27.2.2009 | 07:45
Ný skoðanakönnun
Skoðanakannanir eru ákveðin vísbending um hvernig staðan er en mikilvægt að taka þær með ákveðnum fyrirvara.
Það er ákveðin hætta á því að sf&vg ná hér hreinum meirihluta eftir kosningar en auðvitað vonar maður að sú skelfilega staða komi ekki upp.
Þetta verður mikil brekka fyrir FF sem virðist vera sprunginn í tætlur og lykilfólk farið úr honum - mín spá að hann nái ekki inn manni.
Framsókn er að sýna okkur þessa dagana að hann er galopinn í báða enda og ætlar í stjórn hvort sem það er til hægri eða vinstri.
Sjálfstæðisflokkurinn er aðeins að bæta við sig en þarf að gera betur og skerpa áherslur og landsfundur mun að sjálfsögðu hafa úrslitaáhrif á hvernig hann kemur undirbúinn til kosninga.
Sjálfstæðisflokkurinn er að margra mati eini valmöguleikinn að við fáum hér ekki vinstristjórn eftir kosningar og því mikilvægt að fólk átti sig á því.
´
Það er mikilvægt fyrir Sjálfstæðisflokkinn að maður eins og Illugi Gunnarsson fái mjóg góða kosningu í 1.sætið í Reykjavík og ég skora hér með á Sjálfstæðisfólk í Reykjavík að setja Illuga í 1.sæti.
![]() |
Ríkisstjórnin fengi meirihluta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Óðinn Þórisson
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.6.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 200
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 178
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.