17.10.2024 | 11:30
Jón Gunnarsson alltaf betri valkostur en Þórdís Kolbrún í 2.sætið
Afglöp Þórdísar Kolbrúnar varðandi að slíta stjórnmálasambandi við Rússland hefur sett öryggi okkar lands í hættu.
Bókun 35 sem er beinlínis gegn stefnu Sjálfstæðisflokksins og svo að hafa ekki staðið með fólkinu sínu Norð-vestur kjördæmi þegar VG braut lög með að leyfa ekki hvalveiðar.
Svo má nefna skrautveisluna hennar fyrir Ursulu vinkonu sína í Hörpu 2023 sem kostaði 500 milljónir þar sem hún lagði okkur línurnar í losunum fyrir flug, 2.ár og Þórdís bað ekki einu sinni um frestun á losunarheimildum fyrir skip.
Jón Gunnarsson hefur mikið persónulegt fylgi í Kópavogi, eitt sterkasta vígi flokksins og hefur þegar hann hefur fengið tækifæri sem ráðherra sýnt að hann lætur verkin tala.
Niðurstaða, ef trúnaðarmenn í Suð-vesturkjördæmi velja Þórdísi fram yfir Jón í 2.sætið mun það kosta flokkin mikið fylgi í kjördæminu.
Hundruð munu velja á milli Jóns og Þórdísar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:34 | Facebook
Um bloggið
Óðinn Þórisson
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 4
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 52
- Frá upphafi: 888612
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 42
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þetta er mikilvægt mál, snýst um það hvort Sjálfstæðisflokkurinn heldur áfram að dala með vonlausri stefnu Bjarna um að styðja konur sem hafa gert mistök, sérstaklega Þ. K. R. G. Ýmsir segja að Bjarni og flokksforystan styðji Þórdísi, þar sé einhver ný ásýnd þeim að skapi, kynjakvóti og femínismi. Samt fer það alveg öfugt ofaní bæði landsmenn og sjálfstæðismenn almennt, eins og sést á minnkandi fylgi.
Nú blása nýir vindar sem sést með stækkun Miðflokks og Samfylkingar með breyttar áherzlur. Flokksforystan hefði átt að veðja á Jón Gunnarsson á þennan lista, og hefði átt að segja Þórdísi að vera frá stjórnmálum til að sjá hvort honum gengi vel á listanum.
Held að útstrikanir verði margar á þessum lista. Það er ljóst að bæði eiga þau sína óvildarmenn og fylgismenn líka.
Ég er mjög sammála um fylgistap ef hún verður valin í 2. sætið. Þessi flokkur er að leika sama leik og VG sem er næstum horfinn. Ágætur pistill yfirleitt.
Ingólfur Sigurðsson, 17.10.2024 kl. 14:37
Ingólfur þú ert skolli næmur á framvindu örþreyttra þolenda stjórnarfars landsmanna í meira en 20 ár a.m.k.--þeir ætla að ráða ferðinni hér og bindast pólitískum böndum eða heitstrengjingum þá "hvað þú kýst aldrei aftur"!!!
Helga Kristjánsdóttir, 17.10.2024 kl. 17:01
Þetta eru allt glópar og það þarf að skipta þeim öllum út.
Ásgrímur Hartmannsson, 17.10.2024 kl. 17:30
Ingólfur - það er mitt mat og hve mörg mistök Þórdís hefur gert að hún muni aðeins hafa neikvæð áhrif á fylgi flokksins í suð-vesturkjördæmi.
Svo þarf að hafa í huga mikils persónulegs fylgis Jóns í Kópavogi þá hefur Rósa bæjarstjóri í HFN sagst ætla að bjóða sig fram og auk þess Bryndís sem er mjög sterk í Mos.
Verði niðurstaðan sú að Þórdís fær 2.sætið á silfurfati eins og allt annað hjá flokknum mun Miðflokkurinn njóta góðs af því, ihaldssami armur flokksins mun ekki kjósa einsakling sem vill að esb - log séu æðri en íslensk lög.
Óðinn Þórisson, 17.10.2024 kl. 17:40
Helga - takk fyrir innlitið.
Óðinn Þórisson, 17.10.2024 kl. 17:40
Ásgrímur - á þetta stuttum tíma, 45 dögum er það einfaldlega ómöglegt að hafa prófkjör þar sem fólk fengi tækifæri til að tala við flokksmenn og kynna sig.
Það er líka mjög erfitt að halda trúverðugt prófkjör í suð-vsturkjördæmi eftir að BB breytti listanum hér um árið.
Óðinn Þórisson, 17.10.2024 kl. 17:43
Sammála.Jón Gunnarsson má alls ekki detta út af þingi.Þórdís getur verið í fjórða sætinu í stað Óla Björns.
Guðbjörg Snót Jónsdóttir, 18.10.2024 kl. 11:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.