12.11.2015 | 12:51
"Ríkisútvarpið ohf. verði lagt niður í núverandi mynd"
"Rekstur ríkisins á fjölmiðlum má ekki hamla frjálsri samkeppni og raska rekstrargrundvelli annarra fjölmiðla. Landsfundur leggur til að þörf samfélagsins fyrir ríkisfjölmiðil verði endurskilgreind og Ríkisútvarpið ohf. verði lagt niður í núverandi mynd."
Landsfunarályktun Sjálfstæðisflokksins um fjölmiðla
Þetta er alveg skýrt og skylduskatturinn verður lækkaður ef Illugi leggur eitthvað annað fram verðue hann að segja af sér, það er bara þannig.
Lengi haft horn í síðu RÚV | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Óðinn Þórisson
Spurt er
Eigum við að draga til baka ESB-aðildarumsóknina
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 3
- Sl. sólarhring: 9
- Sl. viku: 95
- Frá upphafi: 888607
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 78
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæll Óðinn.
Ég gafst upp á þessum vinstri slagsíðu fjölmiðli, hætti að hlusta og horfa og henti sjónvarpinu að lokum þar sem það stóð eins og einhverskonar "Búdda" líkneski í stofunni hjá mér sem ég var hættur að beygja mig fyrir. Samt sem áður er ég tilneyddur til að borga í þennan óskapnað.
Tómas Ibsen Halldórsson, 12.11.2015 kl. 13:49
Það er mikilvægt að standa vörð um RUV. Það voru mikil mistök hjá sjálfstæðisflokknum að ohf væða stofnunina á sínum tíma og má rekja vandann til þess að hluta til.
Sigurður Helgi Magnússon (IP-tala skráð) 12.11.2015 kl. 14:13
Sigurður Helgi, það má vel vera að það sé eitthvað til í því sem þú segir, en fjármálaóráðsían var til fyrir áður en RUV varð að ohf. Hitt er svo það að hlutlæg vinstri slagsíða RUV hefur viðgengist mun lengur en hefur farið versnandi frá ohf-væðingu stofnunarinnar. Það er ekki hægt að treysta hlutlausum fréttaflutningi þessarar stofnunar. Ég er ekki hissa á að Svandís Svavarsdóttir hefði viljað hafa innmúraða vinstrimenn í nefnd þeirri sem skilaði skýrslu um RUVið þar sem veist er að fjölmiðli þeirra sem haldið hefur á lofti vinstri áróðrinum.
Tómas Ibsen Halldórsson, 12.11.2015 kl. 14:35
Tómas - núna er árið 2015 og að Rúv sé enn á auglýsingaamarkaði og skylduskattur er bara fáránelgt og um leið skaðar það frjáslu fjölmiðana.
Ég vona að Illugi standi í lappirnar í þessu máli og framfylgi stefnu flokksins varðandi rúv.
Óðinn Þórisson, 12.11.2015 kl. 14:37
Sigurður Helgi - hversvegna er mikilvægt að standa vörð um Rúv ?
Óðinn Þórisson, 12.11.2015 kl. 14:39
Tómas - sammála varðandi vinstri slagsíðuna hjá Rúv. Ríkisúvarp vinstri manna ?
Óðinn Þórisson, 12.11.2015 kl. 15:17
Ég mundi borga fyrir farið sjálfur frá Houston til Reykjavíkur, ef ég fengi að slökkva á RUV fyrir fullt og allt.
Kveðja frá Houston
Jóhann Kristinsson, 13.11.2015 kl. 04:04
Útvarp Saga er útvarpsstöð flestra Íslendinga.
Kvet alla að styðja Útvarp Sögu.
Kveðja frá Houston
Jóhann Kristinsson, 13.11.2015 kl. 04:07
Jóhann - það væri mjög gott fyrir frjálsa fjölmiðla er slökkt yrði á Rúv.
Óðinn Þórisson, 13.11.2015 kl. 07:05
Jóhann - varðandi útvarp sögu þá er ég þar sammála þér.
Óðinn Þórisson, 13.11.2015 kl. 07:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.