Besta aðhaldsaðgerðin fyrir Skattgreiðendur er að loka Rúv

Rúv er risaeðla í íslenskum fjölmiðlum og hindrar þróun og stækkun einkarekinna fjölmiðla.

Þessi risaeðluríkisstofnun hefur blásið út undanfarin ár þegar stjórnvöld og þá sérsaklega með Sjálfstæðisflokkinn i ríkisstjórn hefði átt að a.m.k vinna að þvi að gera Rúv að smástofunun.

Það sem er brýnast að gera núna er að taka út skylduskattinn og taka Rúv af auglýsingamarkaðí.

5 milljarðar á ári í þessa risaeðluríkisstofnun er bilun og væri nær að nota peningana til að bæta t.d heilbrigðiskerfið.


mbl.is Lilja: Rúv þarf að fara í brýnar aðhaldsaðgerðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Sæll Óðinn. Það er löngu orðið tímabært að leggja niður þessa stofnun, stofnun sem gerir ekki mikið annað en að ljúga að almenningi. Þessi óþurftar stofnun hefur ekki komið neinu góðu til leiðar í landi okkar heldur hefur að svo mörgu leiti dreift mörgu illu sem hefur valdið óáreitni í hugum svo margra. BURT með RÚV.

Tómas Ibsen Halldórsson, 27.9.2024 kl. 14:58

2 Smámynd: Óðinn Þórisson

Tómas Ibsen - mín skoðun á fréttastofu Rúv er að hún minnir meira á réttlætisáróðursstofnun sem gengur mjög langt í að verja þær skoðanir sem fréttastofan hefur frekar en það hlutlausa hlutverk sem hún ætti að standa fyrir.

Held að mjög fáir hafi áhuga á því að borga skylduskatt fyrir eitthvað sem þeir hafa engan áhuga á, nota ekki, og svo þetta risaauglýsingabatterí sem rigsugar upp allar auglýsingar t.d í kringum stór íþróttmót.

Sammála það á að loka þessari risaeðlustofnun sem gegnir í dag ekki t.d því öryggishlutverki sem hún gerði 1980. 5 milljarða sparnaður sem væri alltaf betur varið í eitthvað annað.

Óðinn Þórisson, 27.9.2024 kl. 15:21

3 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

RÚV er búið að vera sníkjudýr síðan 1986.  Þá hefði átt að leggja það batterí niður.

Ásgrímur Hartmannsson, 27.9.2024 kl. 21:06

4 Smámynd: Óðinn Þórisson

Ásgrímur - ef rúv yrði lokað myndi það í raun ekki hafa nein neikvæð áhrif, bara jákvæð áhrif fyrir skattgreiðendur og frjálsa fjölmiðla.

Rúv er aðeins til fyrir sjálft sig er bara byrgði á skattgreiðendur.

Óðinn Þórisson, 27.9.2024 kl. 21:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Óðinn Þórisson

Höfundur

Óðinn Þórisson
Óðinn Þórisson

Það hefur aukist hér talsvert skoðanakúgun, hvað fólk má segja og hvað ekki. Ef fólk segir brandara fær það yfir sig holskeflu af gagnrýni frá þeim sem telja sig vera í þeirri stöðu að ákveða hvað má segja og hvað ekki. 

Skoðanakúgun hefst nákvmlega svona, fólk hættir að þora að tjá sig vegna hættu frá fólkinu sem telur sig eiga að ákveða hvað má segja og hvað ekki.

Tjáningarfrelsið skiptir okkur öllu máli , við búum enn í lýðræðisríki þar sem fólk á að hafa leyfi til að hafa sínar skoðanir án þess að vera hundelt fyrir það.

Ég vil verja tjáningarfrelsið og réttarríkið sem við búum í. 

Styð heilshugar baráttu Ísraels.

Frjálslyndur Íhaldsmaður sem telur að öflugt atvinnulíf sé forsenda öflugs velferðakerfis.
Lækka skatta og álögur á fólk sem leiðir til aukins hagvaxtar og það gengur betur hjá öllum

 

Spurt er

Eigum við að draga til baka ESB-aðildarumsóknina
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • Donald Trump 47, forseti BNA mynd, BNA nóv 24
  • Donald Trump 1
  • Ísrael stend með
  • Halldór Jónsson
  • Samfylkingin 2006

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 96
  • Frá upphafi: 888608

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 79
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband