Þjóðin LOKSINS laus við Jóhönnu

Þjóðin er nú LOKSINS að losna við átakastjórnmálmanninn Jóhönnu Sigurðardóttur sem hefur verið fyrir þjóðinni síðan 1978.
Hún fékk einstakt tækifæri 1.feb 2009 EN stað þess að leiða þjóðina til sátta þá bauð hún alltaf upp á ósatt og ófrið ef tækifæri gafst.
Sagan á EKKI eftir að verða henni JÁKVÆÐ - hún fór EKKERT dult með haftur sitt og heift í garð Sjálfstæðisflokksins sem forstætisráherra.

Hennar verður EKKI saknað úr stjórnmálum - það er nokkuð ljóst.
mbl.is Jóhanna kvödd með rósum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilhjálmur Stefánsson

Vonandi eiga Landsmenn aldrei eftir að Sjá hana eða heira meir,fari hún til hehev.

Vilhjálmur Stefánsson, 26.4.2013 kl. 17:12

2 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Þjóðin mun muna eftir henni sem svikara...

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 26.4.2013 kl. 17:16

3 Smámynd: Óðinn Þórisson

Vilhjálmur - hver ætti svo að hafa áhuga að tala við hana - ENGINN.

Óðinn Þórisson, 26.4.2013 kl. 17:21

4 Smámynd: Óðinn Þórisson

Ingibjörg Guðrún - hún sló skjaldborg um sjálfa sig ( sín völd ) allt annað virðist vera fullkomið aukaatriði EN skjaldborgin um heimilin hún kom aldrei

Óðinn Þórisson, 26.4.2013 kl. 17:23

5 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Bara að benda ykkur spekingunum hér að ofan á orð af facebook síðu þessara sem fyrir þessari athöfn stóðu

Við hvetjum vinkonuhópa, samstarfsfélaga, fjölskyldur, félagasamtök og fleiri til að mæta með okkur með eina rauða rós eða fleiri við stjórnarráðið 26. apríl kl. 16:00 til að kveðja Jóhönnu Sigurðardóttur.

Við vinkonurnar sátum saman í vikunni og ræddum m.a. um pólítík. Við erum ekki alveg sammála í pólitík en allar erum við sammála um að okkur langar til að kveðja Jóhönnu Sigurðardóttur, fráfarandi forsætisráðherra með táknrænum hætti nú þegar hún hættir í
stjórnmálum.

Jóhanna Sigurðardóttir tók við stjórn landsins á mjög erfiðum tímum, fólk hefur ólíkar skoðanir á því hvernig til hefur tekist en við teljum að bæði þeir sem eru sammála henni og ósammála í pólitík geti vottað henni virðingu sína og þakkað henni fyrir að hafa tekið að sér stjórn landsins undir þeim kringumstæðum sem ríktu hér fyrir fjórum
árum.

Held að þið séuð einmitt gott dæmi um það sem þessi hópur var að tala um.  Hvað ands... vitleysa er þetta með skjaldborg um völd? Hvað á spekingurinn við þessu? Hvað er skjaldborg um völd? Hvað sveik hún?  Minni ykkur á að Jóhanna var ekki einræðisherra. Heldur voru það um 62 aðrir sem voru kosnir á Alþingi og síðoustu 2 ár hafa um 30 til 32 barist hart gegn því að Samfylking og Vg gætu uppfyllt kosnignarloforð sín.  En þið ættuð að skoða hvernig þið talið um fólk og sér í lagi manneskju sem verður minnst fyrir að hafa tekið við Íslandi gjaldþrota og kom því í gegnum versta skafflinn án þess að spár um 20% atvinnuleysi, að helmingur þjóðarinnar yrði gjaldþrota og mundi missa heimili sín og helmingur þjóðarinnar myndi flytja til útlanda. Ekkert af þessu rættist. Vona að þið talið ekki svona um fólk í ykkar nærumhverfi. 

Magnús Helgi Björgvinsson, 26.4.2013 kl. 17:42

6 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Jóhanna er búinn að vera sveitt í skítaþrifunum eftir þær brunarústir sem ríksstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks skildi eftir sig. Með því tókst henni með samvinnu við þingmenn og ráðherra stjórnarflokkana að koma í veg fyrir að það skipbrot yrði okkur eins dýrkeypt og leit út fyrir að verða. Hér leit út fyrir 20% atvinnuleysi eða meira þegar þessi ríksstjórn tók við og mikil hætta á þjóðargjaldþroti. Þessu tókst að afstýra með mikilli atorku og skynsamri efnahagsstjórnn í samvinnu við AGS. Án þeirrar vinnu hefði kreppan orðið mun dýpri en hún varð og lífskjör því mun verri en þau eru í dag þökk sé Jóhönnu og Steiongrími.

Jónanna hefur því gert mikið fyir þessa þjóð og á þakkir skildar en ekki skítkast og vanþakklæti eins og allt of oft kemur í hennar garð. Áróðursherferðin gegn henni virðist hafa heppnast en það er á tæru að þegar rykið sest þá mun dómur sögunnar verða allt annar um hennar verk. Það fólk sem þarna mætti með rósir handa Jóhönnu á heiður skilið fyrir að sýna Jóhönnu þá virðingu sem hún á skilið.

Sigurður M Grétarsson, 26.4.2013 kl. 17:55

7 Smámynd: Halldór Björgvin Jóhannsson

Sigurður, það eina sem kom í veg fyrir að hér er ekki 20% atvinnuleysi var brottflutningur einstaklinga sem fengu nóg af þessari vinstri óstjórn.

Jóhanna er búin að vera sveitt í frekju og yfirgangi og engu öðru, þetta klúður sem er búið að vera seinustu 4 ár skrifast bara á núverandi ríkisstjórn, þessi árátta að kenna öðrum um er bara vondur brandari!!

Halldór Björgvin Jóhannsson, 26.4.2013 kl. 18:02

8 Smámynd: Óðinn Þórisson

Magnús Helgi - ólíkt þér þá útiloka ég ekki þá sem ég tel fara yfir strikið - hér bera menn sjálfir ábyrð á þvi sem þeir segja í ath.semdum og verða dæmdr samkv. því - nóg um það.
Ef þú skoðar framoboð eins og hagsmunasamtök heimilanna og dögun þá eru þau beinlíns stofnuð vegna skjalborgarinnar um heimlin sem vinstri " velfðarstjórin "  stóð ekki við og lýðræðisvaktin vegna svika ríkisstjórnarinnar í að klára stjórnarskrámálið.
Í fjölskyldu"fjöri " Jóhónunnstórnarinnar hafa 3 fjölskyldur verið bornar út daglega síðustu 4 ár.
Eitt stikki grafarvogur er fluttur úr landi.
Skattastefna ríkisstórnarinnar hefur aukið fátæktina hér í landinu.
" þegar við komum að borðinu " ER eitt af þessum gullsetningum sf.

Óðinn Þórisson, 26.4.2013 kl. 18:14

9 Smámynd: Óðinn Þórisson

Sigurður - magnað það virðist vera sem Jóhanna hafi ekkert gert síðan 1978 á alþingi sen stofna í átaka og sundurlyndis - það eru merkileg erftirmæli.
Það er reyndar magnað afrek hjá Jóhönnustjórninni að fá bæði ASÍ og SA á móti sér.
Hvað með að gera upp á mliii húsvíkinga og reyknesingian í skattaívilnunum - að mismuna fólki - það blasir við.
Jóahnna braut Jafnréttislög og hefði þá átt að segja af sér.
Ég gæti svosem tínt ARFA fyrir hana og afhent henni 

Óðinn Þórisson, 26.4.2013 kl. 18:19

10 Smámynd: Óðinn Þórisson

Halldór - sjálfsköpuð kreppa í boði Jóhönnustjórnarinnar.

Jóhanna hefur farið mikinn síðustu 4 ár í ræðum gegn Sjálfstæðisflookknum - minnist 11 sinnum á Sjálfstæðisflokkinn í ræðunn á landsfundii þegar hún skilað af sér flokknum í tætlum.

Jóhanna verður að eiga það við sjálfa sig hvernig hún hefur stundað sína póliík

Óðinn Þórisson, 26.4.2013 kl. 18:24

11 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Halldór. Það er rangt að atvinnuleysi hafi bara minnað vegna borttflutnings fólks. Það hefur ekki fækkað fólki á vinnualdri hér þrátt fyrir þann borttflutning þar sem náttúruleg fjölgun hefur komið á móti. Það er fjölgun á vinnumaldri vegna þeirra sem fara af barnsaldri upp á vinnualdur umfram þá sem fara af vinnualdir yfir á eftirlaunaaldur. Störfum hér hefur fjölgað um 10.000.

Við skjaldborgina um heimilin var staðið. Sá mikli skellur í tekjum ríkissjóðs sem hrunið sem við fengum yfir okkur í boði Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks gerði það að verkum að hjá miklum skattahækknunum og niðurskurði var ekki komist. Stjórnvöld hlífðu þeim lakast settu við þeim aðgerðum eins og kostur var. Stjórnvöld fóru líka í margháttaðar aðgerðir til að koma til móts við skulgug heimili sem björguðu þúsundum ef ekki tugþúsundim þeirra frá alvarlegum vanda og í sumum tilfellum frá því að missa heimili sín. Þeir sem hafa haldið að hér hafi verið hægt að halda sköttum í óbreyttu hrofi eða lækka þá og bæta í velferðakerfið eru ekki í jarðsambandi.

Sigurður M Grétarsson, 26.4.2013 kl. 23:01

12 Smámynd: Hörður Einarsson

Illa farið með falleg blóm.

Hörður Einarsson, 26.4.2013 kl. 23:45

13 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Það er náttúrulega með ólíkindum að menn séu að vísa hér til fyrri ríkisstjórna Sjálfstæðisflokksins og láta eins og þar sé eitthvað sem við verðum að svara fyrir.“

Svanur Gísli Þorkelsson, 27.4.2013 kl. 09:02

14 Smámynd: Óðinn Þórisson

Hörður - nákvæmlega

Óðinn Þórisson, 27.4.2013 kl. 12:13

15 Smámynd: Óðinn Þórisson

Svanur - sf þarf að svara fyrir sín 6 ár og vg sín 4.ár - það skiptir máli að ríkisstjórin skítfalli í kvöld

Óðinn Þórisson, 27.4.2013 kl. 12:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Óðinn Þórisson

Höfundur

Óðinn Þórisson
Óðinn Þórisson

Það hefur aukist hér talsvert skoðanakúgun, hvað fólk má segja og hvað ekki. Ef fólk segir brandara fær það yfir sig holskeflu af gagnrýni frá þeim sem telja sig vera í þeirri stöðu að ákveða hvað má segja og hvað ekki. 

Skoðanakúgun hefst nákvmlega svona, fólk hættir að þora að tjá sig vegna hættu frá fólkinu sem telur sig eiga að ákveða hvað má segja og hvað ekki.

Tjáningarfrelsið skiptir okkur öllu máli , við búum enn í lýðræðisríki þar sem fólk á að hafa leyfi til að hafa sínar skoðanir án þess að vera hundelt fyrir það.

Ég vil verja tjáningarfrelsið og réttarríkið sem við búum í. 

Styð heilshugar baráttu Ísraels.

Frjálslyndur Íhaldsmaður sem telur að öflugt atvinnulíf sé forsenda öflugs velferðakerfis.
Lækka skatta og álögur á fólk sem leiðir til aukins hagvaxtar og það gengur betur hjá öllum

 

Spurt er

Eigum við að draga til baka ESB-aðildarumsóknina
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Ísrael stend með
  • Halldór Jónsson
  • Samfylkingin 2006
  • Flagg Ukrainu
  • karen elísabet

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 16
  • Sl. viku: 351
  • Frá upphafi: 870008

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 251
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband