Ráðgefandi þjóðaratkvæðagreisla bindur ekki þingmenn.

"ég haf alltaf sagt að ráðgjafandi þjóðaratkvæðagreiðslur bindi ekki hendur þingmanna
- það er meðvirkni ... "
Vigdís Hauksdóttir þinkona Framsóknarflokksins


Þetta er alveg í samræmi við það sem þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa bent á að þingmenn séu aðeins bundnir af sannfæringu sinni enda var þetta bara ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla og ber að hafa í huga að 50 % mættu ekki og 34 % sögðu NEI.

Vil bara minna hér að Icesave þjóðaratkvæðagreisluna um Svavarsamginn þar sem Jóhanna Sigurðardóttir hvatti fólk til að mæta ekki á kjörstað sem er óþekkt í lýðræðisríki.

NEI fólkið á vissulega fulltrúa á alþingi.
mbl.is Alþingi virði niðurstöðuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Hrellir

Þegar Norðmenn gengu til RÁÐGEFANDI þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarsamning við ESB var meirihluti fylgjandi því í Stjórþinginu að samþykkja aðild. Norskir þingmenn létu niðurstöðu ráðgefandi atkvæðagreiðslu að sjálfsögðu ráða, enda kjörnir sem fulltrúar almennings, líkt og á Íslandi.

Sigurður Hrellir, 24.10.2012 kl. 07:36

2 Smámynd: Þórir Kjartansson

Mikið skelfing er það aulalegt hjá ykkur sumum bloggurum hér að geta ekki viðurkennt að  mikill meirihluti þjóðarinnar er á annarri skoðun en þið í þessu máli. Reynið bara að taka ósigri ykkar eins og menn og hættið þessu nöldri.

Þórir Kjartansson, 24.10.2012 kl. 08:16

3 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Fyrsta hugsun Sjálfstæðismanna er að gera ekkert með niðurstöður þjóðaratkvæðis.... Það er sannarlega gott fyrir kjósendur að vita fyrirfram hvað Sjálfstæðisflokkurinn ætlar ekki að gera eftir kosningar.

Lýðræðisást þessa flokks nær ekki lengra en hagsmunagæsla hans leyfir.

Jón Ingi Cæsarsson, 24.10.2012 kl. 09:39

4 Smámynd: Eggert Sigurbergsson

Að bera sama RÁÐGEFANDI þjóðaratkvæðagreiðslu Norðmanna um ESB við nýja stjórnarskrá er einfaldlega fáránlegt enda hafa Norðmenn strangar reglur um breyting á sinni Stjórnarskrá og þar gildir ekki skoðanakönnun eins og Samfylkingin viðhefur hér. Skoðanakönnun Samfylkingarinnar stenst ekki einu sinni lágmarkskröfur sem Danir gera til breytinga á sinni stjórnarskrá enda gera þeir þá kröfu að stjórnarskrá verði ekki breytt nema 40% kosningabærra manna samþykki enda líða þeir ekki yfirgang háværs minnihluta eins og reynt er hér.

Holt að hafa í huga orð formanns Samfylkingarinnar:

Eins og staðan er núna þarf tvö þing með kosningum á milli til að breyta stjórnarskrá. 80 daga stjórnin ætlar hins vegar að breyta því svo að hægt verði að breyta stjórnarskrá með þjóðaratkvæðagreiðslu. Og það þarf stjórnarskrárbreytingu til að ganga í ESB. Það þýðir að ef næsta ríkisstjórn hefur hug á að fara í aðildarviðræður, þá þarf hún ekki að senda sjálfa sig heim og boða til kosninga, heldur getur einfaldlega lagt aðild að Evrópusambandinu í þjóðaratkvæði.

Ingibjörg telur mikilvægt að sett verði ákvæði í stjórnarskránna fyrir komandi þingkosningar svo þjoðin geti hvenær sem er gert breytingar á stjórnarskránni með þjóðaratkvæðagreiðslu. „Það þýðir að þjóðin getur ákveðið að deila fullveldi sínu með öðrum þjóðum á næsta kjörtímabili ef hún svo kýs án þess að boðað sé til kosninga í millitíðinni."

Eggert Sigurbergsson, 24.10.2012 kl. 10:09

5 Smámynd: Óðinn Þórisson

Sigurður - alþingsmenn eru fyrst og fremst bundnir af sannfæringu sinni og því óeðlilegt ef þeir myndu láta þetta hafa áhrif á sína skoðun.

Óðinn Þórisson, 24.10.2012 kl. 17:14

6 Smámynd: Óðinn Þórisson

Þórir - ef það er svo að koma fram með staðreyndir um mál nú þá væri hægt að saka mig um nöldurari en svo er ekki.

Óðinn Þórisson, 24.10.2012 kl. 17:17

7 Smámynd: Óðinn Þórisson

Jón Ingi - enn hefur ekki farið fram efnisleg umræða um tillögur stjórnlagaráðs á alþngi - það er spuring hvar þetta mál væri í dag ef menn hefur einhent sér í þetta mál fyrir ári.

Ég tek hér skýrt dæmi um " lýðræðisást " formanns þíns flokks - ætla ekki að minnast á það hér að sf hefur tvísar hafnað því að þjóðin komi að esb - málinu.

Lýðræðið er ekki þannig að ríkisstjórnin geti notað einhverja henntistefnu um það.

Óðinn Þórisson, 24.10.2012 kl. 17:22

8 Smámynd: Óðinn Þórisson

Eggert -  "Skoðanakönnun Samfylkingarinnar stenst ekki einu sinni lágmarkskröfur sem Danir gera til breytinga á sinni stjórnarskrá "

Sammála

Það á ekki að vinna breytingar á stjórnarskránni í þeirri ósátt sem ríkisstjórin  hefur gert.

Óðinn Þórisson, 24.10.2012 kl. 17:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Óðinn Þórisson

Höfundur

Óðinn Þórisson
Óðinn Þórisson

Það hefur aukist hér talsvert skoðanakúgun, hvað fólk má segja og hvað ekki. Ef fólk segir brandara fær það yfir sig holskeflu af gagnrýni frá þeim sem telja sig vera í þeirri stöðu að ákveða hvað má segja og hvað ekki. 

Skoðanakúgun hefst nákvmlega svona, fólk hættir að þora að tjá sig vegna hættu frá fólkinu sem telur sig eiga að ákveða hvað má segja og hvað ekki.

Tjáningarfrelsið skiptir okkur öllu máli , við búum enn í lýðræðisríki þar sem fólk á að hafa leyfi til að hafa sínar skoðanir án þess að vera hundelt fyrir það.

Ég vil verja tjáningarfrelsið og réttarríkið sem við búum í. 

Styð heilshugar baráttu Ísraels.

Frjálslyndur Íhaldsmaður sem telur að öflugt atvinnulíf sé forsenda öflugs velferðakerfis.
Lækka skatta og álögur á fólk sem leiðir til aukins hagvaxtar og það gengur betur hjá öllum

 

Spurt er

Eigum við að draga til baka ESB-aðildarumsóknina
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Ísrael stend með
  • Halldór Jónsson
  • Samfylkingin 2006
  • Flagg Ukrainu
  • karen elísabet

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 709
  • Frá upphafi: 869699

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 486
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband