20.6.2015 | 22:02
Áfengi í verslanir verði forgangsmál Sjálfstæðisflokksins
Þó svo að Samfylkingin hafi snúist í 180 g í þessu máli eins og með olíuleit á drekasvæðinu þá ætti andstaða flokksins við áfengi í verslanir ekki að hafa áhrif á niðustöðuna á alþingi.
Sjálfstæðisflokkurinn ætti klárlega að krefjast þess við Framsókn að þetta mál a.m.k fari til atkvæðagreiðslu og ef þeir styðja ekki málið þá er það bara svoleiðs en það myndi vissulega veikja ríkisstjórnina.
Því miður er það svo að við erum með tvo forræðishyggjuflokka á alþingi Samfó og VG og ég trúi þvi ekki að Framsókn vilji bætast í þann vafasama félagsskap.
Vínfrumvarpið ekki sofnað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Óðinn Þórisson
Spurt er
Eigum við að draga til baka ESB-aðildarumsóknina
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 5
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 53
- Frá upphafi: 888613
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 43
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég held að topparnir í flokkunum fatta að fyrirsögnin "xD og xB einfalda aðgengi að vímuefnum" gæti verið leiðinleg fyrir næstu kosningar.
Elfar Aðalsteinn Ingvarsson (IP-tala skráð) 20.6.2015 kl. 22:49
Elfar - að leyfa íslendingum að kaupa áfengi í almennum verslunum eins og í mörgum löndum flokkast í raun bara undir að sitja við sama borð.
Óðinn Þórisson, 20.6.2015 kl. 23:43
Háleitt markmið Óðinn, verður eflaust toppurinn á "afrekaskrá" Sjálfstæðisflokksins, að hægt verði að sækja sér brennivín og mjólk í sömu hilluna. Þjóðinn verður mun frjálsari eftir þá breytingu.
"Sitja við sama borð"? Nú þykir mér stungin tólgin! Óðinn hefur ekki öllu verið tjaldað til á þessu bloggi gegn því að Íslendingar sætu við sama borð og t.d. Evrópubúar?
Axel Jóhann Hallgrímsson, 21.6.2015 kl. 10:48
Axel Jóhann - ég lít á það sem sjálfsagðan hlut að geta keypt mér rauðvín á sama stað og ég kaupi lambalærið.
Samfylkinign sem er mjög evrópusinnaður var með þessu máli á síðasta kjörtímabili, hversvegna telur þú að þeir hafi farið í 180 g beygju í málinu ?
Óðinn Þórisson, 21.6.2015 kl. 12:19
Og afhverju má ég ekki kaupa mér kódínið, morfínið, hassið og spídið á sama stað og rauðvínið þá Óðinn?
Elfar Aðalsteinn Ingvarsson (IP-tala skráð) 21.6.2015 kl. 13:11
Elfar - ef þetta sjálfsagða mál verður samþykkt þá skulum við skoða og ræða það sem þú ert að tala um.
Óðinn Þórisson, 21.6.2015 kl. 13:24
Þetta er ekki sjálfsagt mál, enda skiptar skoðanir um það innan flestra flokka.
Elfar Aðalsteinn Ingvarsson (IP-tala skráð) 21.6.2015 kl. 13:59
Elfar - væntalega yrði mun meiri ágreyningur og ólíkar skoðanir um þú getir keypt þitt hass í Hagkaup.
Óðinn Þórisson, 21.6.2015 kl. 14:03
Ég er hræddur um að þótt ég er hlynntur lögleiðingu þá er ég ekki notandi neins vímuefnis nema áfengis.
Elfar Aðalsteinn Ingvarsson (IP-tala skráð) 21.6.2015 kl. 15:23
Elfar - ég held að þetta frumvarp yrði til góðs og þá yrði auðveldara að taka umræðuna um að leyfa hass o.sfrv.
Það hafa engin gild rök komið fram sem segja að það yrði slæmt að selja áfengi í almennum verslunum auk þess sparnaðar sem yrði fyrir ríkið með því að loka vínbúðunum.
Óðinn Þórisson, 21.6.2015 kl. 15:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.