27.10.2014 | 06:47
Stoltur af því að vera í sama flokki og Guðlaugur Þór
Guðlaugur Þór hefur verið einn öflugasti þingmaður Sjálfstæðisflokksins undanfarin ár og hefur sinnt sínum störfum af heiðarleika og verið mill baráttumaður fyrir hugsjónum og stefnu flokksins.
Guðlaugur Þór er ekki beint vinsæll hjá vinstra - liðinu enda fáir sem hafa farið jafn illa með þá í rökræðum og hann og er ég stoltur að vera í sama flokki og Guðlaugur Þór.
Það yrði mikill styrkur fyrir Sjálfstæðisflokkinn að fá hann í þetta embætti.
Sjálfstæðisflokkurinn
stétt með stétt.
Guðlaugur Þór er ekki beint vinsæll hjá vinstra - liðinu enda fáir sem hafa farið jafn illa með þá í rökræðum og hann og er ég stoltur að vera í sama flokki og Guðlaugur Þór.
Það yrði mikill styrkur fyrir Sjálfstæðisflokkinn að fá hann í þetta embætti.
Sjálfstæðisflokkurinn
stétt með stétt.
![]() |
Býður sig fram til ritara |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Óðinn Þórisson
Spurt er
Eigum við að draga til baka ESB-aðildarumsóknina
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.6.): 1
- Sl. sólarhring: 88
- Sl. viku: 424
- Frá upphafi: 902515
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 394
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Var hann ekki eitthvað að misfara með fé fyrir nokkrum árum síðan? Eða var það bara í réttunum? Maður er búinn að gleyma þessu.
Jósef Smári Ásmundsson, 27.10.2014 kl. 10:13
Jósef - hann var mjög duglegur að afla fjár fyrir flokkinn og hefur ekki verið fundinn sekur um eitt eða neitt varðandi fjármál.
Óðinn Þórisson, 27.10.2014 kl. 16:22
Dálítið sérkennileg nálgunin hjá þér á pólitík. Þú hefur margsinnis látið þá skoðun í ljós að uppáhalds pólitíkusarnir þínir séu þeir sem fara hvað mest í taugarnar á "vinstra liðinu". Og því óvinsælli sem þeir eru hjá vinstra liðinu því betra.
Varðandi Guðlaug Þór þá hefur hann áreiðanlega marga góða kosti að bera og vonandi aðra en að fara bara í taugarnar á vinstra liðinu. Það væri heldur snautlegt fyrir gamalgróinn stjórnmálaflokk ef hann fengi ritarastarfið fyrir það eitt að vera taugaskelfir vinstri manna.
Jón Kristján Þorvarðarson, 27.10.2014 kl. 17:42
Það að vera ritari kommúnistaflokksins í fyrrum Sovét þótti nú merkistitill. Að vera ritari FLokksins er eflaust ágætt líka.
Guðmundur Pétursson, 27.10.2014 kl. 20:16
Jón Kristján - það kemur skýrt fram í færslunni hvaða kosti ég tel að GÞÞ hafi.
Frá því að þessi ríkisstjórn var mynduð hafa fáir verið duglegri en hann að tala aga í ríkisfjármálum og að stofnanir verði að halda sig innan fjárlagaga.
GÞÞ hefur sýnt það að á hann á það fyllilega skilið og unnið fyrir þessu embætti og það yrði mikill styrkur fyrir Sjálfstæðisflokkinn að hann myndi fá þetta embætti.
Óðinn Þórisson, 28.10.2014 kl. 07:14
Guðmundur - hér er einfaldlega verið að gera breytingu, í stað 2 v.formanns verður ritari.
Við skulum vona að þessi breyting verði til góðs fyrir Sjálfstæðisflokkinn og ég treysti engum betur en Guðlaugi Þór í þetta embætti.
Óðinn Þórisson, 28.10.2014 kl. 07:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.