Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

VG ögrar afkomu fjölda fjölskyldna og mikilvægi ráðherrastóla x-d og x-b

Mér er skítsama hvort VG sé að fara á svig við stjórnarsáttmála en það er miklu alvarlegra þegar flokkurinn ögrar afkomu fjölda fjölskyldna.

Um Framsókn og Sjálfstæðisflokkinn sem bera ábyrð á að VG er í ríkisstjórn segi ég þetta, eru ráðherrastólarnir stærri og mikilvægari en afkoma fjölda fjölsyldna ?


mbl.is Svandís hafi farið á svig við stjórnarsáttmála
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stór Loforð Framsóknar í Reykjavík en engar efndir.

Framsókn í Reykjavík kom inn af krafti fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar og sagðist ætla að taka á öllum þeim stóru vandamálum sem væru í Reykjavík.

Reykvíkngar treystu því að það væri eitthvað til í orðum flokksins og fékk flokkurinn 4 borgarfulltrúa.

Ekkert hefur breyst í Reykjavík hvar sem er litið og öll stóru loforðin um breytingarnar voru bara orðin tóm.

Jú fyrrv. Rúv-ari fær borgarstjórastólinn fyrir að fylgja að öllu leyti stefnu Samfylkingarinnar.


mbl.is Óttast öngþveiti á gatnamótum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þórdís Kolbrún ráðherra ESB á Íslandi

Það hefði mátt segja mér það oftar en tvisvar að v.formaður og utanríkisráðherra Sjálfstæðisflokksins væri orðinn talsmaður og taki við skipunum frá Ursulu von der Leyen.

Það má nú vera öllum ljóst að ráðherra hefur engan veginn staðið sig og varið okkar hagsmuni og bara tekið þegjandi við fyrirmælum sem hún hefur og mun fá frá ESB.

Ef það var einhver vafi um það að hún ætti ekki að verða næsti formaður Sjálfstæðisflokksins er þeirri spurningu nú verið svarað skýrt.

Ráðherra og v.formaður Sjálfstæðisflokksins er einfaldlega að fara gegn landsfunarályktun flokksins varðandi ESB og ætti í raun að segja af sér.


mbl.is Ekki beðið um undanþágu fyrir Ísland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jesú Kristur og kristin trú á Íslandi

Það er mín skoðun að þjóðkirkjan og umræðan um kristn gildi og nafn Jesú Krist hefur nú í nokkurn tíma verið reynt af öfgaöflum að halda frá börnum.

Öfgaöfl tala gegn Jesú Krist og kristinni trú og hér áður var kritinfræði kennd í grunnskólum á íslandi en nú er kennd trúarbragðarfræði.

Börn fá ekki að heimsækja kirkjuna sína en á sama tíma er t.d Samtökin 78 komin inn í grunnskólana sem ég er alfarið á móti því börnin eiga að njóta vafans.

Ég er sammála öllu sem kemur fram hjá Kristrúnu Heimisdóttir og við verðum að berjast gegn skoðanakúgun þannig að börn fái að heyra um Jesú Krist og kristna trú.




mbl.is Undarleg þögn um Jesúm Krist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auknar valdheimildir og betri búnaður fyrir lögregluna gegn öfgum

Ísland er kristin þjóð og höfum því ekki þurft að hafa teljandi áhyggjur af öfgaöflum.

Okkar Ísland er að breytast og því er nauðsynlegt að við látum lögreglunni í té þær valdheimilir og búnað sem hún þarf til að takast á við við öfgar ef það er uppgangur öfgaafla á íslandi.

Með lögum skal land byggja og með kristnum gildum getum við áfram verið sú þjóð sem við viljum vera.


mbl.is Lögreglu skortir heimildir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viðreisn búinn að vera í vinstri - meirihluta í Reykjavík í 5 ár

"Auðvitað finnst mér gott að Sjálf­stæðis­flokk­ur­inn er núna loks­ins að vakna til vit­und­ar um að hann er ein­fald­lega hluti af vinstri­stjórn."

Viðreisn er annaðhvort ekki enn búinn að átt sig á því að þeir eru á 5 ári í vinstri meirihluta í Reykjavík eða hinsvegar einfaldlega eins og Þorsteinn Víglundsson fyrrv. v.formaður, ráðherra og þingmaður flokksinsn skrifaði í grein að Viðreisn væri kominn alllt of langt til vinstri.

Er ekki Þorgerður Katrín bara í fýlu yfir að hafa ekki náð sínu markmiði að verða formaður Sjálfstæðisflokksins.


mbl.is Ekki nýtt að íhaldsarmurinn fari í fýlu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forysta Sjálfstæðisflokksins verður að fara að vakna

Það er eðliegt að spyrja alvarlegra spurninga þegar kemur að Sjálfstæðisflokknum og stöðu hans eftir 6 ára samstarf við VG.

Flestir Sjálfstæðismenn voru sáttir við miðað við aðstæður að taka eitt kjörtímabil með VG EN að enurnýja það og gefa VG áfram Forsætisráðherrastólinn voru mistök.

Eins og komið hefur fram nær Sjálfstæðisflokkurinn ekki fram sinni stefnu og áherslum í flóttamannamálum, orkumálum og varnarmálum í samstarfi við VG.

Þögn v.formanns Sjálfstæðisflokksins og 2.þingmanns Norð - vestur kjördæmis þegar matvælaráðherra VG stoppaði hvalveiðar með 1 dags fyrirvara og tók vinnu af 200 fjölskyldum var mjög há. Ég ætla ekki að minnast á svik Matvælaráðherra VG við strandveiðimenn.

Það verður að slíta þessu stjórnarsamstarfi við VG og skoða hvort Framsókn sé reiðubúin til að taka á þessum málum í samstarfi við Miðflokk/Flokk Fólksins með hagsmuni íslands að leiðarljósi.

Sjálfstæðisflokkurinn
stétt með stétt


mbl.is Óttast klofning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kristn trú er ekki einstaklingshyggju-trú

Það virðist vera mjög umdeilt hvort biskup sé umboðslaus eða ekki en það má öllum vera það ljóst að þessi mikla umræða um biskup getur og hefur kannski skaðað þjóðkirkjuna okkar.

Ísland er kristin þjóð og það er mikilvægt að enginn vafi ríki um umboð biskups okkar íslendinga.

Það er von mín að biskup hugleiði mjög alvarlega hvort rétt sé að biskup haldi áfram vegna mikils vafa um umboð hans.


mbl.is Ráðning sögð lögleysa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Of margir flokkar sem vinna undir forystu Samfylkingarinnar

Ákvörun Framsóknar í Reykjavík um að vinna undir stjórn Samfylkingarinnar er merki um að flokkurinn er líklega að undirbúa að taka þátt í næstu vinstri stjórn undir forystu Samfylkingarinnar.

Ákvörðun Viðreisnar í Reykjavík um að halda áfram að vinna undir Samfylkunngi staðfesti það að Viðreisn er bara viðhengi við Samfylkinguna og mun vinna undir forsty flokksins komist hann í ríkisstjórn.

Brynjar talar um að borgarlegur flokkur eins og Sjálfstæðisflokkurinn geti ekkert gert í samstarvið við VG í flóttamannamálum og orkumálum auk þeirra skemmdarverka sem matvælaráðherra hefur staðið fyrir með hvalveiðibanni og stoppa strandveiðar.

Bjarni þarf að setjast niður með Sigurði Inga og kanna hvort hann hafi áhuga á að mynda stjórn sem tekur á stóru málunum án aðkomu VG sem er lífsnauðsynlegt fyrir framtíð Íslands eða hvort hann sé orðinn staðfastur eins og flokkurinn í Reykjavík að vinna undir forystu Samfylkingunnar.


mbl.is „Þá held ég að menn séu alveg galnir"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Biksup hætti strax störfum með hagsmuni kirkjunnar okkar að leiðarljósi

Þetta er meira en stórfurðulegt að undirmaður geri ráðningarsamning við sinn yfirmann.

Biskup er skipaður til 5 ára og svo þarf biskup eðlilega að sækja sér nýtt umboð ætli hann sér að reyna að sitja áfram.

Við erum að sjá uppgang trúleysingja/siðmennt og okkar kristilegu gildi eru í hættu.

Þetta mjög óhepplegt að biskup skuli gera þaetta og eina sem hann getur gert nú þegar þetta orðið opnibert þá er að hann segi af sér strax með hagsmuni kirkjunnar okkar að leiðarljósi. 


mbl.is Biskup ráðinn af undirmanni sínum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Óðinn Þórisson

Höfundur

Óðinn Þórisson
Óðinn Þórisson

Það hefur aukist hér talsvert skoðanakúgun, hvað fólk má segja og hvað ekki. Ef fólk segir brandara fær það yfir sig holskeflu af gagnrýni frá þeim sem telja sig vera í þeirri stöðu að ákveða hvað má segja og hvað ekki. 

Skoðanakúgun hefst nákvmlega svona, fólk hættir að þora að tjá sig vegna hættu frá fólkinu sem telur sig eiga að ákveða hvað má segja og hvað ekki.

Tjáningarfrelsið skiptir okkur öllu máli , við búum enn í lýðræðisríki þar sem fólk á að hafa leyfi til að hafa sínar skoðanir án þess að vera hundelt fyrir það.

Ég vil verja tjáningarfrelsið og réttarríkið sem við búum í. 

Styð heilshugar baráttu Ísraels.

Frjálslyndur Íhaldsmaður sem telur að öflugt atvinnulíf sé forsenda öflugs velferðakerfis.
Lækka skatta og álögur á fólk sem leiðir til aukins hagvaxtar og það gengur betur hjá öllum

 

Spurt er

Eigum við að draga til baka ESB-aðildarumsóknina
Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • George W. Bussch. um hið vonda
  • Úkraína
  • Donald Trump 47, forseti BNA mynd, BNA nóv 24
  • Donald Trump 1
  • Ísrael stend með

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.8.): 19
  • Sl. sólarhring: 221
  • Sl. viku: 683
  • Frá upphafi: 906814

Annað

  • Innlit í dag: 12
  • Innlit sl. viku: 489
  • Gestir í dag: 11
  • IP-tölur í dag: 11

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband