Ljót aðför stjórnarandstöðunnar að Sigmundi Davíð

Stjórnarandsstaðan notaði í dag fundarstjórn forseta til að hjóla í heiðursmanninn Sigmund Davíð Gunnlaugsson.

Ég hef áhyggjur af því andrúmslofti sem stjórnarandstaðan skapaði á alþingi í dag og hvaða áhrif þessi fordæmalausa framkoma þeirra í garð forstætisráðherra mun hafa á samskipti milli stjórnar og stjórnarandstöðu.

Traust skiptir öllu máli og í dag virðist það vera svo að forsætisráðherra einfalda treytir ekki stjórnarandstöðunni.

Vigdís Hauksdóttir kom í ræðustól og varði forsætisráðherra og benti á það augljósa og er ég henni þar sammála.


mbl.is Afturendi ráðherra kunnuglegur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Páll Garðarsson

Það má svo sem búast við að sjálfstæðismaður kalli þann heiðursmann sem lýgur upp á sig titla og lýgur sig inn á þing með tóm loforð í farteskinu.

Jón Páll Garðarsson, 22.4.2015 kl. 20:41

2 Smámynd: Óðinn Þórisson

Jón Páll - "Þekkja afturendann betur en framhliðina" Katrín Jak. þvílík ókurteisi og dónaskapur.

Óðinn Þórisson, 22.4.2015 kl. 21:29

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Þeir treysta sér ekki í Sjálfstæðisflokkinn,því hann nær langt aftur í öldina á undan. Þess vegna ráðast þeir á forsætisráðherra,sem slær þeim við til orðs og æðis.

Helga Kristjánsdóttir, 22.4.2015 kl. 23:27

4 Smámynd: Óðinn Þórisson

Helga - það var lítill sómi af þessu hjá stjórnarandstöðinni í dag og þeim í raun til minnkunnar.

Sigmundur Davíð mun ekki brotna þrátt fyrir svífviðingar en hann mun þvert á móti mun hann eflast við þessa aðfor að sér í dag.,

Óðinn Þórisson, 23.4.2015 kl. 00:20

5 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Hvernig fór stjórnarandstaðan að því ,,að hjóla í" forsætisráðherra?    Eg sá þessar umræður allar á alþingisrásinni í dag.

Það kom þarna fyrirspurn, einföld fyrirspurn sem flestum hefði átt að vera auðvelt að svara og taka þátt í umræðum eins og gerist hjá eðlilegu fólki.

Ok. hvað skeður?  Jú, forsætisráðherra kemur upp, - og eg verð að segja að ég botnaði bara ekkert í hvert maðurinn var að fara.  Og það virðist enginn botna í því.

Það er eitthvað skrítið í gangi.  Hvað nákvæmlega ætla eg eigi að fullyrða um.  En fólk er að ræða málin sín á milli.  Fólk er almennt mjög hugsi yfir furðulegri framkomu forsætisráðherra framsjalla.  Eg held að margir framsjallar séu það líka, allavega sjallar. 

Ómar Bjarki Kristjánsson, 23.4.2015 kl. 06:48

6 Smámynd: Guðlaugur Hermannsson

Ég sem hélt að hann væri "Endalaus" Hann getur aldrei verið kyrr á neinum stað. Hann þyrfti að fara í greiningu blessaður karlinn.....

Guðlaugur Hermannsson, 23.4.2015 kl. 08:26

7 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Heyrði nú ekki betur en að Sigmundur Davíð hafi sagt að það væri ekki hægt að hafa samráð við Stjórnaranstöðuna af því að það læki allt út sem færi fram í samráðshóp um afléttingu hafta. Honum var bent á að Mogginn hafði farið að fjalla um hugsanlegar aðgerðir á dögunum fyrir fundinn. Hann sakaði Árna Pál um að leka upplýsingum þegar hann svo eftir síðasta fund tjáði sig um sama sem Mogginn hafði sagt áður. Bendi á að það var Sigmundur Davíð sem fór að bera sakir á nefngreinda þingmenn og ekki í fyrsta skipti. Svo hljóp hann út áður en umræðan var kláruð! Því er það svo að ekkert samráð hefur verið um viðtækustu mál okkar heldur eru þau unnin að stórum hluta af vinum Sigmundar Davíðs úr Mp banka og fleirum!  Þannig að þú þarft ekki að hafa áhyggjur af samstarfi á Alþingi, Sigmundur Davíð hefur ekki haft áhuga á því frá því hann tók við nema að menn séu algjörlega sammála honum.

Magnús Helgi Björgvinsson, 23.4.2015 kl. 12:19

8 Smámynd: Óðinn Þórisson

Ómar Bjarki - líkt og þú fylgdist ég með þessari ömurlegu framkomu stjórnarandstöðunnar gagnvart Sigmundi Davíð og það undir liðinum fundarstjórn forseta sem á sjálfstögðu ekki að gera og opinberaði strjónarandstaðan sig þar að þeir misnota þann lið þingssins þarna mjög gróflega eins og Sigmundur Davíð benti á.
Það sem er mjög alvarlegt ef rétt er hjá Sigmundi Davíð að stjórnaandsaðan hafi lekið upplýsingum í fjölmiðla. það fór a.m.k mjög illa í Árna Pál sem missti sig svo allsvarkalega eftir að liðunum fyrirspurn til ráðherra var lokið. Gagnrýni reyndar Einar fyrir að hafa hleypt Steingrími að í fundarstjórn forsseta áður en fyrrnendur lið var lokið.

Óðinn Þórisson, 23.4.2015 kl. 13:07

9 Smámynd: Óðinn Þórisson

Guðlaugur - það er nóg að gera hjá forstætisráðherra og fáránlegt að hann sé að eyða sínum tíma í þessa furðulegu uppákomu stjórnarandstöðunnar í gær.

Óðinn Þórisson, 23.4.2015 kl. 13:10

10 Smámynd: Óðinn Þórisson

Magnús Helgi. -

"Sagði Árna rík­is­stjórn­ina hafa lekið gögn­um skipu­lega til fjöl­miðla og að hann hefði hins­veg­ar ein­ung­is tjáð sig um skoðanir sín­ar á til­tekn­um mál­efn­um eft­ir fund nefnd­ar­inn­ar og að á því hefði hann full­an rétt "

Þetta eru mjög alvarlegar ásakanir hjá þinum formanni og á Sigmundur Davíð svo að fara eiga eitthvað samráð við þennan mann hvað þá eftir svívírðingar Katrínar Jak. svo talar Birgitta um að framkoma Sigmundar sé til háborinnar skammar, skil mjög vel að Sigmundur hafi lítinn áhuga á samstarfi við þetta fólk hvað þá að treysta því.

Óðinn Þórisson, 23.4.2015 kl. 13:14

11 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Það var allt bara í hefðbundnu ferli hjá stjórnarandstöðunni.  Það koma þarna fyrirspurn til forsætis og stjórnarandstaðan vildi ræða ákveðin mál við hann eins og vonlegt var.

Þá kom þessi furðulega uppákoma hjá forsætis.  (Og Hauksdóttir og áed komu svo á eftir og bulluðu)

Þjóðin vill fá skýringar á þessari furðulegu hegðun forsætis.    Það er bara þannig.  Það er vart um annað talað ef tveir hittast þessi dægrin.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 23.4.2015 kl. 14:22

12 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Ps. eg get alveg sagt hér hvað ég heyri oft frá fólki sem er að ræða þessu furðulegu hegðun.

Fólk segir:  Er allt í lagi með forsætisráðherra?

Þetta er orðið alvarlegt.  Fólk lítur þessa hegðun alvarlegum augum.  

Ómar Bjarki Kristjánsson, 23.4.2015 kl. 14:36

13 Smámynd: Óðinn Þórisson

Ómar Bjarki - það er þannig að allt frá því að Sigmundur Davíð kom inn í stjórnmálin þá hafa hans pólitsku andstæðinar verið að reyna að grafa undan trausti til hans.
Það sem var furuðulegt við þessa uppákomu eins og þú orðaðr það er hvernig stjórnarandstaðan fór hamförum eftir að SDB benti á það sem ég vísa til á ath.semd nr.10.
Svo þetta að fara að væla í forseta þingsins, að hann eigi að eiga orðastað við forsætisráðherra, Einar hefur eifaldlega ekkert að segja við SDG og hefur engin völd yfir SDG þannig að það sé á herinu.
Þessi stjórnarandstaða er gagnslaus og vart hægt að treysta henni og ekki ástæða til að eiga nema lágmarks samráð við hana

Óðinn Þórisson, 23.4.2015 kl. 16:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Óðinn Þórisson

Höfundur

Óðinn Þórisson
Óðinn Þórisson

Það hefur aukist hér talsvert skoðanakúgun, hvað fólk má segja og hvað ekki. Ef fólk segir brandara fær það yfir sig holskeflu af gagnrýni frá þeim sem telja sig vera í þeirri stöðu að ákveða hvað má segja og hvað ekki. 

Skoðanakúgun hefst nákvmlega svona, fólk hættir að þora að tjá sig vegna hættu frá fólkinu sem telur sig eiga að ákveða hvað má segja og hvað ekki.

Tjáningarfrelsið skiptir okkur öllu máli , við búum enn í lýðræðisríki þar sem fólk á að hafa leyfi til að hafa sínar skoðanir án þess að vera hundelt fyrir það.

Ég vil verja tjáningarfrelsið og réttarríkið sem við búum í. 

Styð heilshugar baráttu Ísraels.

Frjálslyndur Íhaldsmaður sem telur að öflugt atvinnulíf sé forsenda öflugs velferðakerfis.
Lækka skatta og álögur á fólk sem leiðir til aukins hagvaxtar og það gengur betur hjá öllum

 

Spurt er

Eigum við að draga til baka ESB-aðildarumsóknina
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Ísrael stend með
  • Halldór Jónsson
  • Samfylkingin 2006
  • Flagg Ukrainu
  • karen elísabet

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 324
  • Frá upphafi: 870019

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 228
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband