8.5.2017 | 17:33
Áframhaldandi aðför rauða meirihlutans að einkabílnum
Það er ótrúlegt að fylgjast með vinnubröðgum rauða meirihlutans í Reykjavík gegn einkabílnum.
Það er verið að vinna skipulega að því að eyðleggja möguleika fólks að ferðast um eins og það vill sjálft.
Með tilgangslausum þrenginum eins og Grensálsveg er verið að eyðileggja/skemma götur, allt gert í nafni betri " almenningssamgangna."
Það skulu allir verða leiguliðar, hjóla og nota strætó.
Um þetta verður m.a kosið vorið 2018, vilja Reykvíngar fá að ráða því sjálfir hvernig þeir ferðast um sína eigin borg eða vilja þeir að Dagur B. og hans fólk ráði því.
Miklar tafir á Miklubraut | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Óðinn Þórisson
Spurt er
Eigum við að draga til baka ESB-aðildarumsóknina
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 4
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 52
- Frá upphafi: 888612
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 42
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það verður kosið um þetta, en hefur einhver flokkur stigið fram fyrir skjöldu með skýra stefnu um að fólk fái sjálft að ráða ferðamáta sínum? Það er kannski kominn tími til að einhver geri það.
Þorsteinn Siglaugsson, 8.5.2017 kl. 18:07
Þorsteinn - til að svara þinni spurningu þá segji ég nei, borgarstjórnarflokkur x - d hefur valdið miklum vonbrygðum.
Það verður prófkjör hjá Sjálfstæðisflokknum í haust, þar þarf að skipta um oddvita sem setur þessi mál á dagskrá.
Þessi þrenging/lokun á Miklubraut sem verður til loka Ágústs mun valda mikilli mengun.
Óðinn Þórisson, 8.5.2017 kl. 19:21
Það hefur alltaf verið þannig að það þurfi að þrengja götur þegar framkvæmdir eiga sér stað. Eftir að framkvæmdum lýkur verður gatan fyrir einkabíla jafn breið og áður og það sem meira er stætó er tekin af henni yfir á strætóreinina og því verður meira pláss fyrir bílana. Ef þessar framkvæmdir fjölga þeim sem nota strætó eða reiðhjól þá fækkar líka einkabílunum á þessum stað sem gefur meira pláss fyrir þá sem áfram nota einkabílinn. Hvaða aðför er þetta þá að einkabílnum? Á hvern hátt er verið að taka það val af Reykvíkingum hvernig þeir ferðast? Það er verið að bæta aðstöðu fyrir þá valkosti sem hafa verið afskiptir seinustu hálfa öldina og þannig er verið að fjölga valkostunum en ekki fækka þeim.
Sigurður M Grétarsson, 8.5.2017 kl. 19:31
Sigurður M - það hefur verið gríðarleg aukning í sölu bíla undanfarin ár og engin stækkun verið gerð á Miklubraut til að svara þeirri aukningu.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur talað fyrir mislægum gatnamótum kringumýrabrutar/miklubrautar og í þá framkvæmd hefði átt að fara fyrir nokkrum árum enda þessi gatnmót mjög umferðarþung.
Stækkun Hringbrautar á sínum tíma var hálfgert klúður, það klúður þarf að laga og gera þetta heilstaðara frá Hringbraut að Ártúnshöfða.
Óðinn Þórisson, 8.5.2017 kl. 20:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.