" Borg­ar­lín­an ekki þjóðhags­lega hag­kvæm "

Þessi nýja strætólína mun kosta okkur skattborgarana 80 - 100 milljarða næstu 15 árin.

Hverjir munu borga, jú álögurnar á þessari nýju strætólínu er nánast alfarið sett á unga fólkið.

Gera ungu fólki þannig erfiðara að kaupa sér íbúð og starta fjölskyldu, er þetta það sem Samfylkingin vill ?


Vegna Covid og hömrulegrar fjárhagsstöðu Reykjavíkur þá eru allar forsendur fyrir að fara í þessa framkvæmd fallnar.

Ég skora enn og aftur á heiðursmanninn Bjarna Ben formann Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra að rifta öllum samningum milli ríkis og sveitarfélaga um þessa nýju strætólínu enda blair líka við að þessi nýja strætólína er ekki þjóðhagslega hagkvæm.


mbl.is Borgarlínan ekki þjóðhagslega hagkvæm
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það rétta,Óðinn er, að forsendur fyrir þessari framkvæmd HAFA ALDREI VERIÐ TIL STAÐAR og það er þannig ástandið núna í þjóðfélaginu að það er ekki verjandi að halda þessari vitleysu til streitu.  Það hljóta allir að sjá það að borgarlína getur ekki gengið og svo á að reka strætókerfið nánast óbreytt, til að flytja fólk að borgarlínunni því ekki á borgarlínan að ná alls staðar út í úthverfin og einhvern veginn verður fólk að komast að  borgarlínunni.  MÖRG VITLEYSAN HEFUR KOMIÐ FRÁ NÚVERANDI MEIRIHLUTA EN ÉG HELD AÐ HUGMYNDIN UM BORGARLÍNU OG AÐ FLYTJA FLUGVÖLLINN TOPPI ALLT.......

Jóhann Elíasson, 29.10.2020 kl. 08:14

2 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Hvers vegna fær ekki fjármálaráðherra Ragnar og kannski fleiri hagfræðinga til að gera úttekt á þessu máli?

Þorsteinn Siglaugsson, 29.10.2020 kl. 10:00

3 Smámynd: Óðinn Þórisson

Jóhann - sammála þetta var alltaf vonlaus framkvæmd og hefði aldrei átt að fara svona langt með þetta.

Afstaða Sjálfstæðisflokksins er stórfurðuleg og gott dæmi um það sem Brynjar var að segja um dagin að flokkurinn er bara sofandi.

Hversvegna ekki að prófa frítt í strætó í eitt til tvö ár og skoða hvort að það hafi einhver áhrif á þau 96 % sem nota ekki strætó.

Sú ákvörðun borgarstjórnar"meirihlutans " að loka Reykjavíkurflugvelli sem er öryggislína fyrir landsbyggðina er merki um að þetta fólk er ekki hæft til að stjórna höfuðborginni.

Óðinn Þórisson, 29.10.2020 kl. 16:31

4 Smámynd: Óðinn Þórisson

Þorsteinn - auðvitað verður fjármálaráðherra að skoða þessa strætólínu betur áður en að hann sóar peningum skattgreiðenda í þessa framkvæmd.

Óðinn Þórisson, 29.10.2020 kl. 16:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Óðinn Þórisson

Höfundur

Óðinn Þórisson
Óðinn Þórisson

Það hefur aukist hér talsvert skoðanakúgun, hvað fólk má segja og hvað ekki. Ef fólk segir brandara fær það yfir sig holskeflu af gagnrýni frá þeim sem telja sig vera í þeirri stöðu að ákveða hvað má segja og hvað ekki. 

Skoðanakúgun hefst nákvmlega svona, fólk hættir að þora að tjá sig vegna hættu frá fólkinu sem telur sig eiga að ákveða hvað má segja og hvað ekki.

Tjáningarfrelsið skiptir okkur öllu máli , við búum enn í lýðræðisríki þar sem fólk á að hafa leyfi til að hafa sínar skoðanir án þess að vera hundelt fyrir það.

Ég vil verja tjáningarfrelsið og réttarríkið sem við búum í. 

Styð heilshugar baráttu Ísraels.

Frjálslyndur Íhaldsmaður sem telur að öflugt atvinnulíf sé forsenda öflugs velferðakerfis.
Lækka skatta og álögur á fólk sem leiðir til aukins hagvaxtar og það gengur betur hjá öllum

 

Spurt er

Eigum við að draga til baka ESB-aðildarumsóknina
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Ísrael stend með
  • Halldór Jónsson
  • Samfylkingin 2006
  • Flagg Ukrainu
  • karen elísabet

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 13
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 789
  • Frá upphafi: 869693

Annað

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 552
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband