Hvar er skjaldborgin um heimilin ?

Það er sérstakt hugarefni vinstri flokka að hækka skatta - hærri skattar en gert var ráð fyrir í stöðugleikasáttmálanum og AGS gerði ráð fyrir - vinstriflokkarnar hafa mikinn áhuga að auka álögur á almenning - ráðstöðfunartekjur almennings munu minnka til muna á þessu ári - skjaldborgin um heimilin er hvergi að finna - ríkisstjórnin hefur brugðist almenningi og fyrirtækjum algjörlega - nýlega fór fyrirtækið Kraftvélar á hausinn en það fyrirtæki leigði út atvinnutæki til verktaka en þar er ekkert að gerast - enginn hvati er til fyrir fyrirtæki að ráða fólk - en Steingrímur hefur lofað frekari skattahækkunum " you aint seen nothing yet " - það er vilji hjá ríkisstjórninni en EKKERT um ákvarðanir eða efndir - heimilin&fyrirtækin virðast ekki vera neitt sérstaklega hátt á dagskrá hjá vinstri stjórninni - en hún er upptekin af því að láta almenning borga skuldir fjárglæframanna -
mbl.is 200-300 á útifundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: The Critic

Það þurfti engan sérfræðing til að sjá að ef vinstri stjórn kæmist á þá myndu skattar hækka og ekkert annað gerast. En gleymum því ekki að það var það sem fólið í landinu vildi, meirihlutin kaus þessa flokka til að refsa sjálfum sér.

The Critic, 23.1.2010 kl. 16:31

2 Smámynd: Steinar Immanúel Sörensson

Ég hef alla tíð verið frekar hlynntur vinstri vængnum, en það illu aðgerðir sem núverandi ríkisstjórn hefur sett á fót og þær aðgerðir sem hún hefur ekki sett á fót til hjálpar heimilunum í landinu - hafa gert mig fráhverfan þessum núverandi vinstriflokkum með öllu - þvílíkir ræflaskítar. - þvi miður hef ég ekki meiri trú á Sjáfstæðismönnum þvi þeir hafa ekki sýnt að þeim sé raunverulega treystandi

Steinar Immanúel Sörensson, 23.1.2010 kl. 17:33

3 Smámynd: Jón Óskarsson

70,57% hækkun staðgreiðslu skatta á fólk á atvinnuleysisbótum er það sem velferðarstjórninni hefur tekist að koma á um leið og hún gjöreyðulagði staðgreiðslukerfið

Skjaldborgina er hvergi að finna og það er markvisst verið að reyna að drepa alla atvinnustarfsemi.

Sjálfstætt starfandi einstaklingum er gert nær ókleift að starfa og þeir sviptir rétti til atvinnuleysisbóta þó svo á þá sé lögð yfir 61% hækkun tryggingargjalds.   Vegið er að öllum almennum atvinnurekstri með breytingum á tekjuskattslögum sem virðast stjórnast meira af "hugmyndafræðilegum sigrum" en praktískum lausnum.  Stefna stjórnarflokkana í sjávarútvegsmálum mun ef hún gengur eftir gera fjölmörg fyrirtæki í þeirri grein gjaldþrota og aðgerðarleysið í málefnum heimilanna mun valda fjöldagjaldþroti ef ekkert verður að gert.

Jón Óskarsson, 23.1.2010 kl. 18:53

4 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Guð hjálpar þeim sem hjálpa sér sjálfir með vitinu og velviljanum sem þarf til að bjarga einhverju í svo gjörspilltu stjórnkerfi sem er á Íslandi. Ef það dugar ekki dugar ekkert. Stíð og ófriður leiðir einungis af sér meira illt. Var það ekki til þess sem okkur var gefið vit til að gera betur en villidýrin í skóginum? M.kv. Anna

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 23.1.2010 kl. 23:18

5 Smámynd: Óðinn Þórisson

Takk fyrir commentin
Auðvitað vissu allir og þeir sem kusu þessa flokka vissu það þegar þeir merktu x- við vinstri flokkana í  síðustu kosningum að þeir voru að óska eftir hærri sköttum og auknum álögum á almenning - vinstri menn hafa aldrei haft neitt annað fram að færa - það vakti athygli mína auglýsing í Fréttablaðinu frá Öryrkjabandalaginu - " NIÐURBROT VELFERÐAKERFISINS ER HAFIÐ " " ÞÍN MINNING LIFIR " - OG jú niðurstaðan er sú að velferðastjórnin er brandari sem hefur það eitt að markmiði að slá skjaldborg um völdin - Steingrímur sagði að EKKERT skipti meira máli en þessi tæra vinstri stjórn - hann og hans flokkur hefur sett stefnu flokksins og hugsjónir til hliðar fyrir völd - SKJALDBORGIN ER EKKI TIL -

Óðinn Þórisson, 24.1.2010 kl. 10:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Óðinn Þórisson

Höfundur

Óðinn Þórisson
Óðinn Þórisson

Það hefur aukist hér talsvert skoðanakúgun, hvað fólk má segja og hvað ekki. Ef fólk segir brandara fær það yfir sig holskeflu af gagnrýni frá þeim sem telja sig vera í þeirri stöðu að ákveða hvað má segja og hvað ekki. 

Skoðanakúgun hefst nákvmlega svona, fólk hættir að þora að tjá sig vegna hættu frá fólkinu sem telur sig eiga að ákveða hvað má segja og hvað ekki.

Tjáningarfrelsið skiptir okkur öllu máli , við búum enn í lýðræðisríki þar sem fólk á að hafa leyfi til að hafa sínar skoðanir án þess að vera hundelt fyrir það.

Ég vil verja tjáningarfrelsið og réttarríkið sem við búum í. 

Styð heilshugar baráttu Ísraels.

Frjálslyndur Íhaldsmaður sem telur að öflugt atvinnulíf sé forsenda öflugs velferðakerfis.
Lækka skatta og álögur á fólk sem leiðir til aukins hagvaxtar og það gengur betur hjá öllum

 

Spurt er

Eigum við að draga til baka ESB-aðildarumsóknina
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Ísrael stend með
  • Halldór Jónsson
  • Samfylkingin 2006
  • Flagg Ukrainu
  • karen elísabet

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 23
  • Sl. viku: 777
  • Frá upphafi: 869681

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 542
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband