29.6.2009 | 09:03
Mín skoðun og í kaupbæti Samfylkingarbrandari
Þessir kappar taka sína ákvörðun hvort þeir víki eða ekki - trurflar mig EKKI
Svo er það SAMFYLKINGARBRANDARINN -
Árið er 2012
Palli litli spurði pabba sinn -
hvað er hægt að koma mörgum SF-mönnum inn í einn Wolksvagen Bjöllu -
Pappi Palla svarði - engum
Palli litli undrandi - nú
Þeir eru allir 3 fyrir utan ESB að banka -
Hleypið okkur inn
Hleypið okkur inn HÉR ÁTTU AÐ HLÆGJA EF ÞÉR FANNST ÞETTA FYNDIÐ
Auðvitað er þetta lélegur brandari - við hverju bjóstu þetta er Samfylkingarbrandari.
Vilja ekki tjá sig um póstinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Óðinn Þórisson
Spurt er
Eigum við að draga til baka ESB-aðildarumsóknina
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 3
- Sl. sólarhring: 9
- Sl. viku: 95
- Frá upphafi: 888607
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 78
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sem Samfylkingarmaður þá verð ég að senda þér Sjálfstæðisbrandara á móti. Hann var í Morgunblaðinu í morgun, glænýr.
Grétar H. Óskarsson, sjálfstæðismaður í hálfa öld, skrifar:
Þér hafið brugðist vonum vorum
STEFNA Sjálfstæðisflokksins hefur alltaf verið skýr, en hin síðari ár hafa misvitrir leiðtogar okkar rústað fylgi flokksins stórlega og brugðist í að framfylgja þeim stefnumiðum sem hann hefur alla tíð staðið fyrir. Varaformaður Sjálfstæðisflokksins, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, orðar þetta nokkuð skýrt: »Það er hins vegar ljóst að vinnubrögðin og aðferðafræði síðustu ára við að útfæra stefnuna var röng. Okkur bar af leið. Það er því frekar þannig að við höfum brugðist hugmyndafræðinni! - Það má segja að við höfum sofnað á verðinum og ræktuðum ekki þau grunngildi sem við ætluðum okkur að byggja á. Við fjarlægðumst grunninn okkar og gleymdum okkur í látunum.«
Eins og málin koma mér fyrir sjónir þá eru helstu ávirðingar forystumanna Sjálfstæðisflokksins þessar: Algert siðleysi, jafnvel glæpsamlegt atferli, að lýsa yfir stuðningi Íslands við innrás í Írak að þingi og þjóð forspurðum.
Algert siðleysi að gefa fáum útvöldum útgerðarmönnum auðlindir þjóðarinnar í sjónum og auk þess mannréttindabrot samkvæmt úrskurði Mannréttindadómstólsins. Algert siðleysi og atlaga að fjárhagslegu sjálfstæði landsins að nota stöðu seðlabankastjóra til þess að umbuna uppgjafa stjórnmála-mönnum, í stað þess að velja hæfasta umsækjandann hverju sinni eftir skýrum reglum um þekkingu, menntun og færni.
Algert siðleysi að skipa ráðherra út frá pólitískum sjónarmiðum en ekki með tilliti til hæfni og kunnáttu á þeim sérsviðum sem þeir bera ábyrgð á. Nýlegt dæmi er dýralæknir í stöðu fjármálaráðherra.
Algert siðleysi var að skipa son forsætisráðherra og formanns Sjálfstæðisflokksins í dómaraembætti þótt hann væri alls ekki sá hæfasti eða sá sem sérstaklega tilskipuð valnefnd mælti með.
Algert siðleysi að taka við 30 milljóna króna styrk af FL Group og Landsbankanum á sama tíma og Sjálfstæðisflokkurinn hafði staðið fyrir lögum um hámarksframlög til stjórnmálaflokka og þau höfðu þá þegar verið samþykkt á Alþingi.
Siðlaus metnaðargirni, fáviska og mikill fjáraustur við að reyna að komast í Öryggisráð SÞ.
Einkavæðing bankanna var með endemum og algert klúður og leiddi að lokum til hruns þeirra allra á kostnað þjóðarinnar. Ráðaleysi, ákvarðanafælni, andvaraleysi, getuleysi og skortur á manndómi til þess að takast á við vandamálin þegar bankarnir hrundu.
Kjörnir forystumenn Sjálfstæðisflokksins síðustu fjölmörg ár: Þér hafið brugðist vonum vorum.
Nú mátt þú hætta að hlæja eða gráta.
Með bestu kveðju. HH
Hjálmtýr V Heiðdal, 29.6.2009 kl. 09:27
Hjálmtýr
Hversvegna vill SF ekki leyfa þjóðinni að kjósa um Icesave samninginn ?
Hversvegna vill SF ekki leyfa þjóðinni að kjósa um það hvort farið verði í viðræður um aðild að ESB ?
Hvað finnst þér um árás ríkisstjórnarinnar á ellilífeyrisþega og öryrkja ?
Eftir bankahrunið var okkur sagt að það mætti ekki verða stjórnarskipti, það myndi lengja vandann - hvað gerðist margklofinn stjórnmálaflokkur Samfylkingin sprakk í loft upp - treysti sér EKKI í verkefnið - EN talar mikið um hvað þetta er allt rosalega erfitt -
Hvar er skjaldborgin um heimilin - hún er ekki enn komin EN breyttist í " GJALDBORG " um heimilin
Svo þetta IceSlave - Ólína Þorvarðardóttir sagði í þætti á INN að hún ætlaði að GREIÐA atkvæði MEÐ SAMNINGNUM án þess að hafa lesið hann -
Svo dettur ykkur í huga að senda gamlan afdánkaðan komma úr alþýðubandalaginu til að leiða samninganefndina - OG útkoman - jú heil hörmung -
Þið talið um fagmennsku og gegnsæi - NEI staðreyndin er sú að ÞAÐ ER ENGIN FAGMENNSKA OG EKKERT GEGNSÆI -
Læt þetta duga í bili -
Með bestu kveðju. -
Óðinn Þórisson, 29.6.2009 kl. 15:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.