Samfylkingin og atvinnulíf sem er þóknanlegt þeirrra hugmyndafræði

Er það á einhvern hátt hlutverk Samfylkingarinnar að koma nálægt því að ákveða hvaða atvinnugreynar/fyrirtæki lifa eða deyja.

Forræðishyggjan alltaf í fyrsta sæti hjá þessum stjórnmálaflokki.


mbl.is Vill að loðdýrarækt verði hætt á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn H. Gunnarsson

Upphaflega átti þetta nú að vera svo gott að fá nánast ókeypis fóður frá útveginum. En svo vildi útvegurinn auðvitað fá aur fyrir sjávarfangið. Svo kostaði sitt að setja upp verksmiðjur og vinna hráefnið. Þá fór nú að hlaðast upp kostnaður á atvinnuveginn. Og var þá minna í hendi en búist var við.

Björn á Löngumýri var með þeim fyrstu sem fóru í refarækt. Hann skar mæðiveikiféið í refinn. Eitt skemmtilegasta dómsmál sem Björn fór í, var út af refaskinni.

Þannig var mál með vexti að refur slapp úr búri hjá Birni og var ómögulegt að ná honum. Ungur maður í næstu sveit skaut refinn, hirti skinnið og fékk skotlaunin hjá hreppstjóra. Þetta var í sveitinni þar sem Davíð og Jón Steinar voru sumarstrákar.

Björn sagðist eiga skinnið en fékk það ekki. Þá fór hann í mál til að endurheimta skinnið. Auðvitað féll eignarétturinn ekki af skinninu og Björn heimti skinnið. Ólöf eiginkona Björns, sagði mér að Björn hafi sagt þegar hann kom heim frá málaferlunum að hann vildi frekar láta jörð af hendi heldur enn að tapa málinu.  Þetta snerist allt um sæmdina eins og í fornsögunum.

Hún sagði líka þegar við Björn vorum að kljást út af graðhestunum sem ég tók, að þar hefði andskotinn hitt ömmu sína. Björn fékk norskan hirðir til að sjá um refina og var refaræktin mjög fagleg og gæti ég vel trúað að leifar búranna séu enn til niður við Blöndu.

Þorsteinn H. Gunnarsson, 8.11.2020 kl. 16:17

2 Smámynd: Óðinn Þórisson

Þosteinn H - takk fyrir að gefa þér tíma til að deila þessari sögu. 

Óðinn Þórisson, 8.11.2020 kl. 21:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Óðinn Þórisson

Höfundur

Óðinn Þórisson
Óðinn Þórisson

Það hefur aukist hér talsvert skoðanakúgun, hvað fólk má segja og hvað ekki. Ef fólk segir brandara fær það yfir sig holskeflu af gagnrýni frá þeim sem telja sig vera í þeirri stöðu að ákveða hvað má segja og hvað ekki. 

Skoðanakúgun hefst nákvmlega svona, fólk hættir að þora að tjá sig vegna hættu frá fólkinu sem telur sig eiga að ákveða hvað má segja og hvað ekki.

Tjáningarfrelsið skiptir okkur öllu máli , við búum enn í lýðræðisríki þar sem fólk á að hafa leyfi til að hafa sínar skoðanir án þess að vera hundelt fyrir það.

Ég vil verja tjáningarfrelsið og réttarríkið sem við búum í. 

Styð heilshugar baráttu Ísraels.

Frjálslyndur Íhaldsmaður sem telur að öflugt atvinnulíf sé forsenda öflugs velferðakerfis.
Lækka skatta og álögur á fólk sem leiðir til aukins hagvaxtar og það gengur betur hjá öllum

 

Spurt er

Eigum við að draga til baka ESB-aðildarumsóknina
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Ísrael stend með
  • Halldór Jónsson
  • Samfylkingin 2006
  • Flagg Ukrainu
  • karen elísabet

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 334
  • Frá upphafi: 870014

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 237
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband