Samfylkingin ætlar að senda komandi kynslóðum óútfylltan tékka

„Meiri­hlut­inn í borg­ar­stjórn Reykja­vík­ur er bú­inn að ein­angra sig frá öðrum bæj­ar­fé­lög­um með því að fella til­lögu okk­ar, þar sem bæj­ar­stjór­ar annarra sveit­ar­fé­laga hafa lýst áhyggj­um sín­um af þess­um sam­göngusátt­mála og þess­um vanefnd­um og vanáætl­un­um,“ seg­ir Marta Guðjóns­dótt­ir, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæðis­flokks­ins.

Ekki átti ég von á öðru en Samfylkingin og viðhengisflokkar hans í meirihlutanum í Reykjavík myndu fella tillögu Sjálfstæðisflokksins.

Nú þegar liggur fyrir að verkefnið er komið langt fram úr öllu sem talað var um hvort sem það er tími eða peningar.

Þetta er óútfylltur tékki sem Samfylkingin ætlar að senda á komandi kynslóðir, þetta hljómar eins og þegar flokkurinn ætlaði að senda komandi kynslóðum Icesave - reikniginn.


mbl.is Vilja ekki endurskoða samgöngusáttmálann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Þetta er alvarleg valdbeiting meirihlutans í Reykjavík og krefst mótmæla eins og voru gegn Icesafe. Ekki nóg með að Dagur hafi náð völdum með klækjum, nú á að nota það ótrausta vald til að gera eitthvað sem er í óþökk flestra, sem er borgarlínan. 

Jafnvel áður en neikvæðar afleiðingar af Úkraínustríðinu voru komnar fram var borgarlínan gagnrýnd. Hefur ekki Dagur og hans fólk farið nóg fram úr fjárlögum? Hversvegna segir ekki Bjarni Ben stopp við þessu?

Ingólfur Sigurðsson, 22.2.2023 kl. 15:58

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Algjörlega sammála Ingólfi þarna...

Jóhann Elíasson, 22.2.2023 kl. 16:05

3 Smámynd: Óðinn Þórisson

Ingólfur - Samfylkingin talar mikið um þjóðaratkvæðagreiður en þegar það hentar þeim ekki eins og í Icesave og ESB þá er flokkurinn á móti.

Þetta eru í raun hálfgert alræði sem meirihlutinn í Reykjavík er að beita og það er mjög alvarlegt.

Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, bæjarstjórinn í Kópavogi og Hafnarfirði hafa sagt að það verði að taka upp Borgarlínuruglið og nú bíð ég eins og margir aftir því að heyra það sama frá Bjarna.

Það verður að stoppa þessa peningasóun sem Borgarlínan er og verður byrði á komandi kynslóðir.

Óðinn Þórisson, 22.2.2023 kl. 20:42

4 Smámynd: Óðinn Þórisson

Jóhann - góðir puntkar hjá Ingólfi.

En hvar er Framsókn í Reykjavík , þeir virðast vera orðinn bara hækja Samfylkingarinnar.

Óðinn Þórisson, 22.2.2023 kl. 20:43

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég hafði nú ekki meiri trú á Einari Þorsteinssyni en það að ég reiknaði ekki með öðru frá honum og hann sannaði það að hann var ekkert annað en "SKÍTABOMBA" sem Framsókn henti á kjósendur í Reykjavík eins og þeir hafa gert um allt land og í landsmálunum líka.....

Jóhann Elíasson, 22.2.2023 kl. 21:00

6 Smámynd: Óðinn Þórisson

Jóhann - fyrrv. fréttamaður Rúv og hans borgarfulltrúar hafa klárlega svikið kjósendur sína miðað við að flokkurinn ætlaði að stokka allt upp í Reykjavík vegna slæmrar fjárhagsstöðu borgarinnar.

Nei það fyrsta sem flokkurinn gerði sem fékk 4 fulltrúa samdi nánast daginn eftir kosningar við Dag og hans hækjuflokka og hafa engu skilað nema bætast í þann hóp.

Óðinn Þórisson, 23.2.2023 kl. 08:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Óðinn Þórisson

Höfundur

Óðinn Þórisson
Óðinn Þórisson

Það hefur aukist hér talsvert skoðanakúgun, hvað fólk má segja og hvað ekki. Ef fólk segir brandara fær það yfir sig holskeflu af gagnrýni frá þeim sem telja sig vera í þeirri stöðu að ákveða hvað má segja og hvað ekki. 

Skoðanakúgun hefst nákvmlega svona, fólk hættir að þora að tjá sig vegna hættu frá fólkinu sem telur sig eiga að ákveða hvað má segja og hvað ekki.

Tjáningarfrelsið skiptir okkur öllu máli , við búum enn í lýðræðisríki þar sem fólk á að hafa leyfi til að hafa sínar skoðanir án þess að vera hundelt fyrir það.

Ég vil verja tjáningarfrelsið og réttarríkið sem við búum í. 

Styð heilshugar baráttu Ísraels.

Frjálslyndur Íhaldsmaður sem telur að öflugt atvinnulíf sé forsenda öflugs velferðakerfis.
Lækka skatta og álögur á fólk sem leiðir til aukins hagvaxtar og það gengur betur hjá öllum

 

Spurt er

Eigum við að draga til baka ESB-aðildarumsóknina
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Ísrael stend með
  • Halldór Jónsson
  • Samfylkingin 2006
  • Flagg Ukrainu
  • karen elísabet

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 13
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 789
  • Frá upphafi: 869693

Annað

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 552
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband