14.10.2023 | 11:55
Bjarni Ben tók sína ákvörðun með heildarhagsmuni þjóðarinnar að leiðarljósi
Það var gríðarlega pólitískt sterkt hjá formanni Sjálfstæðisflokksins að virða niðurstöðu umboðsmanns alþings og segja af sér sem fjármála og efnahagsráðherra enda er flokkurinn borgarlegur flokkur sem virðir lög og reglur.
Það kom held ég aldrei alvöru til greyna að Bjarni Ben sem einn af þremur oddvitum ríkisstjórnarinnar myndi ekki taka áfram þátt í þeim verkefnum sem eru brýn fyrir land og þjóð.
Sömuleiðs gat stóll fjármálaráðherra aldrei farið frá Sjálfstæðisflokknum því hann á þann stól þetta kjörtímabil samkvæmt samkomulagi.
Ég óska íslensku þjóðinni til hamingju með nýjan utanríkisráðherra og nýjan fjármála og efnahagsráðherra.
Bjarni verður utanríkisráðherra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:56 | Facebook
Um bloggið
Óðinn Þórisson
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 3
- Sl. sólarhring: 9
- Sl. viku: 95
- Frá upphafi: 888607
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 78
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það eru sem sagt engar breytingar að eiga sér stað, sama kyrrstaðan eða öllu heldur sama afturförin sem við þurfum að horfa uppá.
Hvað varð um Sjálfstæðisflokkinn? hann virðist heillum horfinn.
Tómas Ibsen Halldórsson, 14.10.2023 kl. 13:20
Tómas Ibsen - það voru stórtíðindi þegar fjármála og efnahagsráðherra ákveður að stíga til hliðar út embætti til að skapa vinnufríð um að halda m.a áfram að selja Íslandsbanka.
Fyrir Þórdísi Kolbrúnu. v.formann þá er þetta stórt stökk fyrir hana og virðing og traust sem Bjarni Ben sýnir henni með því að skipta hana í þetta stóra embætti.
Óðinn Þórisson, 14.10.2023 kl. 14:26
Það er einmitt þessi Þórdís Kolbrún sem lagði sig alla fram í að framselja löggjafaþing okkar til ESB. Væri það ekki fyrir öfluga og háværar andspyrnu innan flokks og utan væri hún búin að ná sínu í gegn. Þá er hún komin á par við BB sem var tilbúinn að selja okkur vegna Icesave á sínum tíma og var það kommúnistinn ÓRG sem bjargaði okkur þá undan fásinnu stjórnar Jóhönnu og Sjálfstæðisflokksins.
Tómas Ibsen Halldórsson, 14.10.2023 kl. 17:13
Tómas Ibsen - það er alveg skýrt í stefnu Sjálfstæðisflokksins að það er ekki hagur okkar að ganga í esb og þeirri stefnu hefur verið fylgt að nær öllu leyti.
Frá þessari skýru stefnu þá vildi Sjálfstæðisflokkurinn víkja þegar Jóhönnustjórnin var við völd að þjóðin fengi að segja til um hvort farið yrði af stað í aðlögunarviðræður við esb en ríkisstjórn hafnaði þeirri málamiðlun. Svo var það haustið 2012 að Samfylkingin sigldi í strand með aðlögunina og setti málið á ís þar sem það er enn í dag.
Vinnubrögðum Jóhönnustjórnarinnar í Icesave - málinu var hafnað af þjóðinni i´tvígang og það var að miklu leyti til að þakka Sjálfstæðisflokknum að Jóhönnustjórnin fékk anstöðu við að kúa Svavarssamninginn í gegn um þingið.
Óðinn Þórisson, 14.10.2023 kl. 22:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.