13.9.2009 | 09:56
Er Bhr. fasísk hreyfing ?
Hvað er þarna í gangi ?
" fasískar tillögur sem setja eiga bæði þinghóp og alla félaga hreyfingarinnar undir dóm, ef svo ber undir."
" fasískar tillögur sem setja eiga bæði þinghóp og alla félaga hreyfingarinnar undir dóm, ef svo ber undir."
Þingmenn Borgarahreyfingarinnar gagnrýndir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:58 | Facebook
Um bloggið
Óðinn Þórisson
Spurt er
Eigum við að draga til baka ESB-aðildarumsóknina
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (3.12.): 222
- Sl. sólarhring: 223
- Sl. viku: 421
- Frá upphafi: 889318
Annað
- Innlit í dag: 154
- Innlit sl. viku: 332
- Gestir í dag: 146
- IP-tölur í dag: 146
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þetta er bara ekki sannleikur.Þessar hugmyndir voru teknar út ad samþykktunum með breitingartillögum.Þingmennirnir vildu ekki taka þátt í því.
Árni Björn Guðjónsson, 13.9.2009 kl. 10:20
Þetta er rangt og er kvittur sem komst á kreik eftir að Baldvin Jónsson bloggaði nokkrum mínútum eftir að valið var á milli tillagna þingmanna BH (og baldvins varaþingmanns) og vinnuhóps félagsmanna að samþykktum félagsins. Á þeim tímapunkti var ekki búið að gera eða breytingartillögur, ræða þær eða afgreiða!
Baldvin var tapsár og ætti að vanda sig betur áður en hann bloggar.
Grein sú sem Baldvin lagði útat hljómar svo í endanlegri útgáfu:
Þetta er nú allur fasisminn. Þetta á bara við um það sem kveðið er á um í hinni stuttu og almennt orðuðu stefnuskrá. Þeir hafa því algert málefnalegt frelsi í öllum öðrum málum. Það er nú aldeilis fasimi. Enginn dómur bara bera málið undir félagsfund, EF ÞAÐ ER MÖGULEGT
Sævar Finnbogason, 13.9.2009 kl. 17:09
Reyndar var þessi yfirlýsing ekki hluti af blogginu hjá mér, heldur eitthvað sem ég segi í athugasemd þar við stuttu síðar sem svar við annarri athugasemd þar.
Ég var sár, svo sannarlega Sævar, en ekki tapsár. Ég var yfir mig sár að tillögur með slíkum gríðarlegum valdbeitingar greinum skyldi verða samþykkt. Þetta snýst ekki um að fundinum tókst sem betur fer að breyta því, þetta snýst um að meirihluti (þótt fjölmargir hafi ekki haft hugmynd um hvað þeir voru að kjósa eða áhuga á því strax á eftir) kaus með því að setja hreyfingunni vald yfir félagsmönnum. Hvaðan kom sú hugmyndafræði?
Jú hún kom úr gremju. Uppsafnaðri gremju fárra vegna þess að þingmennirnir eru ekki alltaf sammála þeim.
Nýju tillögurnar hafa marg gott með sér, eftir miklar breytingar á fundinum, en mörkuðu engu að síður leiðina. Leiðina frá þeirri hugmyndafræði, að mínu mati, sem að lagt var upp með.
Baldvin Jónsson, 13.9.2009 kl. 19:45
Sæll Baldvin
Ég ætlaði ekki að vera hvass í þinn garð, þú ert tilfinningamaður og það er eitt af því sem gerir þig svo skemmtilegan náunga. En þú sast yfir því að laga "to the bitter end" þrátt fyrir að hafa stutt B, enda lýðræðissinni og lýðveldisbyltingarmaður í byrjun og ég held að okkur hafi tekist að laga þetta all mikið.
Hafðu það sem allra best og við sjáumst vonandi sem fyrst.
Sævar Finnbogason, 14.9.2009 kl. 00:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.