Ríkisstjórn heimilanna

Niðurstaða alþingskosninganna 27 apríl 2013 var skýr að þjóðin vildi breytingu.

Fyrrv. stjórnarflokkar guldu algert afhroð enda ekki margt sem stóð eftir þá ríkisstjórn ef eitthvað.

Ríkisstjórn Sjálfstæðiflokksins og Framsóknar tók við völdum 23.mai 2013 og við blasti gríðarlega erfitt verkefni að endureisa landið eftir rúmlega 4 ára vinstri ríkisstjórn Samfylkingar og VG.

Áherslan var lögð á ábyrð í ríkisfjármálum og svo var það stóra málið almenna skuldaleiðréttingin sem tókst frábærlega en Jóhanna Sigurðardóttir hafði sagt 2010 að ekki yrði meira gert fyrir skuldsett heimili.


mbl.is 19 milljarðar greiddir til heimila í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Kristján Þorvarðarson

Held að þú hafir gott af því að lesa greinina eftir Vilhjálm Bjarnason (Um lýðskrum og skrumskælingu) sem birtist í Mogganum í dag.

Jón Kristján Þorvarðarson, 31.7.2015 kl. 10:56

2 Smámynd: Óðinn Þórisson

Jón Kristján - góð grein hjá þingmanni Sjálfstæðisflokksins.

Óðinn Þórisson, 31.7.2015 kl. 11:43

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Talandi um lýðskrum. Ég er ennþá að bíða eftir að fá Leiðréttinguna mína.

Guðmundur Ásgeirsson, 31.7.2015 kl. 12:50

4 Smámynd: Óðinn Þórisson

Guðmundur - þetta var almenn skuldaleyðrétting, ég fékk a.m.k leiðréttingu og er sáttur.

Óðinn Þórisson, 31.7.2015 kl. 13:40

5 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Að sjálfsögðu eru ríkir sjallar sáttir við að láta hina fátæku borga skuldir sínar.

Þessu barðist skæruliðasamtök framsóknarmanna fyrir árum saman með djöfulgangi og óheyrilegu lýðskrumi og arfalygi eins og þeir eru vanir.

Kostnaðurinn sem er orðinn af þessari hörmungarstjórn forríkra og elítu er orðinn óheyrilegur.  Allt í rúst eftir framsjalla og þjóðrembinga.  

Mennta- og heilbrigðiskerfið ónýtt.  Stjórnleysi og ofurgræðgi í ferðamannabissnes ásamt ofurgræðgi sjallabjálfa. Öll viðskipti gagnvart útlöndum stórlöskuð og meira og minna ónýt eftir heimsku framsóknarmanna og sjalla sem veðjuðu á einræðis- og harðstjórnarríkið rússland Hinir verr stæðu barðir daglega um leið og seylst er í vasa þeirra og öllum fjármunum mokað undir elíturassa.

Skaðakostnaðurinn af framsjölllum telst í hundruðum milljarða ef þúsundum til lengri tíma litið.  

Svo standa þessir ræflar hlægjandi og flissandi eins og einhver óbermi.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 31.7.2015 kl. 15:44

6 Smámynd: Óðinn Þórisson

Ómar Bjarki - " Heim­ili sem fengu lækk­un höfuðstóls hús­næðislána í aðgerðum rík­is­stjórn­ar­inn­ar og greiddu auðlegðarskatt vegna árs­ins 2013 voru alls 1.250 eða um 2% þeirra sem fengu lækk­un."
Bjarni Benediktsson

"Stærst­ur hluti höfuðstóls­lækk­un­ar­inn­ar hefði farið til þeirra sem væru með meðal­tekj­ur og minni"
Þorsteinn Sæmundsson

Ríkisstjórn sem leiðréttir skuldir millitekjufólks og setur á bankaskatt verður seint sökuð um að vera ríkisstjórn sérhagsmuna og einhverrra elítu.

Við værum illa stödd í dag ef Jóhönnustjórnin hefði ekki verið stoppuð í Iceaave - málinu.

Heilbrigðiskerfið er í vanda, um það er ekki deilt en hluti af þeirri ástæðu er að vera ekki með fjölbreyttara rekstrarform.

Óðinn Þórisson, 31.7.2015 kl. 16:19

7 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Eitt fyrsta verk ykkar framsjalla var að lækka skatta á forsætisráðherra um 10 milljónir.  Það þarf ekki að segja meir um þessa hörmungarstjórn ykkar.   Segir meira en mörg orð.  Í þessu kristallast þjóðrembingsstjórn framsóknar og sjalla.  Mokað undir elíturassana, - almúginn borgar brúsann.

,,Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, borgar helmingi minna í opinber gjöld í ár heldur en í fyrra. Aðalástæðan er að auðlegðarskattur er fallinn úr gildi.

Þetta kemur fram ef álagningarskrár á Fljótsdalshéraði eru skoðaðar en Sigmundur Davíð er með lögheimili á Hrafnabjörgum í Jökulsárhlíð."

http://www.austurfrett.is/frettir/3754-forsaetisradherra-borgar-helmingi-minni-skatta-eftir-brotthvarf-audlegdarskatts

Ómar Bjarki Kristjánsson, 31.7.2015 kl. 17:13

8 Smámynd: Óðinn Þórisson

Ómar Bjarki - varðandi auðlegðaskattinn,
" Það eru hins vegar ákveðin vandamál með auðlegðarskattinn. Hann er þó tímabundinn og ég mun leggja áherslu á að endurnýja hann ekki.“
Oddný Harðardóttir þingkona Samfylkingarinnar, vorið 2012

Vegna ákvörðunar ríkisstjórnarinarinnar að fylgja stefnu fyrrv. ríkisstjórnar varðandi afnmám auðlegðaskattins þá er áætlað að ráðstöfunartekjur heimila aukist um 10.5 milljarða 2015.

Þannig að allt tal vinstri manna um að núverandi ríkisstjórn sé " Ríkissjórn ríka fólksins " stenst enga skoðun.

Það hvað SDG er að fá mikla gagnrýni frá vinstra - liðinu segir að hann er að standa sig vel.

Óðinn Þórisson, 31.7.2015 kl. 17:41

9 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Óðinn. Ég veit að þetta var svokölluð "almenn leiðrétting.

Það sem ég átti við er hinsvegar, að það er ekki enn búið að afgreiða umsókn mína um þá leiðréttingu, og ég er því enn að bíða eftir að fá leiðréttinguna.

Guðmundur Ásgeirsson, 31.7.2015 kl. 17:50

10 Smámynd: Óðinn Þórisson

Guðmundur - ég vona að þin umsókn verði afgreidd sem fyrst og farsællega.

Óðinn Þórisson, 31.7.2015 kl. 18:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Óðinn Þórisson

Höfundur

Óðinn Þórisson
Óðinn Þórisson

Það hefur aukist hér talsvert skoðanakúgun, hvað fólk má segja og hvað ekki. Ef fólk segir brandara fær það yfir sig holskeflu af gagnrýni frá þeim sem telja sig vera í þeirri stöðu að ákveða hvað má segja og hvað ekki. 

Skoðanakúgun hefst nákvmlega svona, fólk hættir að þora að tjá sig vegna hættu frá fólkinu sem telur sig eiga að ákveða hvað má segja og hvað ekki.

Tjáningarfrelsið skiptir okkur öllu máli , við búum enn í lýðræðisríki þar sem fólk á að hafa leyfi til að hafa sínar skoðanir án þess að vera hundelt fyrir það.

Ég vil verja tjáningarfrelsið og réttarríkið sem við búum í. 

Styð heilshugar baráttu Ísraels.

Frjálslyndur Íhaldsmaður sem telur að öflugt atvinnulíf sé forsenda öflugs velferðakerfis.
Lækka skatta og álögur á fólk sem leiðir til aukins hagvaxtar og það gengur betur hjá öllum

 

Spurt er

Eigum við að draga til baka ESB-aðildarumsóknina
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Ísrael stend með
  • Halldór Jónsson
  • Samfylkingin 2006
  • Flagg Ukrainu
  • karen elísabet

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 712
  • Frá upphafi: 869702

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 489
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband