Oddvitar stjórnarflokkna bera alla ábyrgð

Það er svo sem ekki stórfrétt að ekki sé hægt að treysta oddvitum stjórnarflokkana eins og Sigmundur Davíð sagði í gær og ekki komi til greyna að semja við þá öðru vísi en það sé skriflegt.

Auðvitað er ábyrgðin á þessu upplausnarásandi sem er á alþingi stjórnarflokknum að kenna, það er á þeirra ábyrð að koma með mál inn í þingið vel undirbúin og að góður tími sé til að ræða málin.

Líklega munu 9 menningar stíga fram og hamla frekari umærðu um veiðigjaldið - ef það gerist er ekkert annað í stöðunni en að þingmenn Framsóknarflokkins og Sjálfstæðisflokksins gangi úr sal og með þvi geri þingið óstafhæft og þá kemur í ljós hvort foseti noti þingrofsréttinn.


mbl.is Enn ekkert samkomulag á þingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Óðinn. Það er mér hulin ráðgáta, hvers vegna alþingismenn eru ekki allir búnir að segja af sér. Þetta stöðnunarástand er farið að stofna heilsu og lífi fólks í hættu, sem búa í samfélaginu á Íslandi. Þetta svokallaða alþingi minnir meir á eineltis-þrælabúðir heldur en alþingi.

Foringjar ALLRA flokka bera ábyrgð, á meðan þeir samþykkja svona vinnubrögð, með því að koma ekki með vantrauststillögu og ganga út í eitt skipti fyrir öll. Eða vilja þeir láta börnin sín lifa og hrærast í eineltis-umhverfi eftir fyrirmynd frá alþingi?

Svona þjóðarskömm og einelti í beinni útsendingu frá alþingi getur ekki kennt börnum þessa lands annað en það, að gróft einelti sé löglegt og leyfilegt. Jafnvel látið líta út sem það sé töff og virðingarvert.

Það ættu allir sem vinna innan veggja alþigishússisns að líta í eigin barm, og spyrja sig hvort þetta sé starf við hæfi. Í það minnsta ætti forseti þingsins að hafa siðferðis-þroska og vit til að loka á helberan óhróður, lygi og einelti í beinni útsendingu, á jafn grófan og niðurlægjandi hátt, eins og raun ber vitni.

Það á ekki að borga stjórnendum þessa lands fyrir grófar eineltisárásir og hreinar lygar, sama hver á í hlut. Ég hef algjöran viðbjóð á hegðun sumra sem opna munninn á alþingi. Vita þeir ekki að börnin þeirra og annarra sjá kannski hvernig þeir haga sér og tala þarna? Svo fara börnin í skóla/leikskóla/unglingavinnu og koma skilaboðunum áfram með hörmulegum afleiðingum. 

Nú er nóg komið!

M.b.kv. 

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 16.6.2012 kl. 18:29

2 Smámynd: Óðinn Þórisson

Anna Sigríður - eftir Icesave - útreiðina hefði ríkisstjórnin átt að segja af sér og það hefði verið réttast að boða þá starx til alþingskosninga.
Ábygðin er mikil hjá oddvitum stjórnarflokka á hverjum tíma og vinnubrögð þeirra á þessu kjörtímabili hafa verið slík að ekki hefur verið hægt að ná neinni sátt.

En vissulega hefur þetta áhrif á umræðuna í samfélginu og þá líka hjá börnum stjórnmálamanna sem eru koma villandi skilaboðum á framfæri við félaga sína.

Óðinn Þórisson, 17.6.2012 kl. 12:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Óðinn Þórisson

Höfundur

Óðinn Þórisson
Óðinn Þórisson

Það hefur aukist hér talsvert skoðanakúgun, hvað fólk má segja og hvað ekki. Ef fólk segir brandara fær það yfir sig holskeflu af gagnrýni frá þeim sem telja sig vera í þeirri stöðu að ákveða hvað má segja og hvað ekki. 

Skoðanakúgun hefst nákvmlega svona, fólk hættir að þora að tjá sig vegna hættu frá fólkinu sem telur sig eiga að ákveða hvað má segja og hvað ekki.

Tjáningarfrelsið skiptir okkur öllu máli , við búum enn í lýðræðisríki þar sem fólk á að hafa leyfi til að hafa sínar skoðanir án þess að vera hundelt fyrir það.

Ég vil verja tjáningarfrelsið og réttarríkið sem við búum í. 

Styð heilshugar baráttu Ísraels.

Frjálslyndur Íhaldsmaður sem telur að öflugt atvinnulíf sé forsenda öflugs velferðakerfis.
Lækka skatta og álögur á fólk sem leiðir til aukins hagvaxtar og það gengur betur hjá öllum

 

Spurt er

Eigum við að draga til baka ESB-aðildarumsóknina
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Ísrael stend með
  • Halldór Jónsson
  • Samfylkingin 2006
  • Flagg Ukrainu
  • karen elísabet

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 333
  • Frá upphafi: 870013

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 236
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband