru spilltir sjálfstæðismenn vel spilltir? Er frekja og yfirgangur sjálfstæðismanna (og kvenna) betri en annarra?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 30.7.2014 kl. 18:16

3 Smámynd: Birgir Örn Guðjónsson

Mér finnst best af öllu að fólk trúrir ennþá DV !

Tækifærissnepill sem hringir í fyrirtæki og segist vera meða svaka skúb, og reynir svo að selja auglýsingu í sama símtali.

Birgir Örn Guðjónsson, 30.7.2014 kl. 18:23

4 Smámynd: Óðinn Þórisson

Jón Ingi - það er ekkert sem komið hefur fram i þessu máli sem bendir til þess að hún hafi gert eitthvað rangt.
En ég skil vinstri menn að reyna að nýta sér þennan óábyrga fréttafluning DV.

Óðinn Þórisson, 30.7.2014 kl. 19:56

5 Smámynd: Óðinn Þórisson

Axel - það er engin spilling eða yfirgangur í þessu máli hjá HBK og tíminn mun leiða það sanna í ljós.
Hún mun svara þessum spurningum fyrir helgi og þá verður þessu máli lokið hvað snertir umboðsmann alþinsgis.
Vandamálið er að fréttafluningur hér á landi er oft mjög einhæfur og vinstri - sinnaður og það er svo í þessu máli.

Óðinn Þórisson, 30.7.2014 kl. 20:01

6 Smámynd: Óðinn Þórisson

Birgir Örn - vissulega er það umhugsunarefni hvað margir taka mark á DV.
Ísland yrði betra samfélag ef DV - myndi ekki koma út.

Óðinn Þórisson, 30.7.2014 kl. 20:05

7 Smámynd: Jón Sveinsson

Ég er þér sammála Óðinn ég stið Hönnu Birnu.Þegar DV,Srifar hoppa sumir af kjæti og rita tóma steipu eins og Jón og Axel.

Jón Sveinsson, 30.7.2014 kl. 21:13

8 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Það er síðan spurning í mínum huga því mikið er talað um að HB eigi að vikja hvort að saksóknari ætti ekki að vikja og Stefán að draga umsókn sína til baka. Ég er þeirrar skoðunar því ef að engin fótur er fyrir þessu þá ýta viðkomandi undir það með þögninni sé fótur fyrir þessu þá eiga þetta háttsettir embættismenn að taka í taumana svo að ég sé ekki annað en að hvorutveggja ætti að stíga til hliðar frá embættum sínum á sama hátt og farið er fram á af HB vegna málsins

Jón Aðalsteinn Jónsson, 30.7.2014 kl. 21:42

9 Smámynd: Óðinn Þórisson

Jón - þeir sem vilja nú að HBK víki eru þeir sömu og töluðu gegn því að Jóhanna, Steingrímur eða Svandís myndi axla ábyrð á sínum embættisverkum.
Það vriðist vera einhver munu ár siðferði til hægri - menn eiga að lúta.
Við skulum vona að fjölmiðlar fari að taka þetta mál af dagskrá enda margt annað sem skiptir meira máli eins og hallalaus og ábyrg fjörlag sem ríkisstjórnin stefnir að.

Óðinn Þórisson, 30.7.2014 kl. 22:16

10 Smámynd: Óðinn Þórisson

Jón Aðalsteinn - Hanna Birna ætlar að gera hreint fyrir sínum dyrum fyrir helgi þá er ekkert óeðlilegt við það að Sigríður F. og Stefán E. geri slíkt hið sama að öllu leyti.
Þetta er vindhögg hjá umboðsmanni alþingis og það eiga margir eftir að biðja HBK afsökunar á sínu framferði í þessu ljóta máli gegn henni.
Þetta mál minnir mig á eitthvað sem gerist í löndum sem við viljum ekki kenna okkur við.

Óðinn Þórisson, 30.7.2014 kl. 22:23

11 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Ég er alveg sammála þér Óðinn og vil ekki að hún víki og reikna með þegar upp er staðið að hún hafi sigur. En þessi sífeldi uppblástur er orðin athyglisverður vér venjulegir íbúar þessa lands getum eiginlega ekki annað en spurt okkur á hvers tær manneskjan eiginlega steig.

En það er ámælisvert af þeim embættismönnum sem innvinklaðir eru í málið að taka ekki af skarið og þá sérstaklega saksóknara að mínu mati. Hún er jú einuisinni réttlætisvörður ríkisins og þess vegna mætti alveg eins segja að viðkomandi embættismaður hafi málað sig út í horn að mínu mati eða DV í raun málað viðkomandi þangað .

Jón Aðalsteinn Jónsson, 30.7.2014 kl. 22:30

12 Smámynd: Óðinn Þórisson

Jón Aðasteinn - það er ekkert í dag í stöðunni sem gæti leitt til þess að HBK þurfi að segja af sér.
Hún nýtur fulls traust flokksins og engin úr hinum stjórnarflokknum hefur sagt neitt sem skilur eftir bara nokkrar vinstri - bullur og DV.
Réttætið mun sigra og hún mun koma sterkari frá þessari pólitísku aðför.
Ég geri ráð fyrir öðru en Sigríður F. upplýsi þjóðina um allt sem snýr að þessu máli.

Óðinn Þórisson, 30.7.2014 kl. 23:30

13 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Þú ert bara orðinn blaðafulltrúi Óðinn. En er ekki bara best að láta þetta allt saman koma í ljós. Við þekkjum yfirlýsingar eins og : Ég hef ekki haft kynferðislegt samband við þessa konu, miss Levinsky. Hver sagði það nú aftur? Og eitthvað var Nixon líka að blaðra eitthvað um sakleysi í Watergate málinu. Sígríður F. mun væntanlega upplýsa þjóðina um það hvort þú segir satt í þessu máli eða ekki.

Jósef Smári Ásmundsson, 31.7.2014 kl. 21:11

14 Smámynd: Óðinn Þórisson

Jósef - þetta mál snýst á engan veg um mig. HBK mun birta svar sitt núna á eftir og þá verða þau tvö að gera slíkt hið sama, ekki satt.

Óðinn Þórisson, 1.8.2014 kl. 07:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Óðinn Þórisson

Höfundur

Óðinn Þórisson
Óðinn Þórisson

Það hefur aukist hér talsvert skoðanakúgun, hvað fólk má segja og hvað ekki. Ef fólk segir brandara fær það yfir sig holskeflu af gagnrýni frá þeim sem telja sig vera í þeirri stöðu að ákveða hvað má segja og hvað ekki. 

Skoðanakúgun hefst nákvmlega svona, fólk hættir að þora að tjá sig vegna hættu frá fólkinu sem telur sig eiga að ákveða hvað má segja og hvað ekki.

Tjáningarfrelsið skiptir okkur öllu máli , við búum enn í lýðræðisríki þar sem fólk á að hafa leyfi til að hafa sínar skoðanir án þess að vera hundelt fyrir það.

Ég vil verja tjáningarfrelsið og réttarríkið sem við búum í. 

Styð heilshugar baráttu Ísraels.

Frjálslyndur Íhaldsmaður sem telur að öflugt atvinnulíf sé forsenda öflugs velferðakerfis.
Lækka skatta og álögur á fólk sem leiðir til aukins hagvaxtar og það gengur betur hjá öllum

 

Spurt er

Eigum við að draga til baka ESB-aðildarumsóknina
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Ísrael stend með
  • Halldór Jónsson
  • Samfylkingin 2006
  • Flagg Ukrainu
  • karen elísabet

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 708
  • Frá upphafi: 869698

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 485
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband