Erfið staða fyrir Ríkisstjórnina

Það er ekki annað hægt að segja en verkefnið sé gríðarlega stórt, verkefnið er að endurreisa ísland eftir rúmlega 4 ára vinstri - stjórn.

Bæði forsætisráðherra og fjármálafráðherra segja stöðuna í ríkisfjármálum erfiðari en fyrrv. ríkistjórn hafði sagt þanni að verkefnið er þeim mun erfiðara.

Það vita það allir að þessi ríkistjórn mun gera allt sem í sínu valdi stendur til að endurreisa heilbrigðiskerfið eftir niðurskurð síðustu ára og þjóðin veit að staða ríkisstjórnarinnar er erfið en hún faldi þessum flokkum þetta erfiða verkefni.


mbl.is Rætt um 3 milljarða til spítalans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar

Þú ert nú alveg kostulegur á köflum. "verkefnið er að endurreisa ísland eftir rúmlega 4 ára vinstri - stjórn."

Bíddu við, hverju tók vinstri stjórnin við?  Hvar eigum við að byrja?  Hér hafði orðið eitt mesta efnahagshrun sem vestrænt ríki hefur orðið fyrir.  Hér blasti við 200 milljarða halli á ríkissjóði.  Hér var atvinnuleysi í methæðum.  Lífskjör þjóðarinnar hrundu.  Hver er staðan í dag?  Svo góð að Bjarni Ben sagði nýlega að það þyrfti að kæla hagkerfið!!

Ríkisstjornin hefur fornað tugum milljarða af auðsóttum tekjum, veiðileyfagjaldinu, auðleggðarskattinum og gistináttarvaskinum af aðilum sem svo sannarlega máttu alveg við því að borga meira í samneysluna.  En nei, það þurfti frekar að svelta spitalann, aldraða og öryrkja!  Þannig starfa hægri stjórnir og hafa alltaf gert.

Óskar, 9.10.2013 kl. 18:02

2 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Vinstri stjónrin tók við slæmu búi og gerði illt verra

Sleggjan og Hvellurinn, 9.10.2013 kl. 20:17

3 Smámynd: Óskar

Sleggja komdu með rök fyrir þessu- hér eru staðreyndar fyrir þig:

Vinstri stjórnin tók við fjárlagahalla uppá 200 milljarða - skilaði af sér halla uppá um 30 milljarða max

Vinstri stjórnin tók við verðbólgu uppá 18% - skilaði af sér verðbólgu uppá um 4%

Vinstri stjórnin tók við atvinnuleysi uppá 10% - skilaði af sér atvinnuleysi uppá 4%

Þegar vinstri stjórnin tók við logaði landið í óeyrðum og enginn í stjórninni gat leyft sér frídag í marga mánuði.  Stjórnin sem nú tók við var í fríi í allt sumar að skottast um heiminn í einkaerindum, engar óeyrðir og allir kátir!

Hvernig getur nokkur maður haldið því fram í alvöru að stjórnin  hafi skilað af sér verra búi?

Óskar, 9.10.2013 kl. 20:39

4 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Ísland komst útur ógöngunum þratt fyrir vinstri stjórnina.... ekki vegna hennar

Sleggjan og Hvellurinn, 9.10.2013 kl. 21:12

5 Smámynd: Sindri Karl Sigurðsson

Það má nú margt segja um fortíðina en nútíðin segir að atvinnuleysi sé á bilinu 10 - 12% en ekki 4%. Það sem stendur upp úr flumbrugangi síðustu ára er gjöf ríkisstjórnarinnar á kröfum föllnu bankanna og sú staðreynd að fyrri ríkisstjórn atti saman fólkinu í landinu, sér til handargagns og hagsbóta.

Allt annað sem hún gerði hefði hver sem er getað leikið eftir.

Sindri Karl Sigurðsson, 9.10.2013 kl. 21:16

6 Smámynd: Óðinn Þórisson

Óskar - það þurfti að breyta veiðigjaldinu, var gert til 1.árs þannig að það væri hægt að innheimta það.
Vinstri - stjórnin sem elskaði meira en allt að finna nýja skattstofna og hækka sktatt gerði þessa hækkun þegar ferðamannafyrirtæki voru búin að gefa út gjaldskrár fyrir næsta ár - hrós til Bjartrar Framtíðar sem sagði NEI - það má svo deila um hvort hann eigi að vera 7 % eða 14 %.

Ein mestu mistökin sem gerð voru þegar SF fór á taugum og sleit stjórnarsamstarfinu við x-d og það gerðist sem við höfum verið vöruð við - pólítísk óvissa - sem í raun var svo allt kjörtímabilið þar sem vinstri - stjórnin réð ekki við að endurreisa ísland eftir alþjóðlega fjármálahrunið skall á íslandi.

Óðinn Þórisson, 9.10.2013 kl. 21:32

7 Smámynd: Óðinn Þórisson

Sleggan & Hvellurinn - að mörgu leiti var það mikilvægt þó líftími hennar hafi verið of langur að þjóðin fengi að kynnast hreinni vinstri - stjórn - þjóðin gerir þau mistök ekki aftur.

Óðinn Þórisson, 9.10.2013 kl. 21:35

8 Smámynd: Óðinn Þórisson

Sindri Karl - vinstri - stjórnin sló skjaldborg um erlenda kröfuhafa en ekki fólkið í landinu.

Það var afrek hjá þjóðinni að lifa af vinstri - stjórnina - sýnir hvað íslenska þjóðn er hörð af sér og lætur ekki brjóta sig niður.

Óðinn Þórisson, 9.10.2013 kl. 21:37

9 Smámynd: rhansen

Sannarlega var það þjóðin sem bjargaði þvi sem bjargað varð ! ..og eg er hissa að vinstri menn kjósi ekki að hafa lágt og fara hægt ,nu um stundir ,meðan upp eru að koma alvarlegar "SYNDIR " siðustu ára og afreka þeirrar hörmulegu stjórnar !    En vona innilega að nýrri Rikisstjórn takist erfið verk ,sem engin smaverk geta talist !

rhansen, 10.10.2013 kl. 08:27

10 Smámynd: Jón Kristján Þorvarðarson

Það er merkilegt að heyra fólk tala um "syndir" og takmarka syndina við 4 ár. Menn sjá ekki bjálkann...

Væntanlega þarf síðasti ræðumaður að athuga merkingu orðsins "afrek". Afrek (frægðarverk, glæsilegur árangur) getur ekki komið athugasemdalaust í staðin fyrir flaustursverk eða hliðstæð orð.

Jón Kristján Þorvarðarson, 10.10.2013 kl. 11:10

11 Smámynd: Óðinn Þórisson

rhansen - vinstri - stjórnin gerði allt til að gera þetta erfiðara fyrir þjóðina en þurfti með endalausum skattahækkunum á fólk og fyrirtæki og ganga erinda erlendra kröfuhafa og algjör undanlæguhátt gagnvart esb.

Vinstri - stjórnin er klárlega sú lélagasta í lýðveldissögunni.

Óðinn Þórisson, 10.10.2013 kl. 18:04

12 Smámynd: Óðinn Þórisson

Jón Kristján - fyrrv. stórnarflokkar töpuðu 18 þingsætum samanlagt 27 apríl - það hlítur að kallast " afrek " og fá SA og ASÍ á móti sér.

Óðinn Þórisson, 10.10.2013 kl. 18:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Óðinn Þórisson

Höfundur

Óðinn Þórisson
Óðinn Þórisson

Það hefur aukist hér talsvert skoðanakúgun, hvað fólk má segja og hvað ekki. Ef fólk segir brandara fær það yfir sig holskeflu af gagnrýni frá þeim sem telja sig vera í þeirri stöðu að ákveða hvað má segja og hvað ekki. 

Skoðanakúgun hefst nákvmlega svona, fólk hættir að þora að tjá sig vegna hættu frá fólkinu sem telur sig eiga að ákveða hvað má segja og hvað ekki.

Tjáningarfrelsið skiptir okkur öllu máli , við búum enn í lýðræðisríki þar sem fólk á að hafa leyfi til að hafa sínar skoðanir án þess að vera hundelt fyrir það.

Ég vil verja tjáningarfrelsið og réttarríkið sem við búum í. 

Styð heilshugar baráttu Ísraels.

Frjálslyndur Íhaldsmaður sem telur að öflugt atvinnulíf sé forsenda öflugs velferðakerfis.
Lækka skatta og álögur á fólk sem leiðir til aukins hagvaxtar og það gengur betur hjá öllum

 

Spurt er

Eigum við að draga til baka ESB-aðildarumsóknina
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Ísrael stend með
  • Halldór Jónsson
  • Samfylkingin 2006
  • Flagg Ukrainu
  • karen elísabet

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 334
  • Frá upphafi: 870014

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 237
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband