20.7.2016 | 12:01
Framsókn að hruni kominn
Frosti, Vigdís og Sigrún hafa núþegar tilkynnt að þau ætli ekki að gefa kost á sér áfram og nú Haraldur.
Eftir situr flokkurinn með umboðalausan formann, Gunnar Braga sem hefur enn ekki gert neitt rétt sem ráðherra og Eyló sem er á fullri ferð frá eigin getuleysi og bendir þar á slagsmál við samstarfsflokkinn og ekki má gleyma Vilum sem farinn að þjálfa Kr.
Lilja gæti bjargað einhverju ef flokksmenn kjósa hana formann en hún vill ekki fara fram gegn SDG þar sem hann gaf henni ráðherrajobbið.
Haraldur af þingi og í búskap | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.7.2016 | 07:22
Óánægja með Ragnheiði Elínu ?
Það virðast vera í uppsiglingu átök um oddvitasætið í suðurkjördæmi.
Stuðningsfólk Elliða gerði skoðanakönnun um stuðinng við hann gagnvart sitjandi oddvita og ætti sú niðurstaða að fá hann til að hugleiða málið mjög alvarlega.
Ásmundur er umdeildur en ætlar greynilega að hugleiða hvort hann taki einnig slaginn um 1.sætið enda er það svoleiðis að enginn á neitt í Sjálfstæðisflokknum.
Ég vona ég bæði Ásmundur og Elliði taki slaginn, það yrði mjög gott fyrir flokkinn og líka fyrir Ragnheiði sem þarf klárlega að sækja sitt umboð aftur til flokksmanna ef hún vill leiða lista Sjálfstæðisflokksins í suðurkjördæmi.
Sjálfstæðisflokkkurinn
stétt með stétt
Skorað á Ásmund í fyrsta sætið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggfærslur 20. júlí 2016
Um bloggið
Óðinn Þórisson
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.4.): 219
- Sl. sólarhring: 223
- Sl. viku: 303
- Frá upphafi: 870256
Annað
- Innlit í dag: 161
- Innlit sl. viku: 228
- Gestir í dag: 150
- IP-tölur í dag: 149
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar