Er hér komið fordæmi fyrir því að þingmenn geti útvegað íslenskan ríkisborgararétt ?

íslandViðkomandi þingmaður sem hér er kannski að setja þetta vonda fordæmi fyrir alþingsmenn framtíðarinnar og nútíðar að þingmenn geti úthlutað íslenskum ríkisborgararétti í VIP röð.


Ég hefði haldið að hann  ætti skylja manna best eftir að hafa verið í stjórnunarstöðu í Lögreglunni að það eru lög sem gilda á íslandi sem þingmenn eiga ekki að geta trompað.

Þetta poppúlismi að verstu gerð.

 

Ég ætla ekki að minnast á aðkomu hans að því að frelissvipta íslendinga í covid.


mbl.is „Verið velkomin í VIP-röðina“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Grímur Kjartansson

Því miður er Víðir ekki að setja neitt fordæmi
Einstaka þingmenn hafa löngum verið að redda einhverjum ríkisborgararétt
núna síðast reddaði Pírasti meðlimum Pussy Riot íslenskum ríkisborgararétt og þegar RUV hringdi í hana (hún var að sjálfsögðu ekki á Íslandi) þá kom hún eiginlega af fjöllum og mundi varla eftir að hafa sótt um.

Annars þetta fáranlegt fyrirkomulag undirnefndin vinnur álit fyrir Alherjar og menntamálanefnd sem hún samþykkir og leggur fyrir Alþingi og alþingismenn eiga svo bara að samþykkja allan pakkan án nokkura upplýsinga um einstaklingana

Grímur Kjartansson, 4.6.2025 kl. 19:58

2 Smámynd: Óðinn Þórisson

Grímur - ég gerði engar kröfur til Pirata en ég hefði haldið að einstaklingur sem hefði gengt stjórnunarstöðu í lögreglunni myndi virða lög og reglur íslands sem hann vann við að framfylgja.

Það á ekki að vera geðþóttaákvörðun eins þingmanns hvort hinn eða þessi fái íslenskan ríkisbogararétt. 

Sammála það er ótrúlegt að það sé verið að samþykkja ríkisborgarétt fyrir fólk sem enginn veit deili á.

Það þarf klárlega að hafa lögin þannig að ekki sé hægt að fara þessa VIP leið við að veita íslenskan ríksborgararétt.

Óðinn Þórisson, 4.6.2025 kl. 21:36

3 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Ég hlustaði á Guðrúnu formann Sjálfstæðisflokksins í Kastljósinu. Hún var hörð og stóð sig vel á móti Víði. Kannski fer Sjálfstæðisflokkurinn að rísa, hún er allt annað en gufur og rolur á borð við Diljá Mist, Áslaugu Örnu, Bjarna Benediktsson eða Þórdísi Kolbrúnu sem alls ekki stóðu nógu fast á grunngildum flokksins, og Diljá Mist jafnvel lýsir sig sem Evrópusinna!!!

Já, verst er að Sjálfstæðisflokkurinn gróf sína gröf í samstarfi við VG. Flokksmenn gerðir að fíflum og rúnir trausti kjósenda á eftir.

Guðrún formaður á mikið verk framundan. Það sem hún sagði í Kastljósi í gær var spor í rétta átt. Hún er að minnsta kosti harðari á þessu en Bjarni var og minnir á Sigríði Andersen.

Bara ef Sjálfstæðisflokkurinn hefði haft sterkari formann og ákveðnari undanfarin ár.

Ingólfur Sigurðsson, 5.6.2025 kl. 02:00

4 Smámynd: Óðinn Þórisson

Ingólfur - ákvörðun Bjarna Ben um að framlengja stjónarsamtarfið við VG 2021 var verulega vanhugsuð og virtist snúast um persónulegan vinskap Bjarna og Katrínar en ekki pólitík, hugsjónir og stefnu Sjálfstæðisflokkksins.

Guðrún formaður Sjálfstæðisflokksins komst mjög vel frá Kastljós viðtalinu í gær, fór vel yfir stöðuna og var máleffnaleg meðan VIP þingmaður nýrra ríkisborgara leit skelfilega út og spurning hvort eigi ekki að skoða sérstaklega hans aðkomu að málin því þetta var a.m.k. trúnarbort ef ekki logbrot.

Ég hef alltaf haldið mikið upp á Sigríði Andersn og það var rétt ákvörðun hjá henni að yfirgefa Sjálfstæðisflokkinn og ganga til liðs við Miðflokkinn.

Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins hefur nú sumarið eftir að þingi líkur hjá þessari verklausu vondu ríkisstjórn að undirbúa flokkinn fyrir sveitarstjórnarkosningar næsta vor.

Óðinn Þórisson, 5.6.2025 kl. 07:37

5 Smámynd: Óðinn Þórisson

05.07.25 "Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur segir að Víðir Reynisson, þingmaður Samfylkingarinnar og formaður allsherjarnefndar, hafi brotið stjórnsýslureglur með afskiptum sínum af máli Oscars. Hann segir að málið sé enn eitt dæmið um að þingmenn kaupi sér vinsældir með lögbrotum."

Óðinn Þórisson, 5.6.2025 kl. 07:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Óðinn Þórisson

Höfundur

Óðinn Þórisson
Óðinn Þórisson

Það hefur aukist hér talsvert skoðanakúgun, hvað fólk má segja og hvað ekki. Ef fólk segir brandara fær það yfir sig holskeflu af gagnrýni frá þeim sem telja sig vera í þeirri stöðu að ákveða hvað má segja og hvað ekki. 

Skoðanakúgun hefst nákvmlega svona, fólk hættir að þora að tjá sig vegna hættu frá fólkinu sem telur sig eiga að ákveða hvað má segja og hvað ekki.

Tjáningarfrelsið skiptir okkur öllu máli , við búum enn í lýðræðisríki þar sem fólk á að hafa leyfi til að hafa sínar skoðanir án þess að vera hundelt fyrir það.

Ég vil verja tjáningarfrelsið og réttarríkið sem við búum í. 

Styð heilshugar baráttu Ísraels.

Frjálslyndur Íhaldsmaður sem telur að öflugt atvinnulíf sé forsenda öflugs velferðakerfis.
Lækka skatta og álögur á fólk sem leiðir til aukins hagvaxtar og það gengur betur hjá öllum

 

Spurt er

Eigum við að draga til baka ESB-aðildarumsóknina
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Úkraína
  • Donald Trump 47, forseti BNA mynd, BNA nóv 24
  • Donald Trump 1
  • Ísrael stend með
  • Halldór Jónsson

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.6.): 5
  • Sl. sólarhring: 64
  • Sl. viku: 633
  • Frá upphafi: 901165

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 510
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband