12.11.2014 | 12:06
Björk samþykkti eitthvað sem hún er á móti
Þessi málflutningur Bjarkar borgarfulltrúa Samfylkingarinnar er ekk boðlegur og henni til minnkunnar.
Annars á hún að sýna manndóm og samþykkja þetta ekki og sleppa svona lýðskrumi.
Allir verða að vera jafnir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Óðinn Þórisson
Spurt er
Eigum við að draga til baka ESB-aðildarumsóknina
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 4
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 96
- Frá upphafi: 888608
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 79
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Já segðu Óðinn.
Svo talar hún um jöfnuð og ef henni er alvara í orðum sínum þar þá samþykkjir hún ekki.
Þetta eru vinnubrögð Samfylkingarinnar eftir því sem hún sagði í gær,svona gerum við. Ekki er Helgi Hjörvar betri hann var búinn að segja það í pontu Alþingis að hann þyrfti ekki þessa leiðréttingu en sótti samt um hana....
Þetta er Samfylkingin í hnotskurn segi ég, ekki að marka eitt einasta orð frá þessu fólki...
Kv.góð
Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 12.11.2014 kl. 13:02
Óðinn, það hlýtur þá að vera Bjarna líka til minnkunar að hafa sótt um, og ég tala nú ekki um Simma D ef hann hefur líka sótt um, sem mér finnst ekki ósennilegt.Þeir eru eflaust einir af þeim mörgu sem sóttu um, og hafa ekkert með leiðréttingu að gera v/fjárhaldslegrarvelstæði.
Hjörtur Herbertsson, 12.11.2014 kl. 13:09
Ingibjörg Guðrún - rétt Samfylkingin snýr alltaf öllu á hvolf og snýst alltaf um að afvegaleiða umræðuna.
Auðvitað ef þetta er í raun og veru hennar viðhorf á klérlega á hún ekki að samþykkja það sem hún sótti um, auðvitað fagnar hún þessu en það hentar hennar málflutningi ekki.
Óðinn Þórisson, 12.11.2014 kl. 17:51
Hjörtur - þetta er almenn aðgerð og hversvegna ættu þeir Bjarni og Sigmundur að vera útilokaðir frá skuldaleiðréttingu, það er fullkomlega fáránlegt.
Vinstri - menn þola ekki að sumir eigi meiri pengna en aðrir, það kallast öfund og tær sósíalismi.
Óðinn Þórisson, 12.11.2014 kl. 17:54
Ég lái þeim það ekki, þegar svona vitleysislega var að þessu staðið. Mín skoðun er að það hefði átt að miða þessa leiðréttingu við einhver tekjumörk, t.d. tel ég að fólk sem er með 10-15 miljónir í árstekur og þar yfir hafa enga þörf fyrir þessa leiðréttingu, það hlýtur að ráða við sínar afborganir af lánum. Nákvæmlega eins og kemur fram hjá Björk þar sem hún telur sig vera það ríka og ráði við sýnar afborganir að hún hafi ekkert með þetta að gera, en hún fær 2 miljónir í leiðréttingu. En svo hef ég hér dæmi um hjón sem ég tengist, hún er öryrki og hann kominn á eftirlaun, nákvæma skuldastöðu þeirra hef ég ekki, en hún er ekki undir 10 miljónum, og Óðinn hvað heldur þú að þau hafi fengið í leiréttingu, jú 1180 þús. samanlagt. Svo heldur Sigmundur D því fram að hátekjufólkið fái ekkert meir eða komi betur út frá þessu en það lægra setta. Ja fuss og svei segi ég nú bara við þessa hægri stefnu.
Hjörtur Herbertsson, 12.11.2014 kl. 19:51
Hjörtur - enn einu sinni þetta er almenn leiðrétting ekki sértæk.
Það var val hvers og eins hvort viðkomandimyndi mydni sækjaum leiðréttingu, en eins og tilviki Bjarkar þá er þetta ekki boðlegur málflutningur hjá henni, að sækja um leiðréttingu sem hún gerði sjálf og skammat út í að fá leiðréttinguna og ætla að samþykkja hana.
En þetta er hefðbundinn Samfylkingarspuni sem ég held að allir sem vilji sjá í gegnum.
Það sem er að pirrra ykkur vinstri - menn er að þið fenguð tækifæri til að fara í leiðréttingu en gerðuð það ekki.
Óðinn Þórisson, 12.11.2014 kl. 22:20
Hvað fengu margir flokksmenn í vinstri flokkunum 110% lækkun?
Guðmundur Ásgeirsson, 12.11.2014 kl. 22:31
Guðmundur - það sem er fyndið er það var enginn neyddur til að sækja um þessa skuldleiðréttingu rn samt kvartar þetta fólk yfir að hafa fengið hana, er á móti henni en ætlar að samþykkja hana.
Arni Páll og Katrín Jak. sóttu um leiðréttingu sem þau þurfu ekki, voru á amóti en ætla að samþykkja.
En ég viðurkenni fúslega að ég hef ekki svarið við þinni spuninrgu en ég held að hún sé ekki aðalmáið.
Óðinn Þórisson, 13.11.2014 kl. 07:25
Óðinn, þú segir að Árni og Katrín þurfi ekki leiðréttingu. En Bjarni heldurðu að hann þurfi hana frekar? Ef þetta fólk sem þarf ekki á leiðréttingu að halda v/þess hve velstætt það er, hefði nú bara sleppt því að sækja um,hefði þá ekki komið meira til skiptana til þeirra sem minna meiga sín?
Hjörtur Herbertsson, 13.11.2014 kl. 12:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.