Sundurlyndi Vinstri - Manna styrkur Sjálfstæðisflokksins

Sundurlyndi er, hefur og verður alltaf aðalsmerki vinstri - mann sem nú bjóða fram a.m.k fjóra lista í borgarstjórnarkosningunum vorið 2014.

Þannig að ég kvíði ekki niðurstöðu borgarstjórnarkosninganna - óskaniðurstaða meirihluti borgarlegu flokkana tveggja.


mbl.is Píratar bjóða fram í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Stefnir ekki í lítið og snoturt álver á Geirsnefinu ef allt fer að óskum?

Árni Gunnarsson, 14.12.2013 kl. 21:54

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Aumur er Sjálfstæðisflokkurinn orðinn ef hans helsti styrkur er sundurlyndi andstæðinganna. Hvernig er annars með framboðslistann í borginni, allir sáttir?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 14.12.2013 kl. 22:23

3 Smámynd: Óðinn Þórisson

Árni - það eru greidd mjög góð laun fyrir störf í áliðnaðinum.

Óðinn Þórisson, 14.12.2013 kl. 22:28

4 Smámynd: Óðinn Þórisson

Axel - það er alltaf jákvætt ef andstæðingurinn skorar sjálfmörk.

Þetta var niðurstaða prófkjörs þar sem yfir 5000 tóku þátt. Mjög reynslumiklir einsaklingar leiða listann. 

Óðinn Þórisson, 14.12.2013 kl. 22:29

5 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Mig minnir að ég hafi lesið bloggfærslu nýlega sem sagði borgarstjórnarflokk Sjálfstæðismanna rústir einar, lastu þau skrif Óðinn?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 14.12.2013 kl. 22:46

6 Smámynd: Garðar Valur Hallfreðsson

...eru Píratar allt í einu vinstri menn? 

Garðar Valur Hallfreðsson, 14.12.2013 kl. 23:01

7 Smámynd: Óðinn Þórisson

Axel - ég hef gagnrýnt ákvörðun ákveðinna borgarfulltrúa x-d mjög harðlega þar sem þeirra ákvarðanir og daður við vinstri - meirihlutann hafa veikt borgarstjórnarflokkinn.

Óðinn Þórisson, 14.12.2013 kl. 23:17

8 Smámynd: Óðinn Þórisson

Garðar Valur - en ekki hvað ?

Óðinn Þórisson, 14.12.2013 kl. 23:19

9 Smámynd: Jón Ragnarsson

Það eina sem getur bjargað Sjálfstæðisflokknum.

Jón Ragnarsson, 15.12.2013 kl. 02:00

10 Smámynd: Sævar Óli Helgason

Alveg er það merkilegt að sjá sjálfstæðismenn kalla okkur Pírata núna vinstri-flokk...

Þegar þeir sömu sögðu okkur til hægri við miðju í Alþingiskosningunum...

Píratar eru hvorki til hægri, vinstri né aðhyllast gjörspillta bændapólitík...

Við erum fólk sem vill auka á lýðræðið, og mannréttindi, í samfélaginu og minnka á gerræðishyggjuna sem fjórflokkakerfið hefur komið á innan alls framkvæmdarvaldsins sem einmitt kristallast í því viðhorfi embættismanna ríkisins að við almenningur séum "óvinurinn..."

En ef sú stefna okkar er alltíeinu orðin sérstaklega til "vinstri" miðað við þínar skoðanir...

Þá er ágætt að minna á að hugmyndin um sjálft lýðræðið, þ.e jafnt atkvæðavægi kosningabærra, er hreinn sósíalismi...!

Eins er með hinn kapítalíska markað... Til að frjáls markaður geti blómstrað... Þá þurfa allir þátttakendur á þeim markaði að sitja við sama borð og búa við sömu reglur... Þ.e að vera jafnir öllum öðrum á markaðnum...!

Sem þýðir að Adam Smith, upphafsmaður hins frjálsa, kapítalíska markaðar var ekkert annað en sósíalisti og væntanlega bara "vinstrimaður" miðað við þig...?!?

En endilega vertu nú svo góður og segðu mér hvernig þú skilgreinir stjórnmál til hægri eða vinstri...?

Það væri fróðlegt að sjá...

Sævar Óli Helgason, 15.12.2013 kl. 05:10

11 Smámynd: Óðinn Þórisson

Jón - það vissulega hjálpar að hafa vinstri - flokkana sundurtætta.

Óðinn Þórisson, 15.12.2013 kl. 08:59

12 Smámynd: Óðinn Þórisson

Sævar - ég hef aldrei haldið öðru fram en að píratar væru vinstri - flokkur þannig að þeirri staðreynd sé haldið til haga.

Er einhver flokkur sem aðhylliist gjörspyllta bændapólitík ? ef svo er hvaða flokkur er það ? 

Ég hef talað hér skýrt gegn snowden, manning og wikileks og sagt að þessir einstaklingar og samtök hafi veikt BNA.

Hvesvegna fer t.d ekki Manning heim og gerir upp sín mál ?

Allt upp á borðið EN hvað með BJ og myndina um assange - hversvegna opnar hún ekki alla bankareikniga og sýnir fólknu í landinu hvort hún hafi þegir greiðslur fyrir sinn þátt við gerð myndarinnar ? eða er það þannig allt upp á borðið nema hjá ykkur - hljómar eins og vinstri - stjórnin.

Sósíalistar - forræishyggja, boð, bönn, aumingjastefna eins og endurspelgast núna í jólabónusbullinu - allir hafi það jafn skítt , og svo þar ekki að ræða skattamál.

Ég íhaldssamur Sjálfstæðismaður, fullveldissinni, styð atvinnuuppbyggingu m.a Helguvík og ferlsi
einstaklingsins. 

Það þarf að hækka hæstu laun þannig að það sé hvati fyrir fólk að vinna - þannig að munurinn á atvinnuleysisbótum og lægstu launun sé mjög MIKILL.


Þetta  hefur væntanlega verið mjög fróðlegt fyrir þig. 

Óðinn Þórisson, 15.12.2013 kl. 09:15

13 Smámynd: Sævar Óli Helgason

Svar við fyrstu spurningu er... Framsóknarflokkurinn og stór hluti Sjálfstæðisflokksins...!

Hvernig í ósköpunum getur þér dottið í hug að blanda okkur Pírötum við uppljóstranir og lögbrot útí heimi...?

Ertu nokkuð haldin þessari ömurlegu "samsæriskenninga-áráttu" og ofsóknaræði sem háir þá sem verja veikan málstað...?

En ég held samt, persónulega, að þessi leki þessara aðila hafi verið, í þetta skiptið, bráðnauðsynlegur þar sem hann upplýsir um skipulögð lögbrot stjórnvalda erlendraríkja (BNA, Bretland o.fl) á almenningi... HÉRNA Á ÍSLANDI...!

Það er s.s ekki lekinn sem "veikir" idolin þín í Ameríku, heldur hegðun þeirra sjálfra...!

Og miðað við baráttumál þíns flokks síðastliðin ár...

Skammastu þín að gera kröfu um það að fólk upplýsi að óþörfu um sín fjármál...

Sævar Óli Helgason, 15.12.2013 kl. 13:52

14 Smámynd: Óðinn Þórisson

Sævar - það kemur mér skemmtilega á óvart að einhver er tilbúinn að verja og berjast fyrir Pírötum hér.

Sjálfstæðisflokkurinn var stofnaður 1929 og því mótaður af því bænda&sjómannasamfélagi sem við erum, höfum verið og verðum.

Ég er mjög langt frá því að styðja Obama sem er í raun veiki hlekkurinn í öryggis&varnarmálum Bandaríkanna..

Bráttumál míns flokks er og hefur verið fólkiið í landinu og fullveldi þjóðarinnar.

Óðinn Þórisson, 15.12.2013 kl. 15:04

15 Smámynd: Garðar Valur Hallfreðsson

Hér hefur enn ekki komið fram hvað geri Pírata meira til vinstri en aðra flokka.

Garðar Valur Hallfreðsson, 15.12.2013 kl. 21:27

16 Smámynd: Óðinn Þórisson

Garðar - hvaðan koma píratar ? er þetta fólk sem hefur komið við hjá x-d eða x-b - hæpið - svo verður að skoða bhr sem varð hrey. sem varð svo píratar og dögun - ekki beint fólk með hægrisinnaðar skoðanir.

Þeir eiga alveg eftir að sýna einhver hægrisinnuð sjónarmið - er það ekki ?

Óðinn Þórisson, 16.12.2013 kl. 16:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Óðinn Þórisson

Höfundur

Óðinn Þórisson
Óðinn Þórisson

Það hefur aukist hér talsvert skoðanakúgun, hvað fólk má segja og hvað ekki. Ef fólk segir brandara fær það yfir sig holskeflu af gagnrýni frá þeim sem telja sig vera í þeirri stöðu að ákveða hvað má segja og hvað ekki. 

Skoðanakúgun hefst nákvmlega svona, fólk hættir að þora að tjá sig vegna hættu frá fólkinu sem telur sig eiga að ákveða hvað má segja og hvað ekki.

Tjáningarfrelsið skiptir okkur öllu máli , við búum enn í lýðræðisríki þar sem fólk á að hafa leyfi til að hafa sínar skoðanir án þess að vera hundelt fyrir það.

Ég vil verja tjáningarfrelsið og réttarríkið sem við búum í. 

Styð heilshugar baráttu Ísraels.

Frjálslyndur Íhaldsmaður sem telur að öflugt atvinnulíf sé forsenda öflugs velferðakerfis.
Lækka skatta og álögur á fólk sem leiðir til aukins hagvaxtar og það gengur betur hjá öllum

 

Spurt er

Eigum við að draga til baka ESB-aðildarumsóknina
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Ísrael stend með
  • Halldór Jónsson
  • Samfylkingin 2006
  • Flagg Ukrainu
  • karen elísabet

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 66
  • Sl. sólarhring: 74
  • Sl. viku: 482
  • Frá upphafi: 870501

Annað

  • Innlit í dag: 39
  • Innlit sl. viku: 340
  • Gestir í dag: 39
  • IP-tölur í dag: 39

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband