29.4.2014 | 07:19
ESB - Mikstök Samfylkingarinnar
Þannig að það komi skýrt fram þá er esb umsóknin mistök Samfylkingarinnar, Samfylkingin var 3 sinnum á NEI takkanum á síðasta kjörtímabili að þjóðin kæmi að málinu - flokkurinn lofaði að kosið yrði um samning á síðasta kjörtímabili - við það loforð stóð Samfylkingin ekki.
Óljóst hvort ESB-tillaga klárast | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Óðinn Þórisson
Spurt er
Eigum við að draga til baka ESB-aðildarumsóknina
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 4
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 96
- Frá upphafi: 888608
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 79
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það er alveg með ólíkindum hvernig þér tekst stundum að snúa hlutunum á haus Óðinn. Stefnan var eins og þú veist vel að klára viðræðurnar á síðasta kjörtímabili og þá mundi þjóðin kjósa um samning. Þú hlýtur að vita hversvegna það tókst ekki en svona just in case ætla ég að minna þig á framgöngu VG í þessu máli, þeir hótuðu stjórnarslitum ef haldið yrði áfram með málið, þvert ofan í það sem þeir höfðu samþykkt í upphafi kjörtímabilsins.
Það er algjör óþarfi að kjósa oft um þetta mál, einfaldlega klára samning svo hægt sé að kjósa um eitthvað sem við vitum hvað er. Núverandi ríkisstjórn er reyndar algjörlega búin að klúðra þessu máli en kanski það besta er að henni hefur tekist að gera ótrúlega marga fyrrum andstæðinga ESB aðildar að aðildarsinnum með klaufalegri framgöngu sinni!
Óskar, 29.4.2014 kl. 07:53
Óskar - það var skýrt loforð Sf að þjóðin fengi að kjósa um saming á síðasta kjörtímabili - ef það var svo að vg sveik stjónarsáttmálann þá hversvegna var ríkisstjórnarsamstarfinu þá ekki slitið ?
Var ekki aðalamálið bara að fyrsta tæra vinstri - stjórnin myndi ljúka kjörtímabilinu - hvað með málin esb, stjórnarskránna o.s.frv ekkert klárað
Óðinn Þórisson, 29.4.2014 kl. 17:24
Verður þú aldrei þreyttur á þessari síendurteknu færslu Óðinn? Hversu oft er heilbrigt að endurtaka sjálfan sig?
Jón Kristján Þorvarðarson, 30.4.2014 kl. 02:06
Jón Kristján - sannleikurinn verður aldrei þreyttur nema hjá þeim sem finnst hann óþægilegur.
Óðinn Þórisson, 30.4.2014 kl. 07:07
Aldrei er góð vísa of oft kveðin. Óðinn, haltu bara þínu striki, sumt fólk vill þagga andstæðinga niður, með nákvæmlega svona orðræðu: Ekki heilbrigt (hef lesið þetta frá nokkrum og allir sömu megin við línuna) eða þráhyggjuröskun, etc.
Elle_, 30.4.2014 kl. 17:13
Elle - vissulega vilja menn reyna að þagga niður sannleikann en við verðum bara að halda áfram að segja hann.
Óðinn Þórisson, 30.4.2014 kl. 17:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.