Heiðursmaðurinn Guðlaugur Þór Utanríkisráðherra.

xdFjölmiðill sem vill njóta trausts og virðingar á ekki koma fram með svona dylgjur um heiðarshjónin Gulla og Ágústu.

Guðlaugur Þór er einn öflugasti stjórnmálamaður sem við höfðum átt í mörg ár.

Hefur verið í mörg ár sá stjórnmálamaður til hægri sem hefur alltaf verið tilbúinn til að taka slaginn við póliska andstæðinga

Icesave Jóhönnustjórnarinnar, pólitísku réttarhöldin yfir Geir H., Evrópuumsókn Samfylkingarinnar og hann hefur sagt sannleikann um borgina, að borgin sé í rúst 

Því miður er heiðursmaðurinn Guðlaugur Þór einfaldlega að lenda í fjölmili sem hefur ekkert fram að færa. Nema Dylgjur.

Sjálfstæðisflokkurinn
stétt með stétt


mbl.is „Ber vitni um málefnafátækt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónatan Karlsson

Það er óneitanlega spaugilegt að lesa lofgjörð þína um utanríkisráðherrann og frú, í framhaldi af nýrri

og mun skýrari sýn þinni, á þinn fyrrum elskaða flokk.

Þú hlýtur að geta fallist á að það lítur illa út fyrir hlutlaust mat Guðlaugs á raforku og virkjana málum þjóðarinnar, að honum láist að upplýsa á hagsmunaskrá Alþingis, að ef fyrirhuguð Búlandsvirkjun verði að veruleika, þá muni eiginkona hans, sem landeigandi Hemrumarkar, sem skráð er á heimili hans, auðgast um milljarða króna.

Hvað fyrri gjörninga Gunnlaugs snertir, þá tapaði hann ekki á sölu erlends tryggingafélags til Landsbankans, sem nokkru síðar styrkti Sjálfstæðisflokkinn um fjármuni sem BB lofaði hátíðlega, ef ég man rétt að endurgreiða vaxtalaust, sem ég veit síðan ekkert um hvort hann gerði.

Andersen forstjóri fjármálaeftirlitsins varð illu heilli full djarfur á að upplýsa þann vafning.

Ellefu þingmenn Sjálfstæðisflokksins kusu að lúta vilja Browns og Darlings og láta íslensku þjóðina axla ókleifar ICESAVE byrðarnar með auðlindir okkar að veði og vona ég heillinda ykkar Gulla vegna að hann hafi ekki verið í þeim hópi.

Jónatan Karlsson, 16.4.2019 kl. 05:55

2 Smámynd: Óðinn Þórisson

Jónatan - það sem er spaugilegt við þetta allt er málefnafátækt eyjunnar og er að mínu mati er þetta ekki einfaldlega léleg blaðamennska.

Ég hvet þig til að lesa svar Guðlaugs Þórs til Eyjunnar.

Guðlaugur Þór studdi ekki Icesave Jóhönnustjórnarinnar.

Vegna sögunnar um Icesave - Jóhönnustjórnarinnar er rétt að taka það fram að Jóhanna þá forstætisráðherra barðist gegn því að fólk mætti á kjörstað til að greiða atkvæði um afleik aldarinnar. 

98 % þjóðarinnar sögðu NEI við Icesave Jóhönnustjórnarinnar, trúverðuleiki þeirrar stjórnar fór þá og átti hún að segja af sér.

Ef það á að fara fram málefnaleg umræða um Orkupakka 3 þá verður hún að vera málefnaleg og byggð á einhverjum staðreyndum af hálfu þeirra sem ætla að taka þátt í henni.

Ég er ekki talsmaður þess að Orkupakki 3 verði samþykktur en ég ver heiðarlegt fólk þegar það er farið í það.

Óðinn Þórisson, 16.4.2019 kl. 07:22

3 Smámynd: Eggert Guðmundsson

Til að hafa það rétt þá sat Guðlaugur hjá í Icesave. Það sem ég skil ekki, er af hverju það er ekki hlustað á málflutning þeirra sem eru á móti Orkupakkanum. Það sýnir  hroka gagnvart málfrelsinu. Guðlaugur er ekki enn búinn að skýra út fyrir Almenningi hvað sé svo gott fyrir okkur íslendinga í þessum pakka.

Eggert Guðmundsson, 16.4.2019 kl. 08:58

4 Smámynd: Óðinn Þórisson

Eggert, sat hjá rétt , studdi ekki afleik aldarinnar.

Þingmenn Sjálfstæðisflokksins telja að fyrirvarar muni halda, ég ætla að leyfa mér að vera ósammála þeim um það.

Orkupakki 3 er það stórt mál, að þjóðin á að fá að segja sína skoðun , annað er beinlínis ólýðræðislegt.

Fréttmennska Eyjunnar er hinsvegar ekki boðleg.

Óðinn Þórisson, 16.4.2019 kl. 11:09

5 Smámynd: Benedikt V. Warén

Það eru ekki næg rök.....

......Þingmenn Sjálfstæðisflokksins telja að fyrirvarar muni halda......

- Hvað með Landsdóm?  Sjálfstæðimenn töldu gjörninginn halda.

- Hvað með undanþágu á fersku kjöti? Það varið talið halda.

Nú þurfum við að vera vissir um stöðu okkar, þar dugir ekki að halda - þú þarft að vera viss og það 100%

Benedikt V. Warén, 16.4.2019 kl. 15:32

6 Smámynd: Óðinn Þórisson

Benedikt - það er aldrei hægt að vera 100 % viss en að hleypa þjóðinni að þessari ákvörðun er það lýðræðislegasta í stöðunni.


Þjóðin sýndi það þegar 98 % sögðu NEI við afleik aldarinnar.

Óðinn Þórisson, 16.4.2019 kl. 20:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Óðinn Þórisson

Höfundur

Óðinn Þórisson
Óðinn Þórisson

Það hefur aukist hér talsvert skoðanakúgun, hvað fólk má segja og hvað ekki. Ef fólk segir brandara fær það yfir sig holskeflu af gagnrýni frá þeim sem telja sig vera í þeirri stöðu að ákveða hvað má segja og hvað ekki. 

Skoðanakúgun hefst nákvmlega svona, fólk hættir að þora að tjá sig vegna hættu frá fólkinu sem telur sig eiga að ákveða hvað má segja og hvað ekki.

Tjáningarfrelsið skiptir okkur öllu máli , við búum enn í lýðræðisríki þar sem fólk á að hafa leyfi til að hafa sínar skoðanir án þess að vera hundelt fyrir það.

Ég vil verja tjáningarfrelsið og réttarríkið sem við búum í. 

Styð heilshugar baráttu Ísraels.

Frjálslyndur Íhaldsmaður sem telur að öflugt atvinnulíf sé forsenda öflugs velferðakerfis.
Lækka skatta og álögur á fólk sem leiðir til aukins hagvaxtar og það gengur betur hjá öllum

 

Spurt er

Eigum við að draga til baka ESB-aðildarumsóknina
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Ísrael stend með
  • Halldór Jónsson
  • Samfylkingin 2006
  • Flagg Ukrainu
  • karen elísabet

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 333
  • Frá upphafi: 870013

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 236
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband