Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Það virðist vera svo að margir hjúkrunarfræðingar sæki frekar í að starfa sem flugfreyjur/þjónar en að starfa við það sem viðkomandi fór í háskóla til að læra, þ.e hjúkrunrfræði.
Hversvegna, svarið er mjög einfalt flugfélögn borga einfaldlega mun betur en LSH og þessu verður að breyta.
Stærsta verkefnið framundan er að hækka laun hjúkrunarfræðinga og einnig sjúkraliða því þetta fólk er að vinna ótrúlega erfið störf sem reynir ótrúlega mikið á ekki bara líkamlegan styrk heldur líka andlegan styrk.
Deildarhjúkrunarfræðingur 11 e krabbameinsdeild var í viðtali í kvöldfréttum Rúv í vikunni og sagði hún að hún gæti bættt við þremur hjúkrunarfræðingum en enginn sækir um , þarna liggur mikið af okkar veikasta fólki og hjúkrunarfræðingar verða einfaldlega að vera á samkeppnishæfum launum við t.d flugfreyj/þjóna starfið.
![]() |
Heilbrigðismálin í forgang |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.7.2016 | 07:51
Páll Magnússon EKKI í framboð fyrir Pírata.
Það kæmi mér mjög á óvart ef Páll Magnússon myndi fara í framboð fyrir Pírata þar sem hann er ekki anarkisti og er ekki trúleysingi.
![]() |
Páll Magnússon íhugar framboð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.7.2016 | 07:32
Lélegur fjögra flokka meirihluti í Reykjavík
Því miður er að svo að borgarstjórnarmeirithluti Pírata, VG, Bjartar Framtíðar undir stjórn Dags B. og Samfylkingarinnar hefur staðið sig vægast sagt mjög illa.
Skuldastaða Reykjavíkurborgar er skelfileg, gæluverkefni eins og t.d 170 milljónir í að þrengja Grensásveg og á meðan er grunnþjónustu ekki sinnt eins og t.d heitur matur um helgar til eldri borgurm.
Ég ætla að sleppa því að ræða ónýtar götur Reykjavíkurbogar eða reiðhjólasósíalsimann sem keyrður er áfram af þessu fólki eða hvað þá " lýðræðisástina " þegar kemur að Reykjavíkurflugvelli.
![]() |
Getur verið meira en fullt starf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.7.2016 | 07:32
Lélegt hjá borgarstjórnarmeirihlutanum
"Ófært er fyrir fólk í hjólastól. Ég sé hópa útlendinga hinum megin við Klapparstíg á leið til mín. Svo snúa þeir bara við af því að aðgengið er ekkert,"
Þetta er í samræmi við önnur vinnubrögð borgarstjórnarmeirihlutans sem virðist fyrirmunað að gera eitthvað rétt.
![]() |
Þetta hefur verið hryllingur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.7.2016 | 13:29
Á fólk að versla við Kost ? - svarti listinn
Svarti listinn
"Sandkassinn mælir með að þjónusta Útvarps Sögu verði sniðgengin. Mælt er með því að fólk kaupi ekki auglýsingar á Útvarpi Sögu. Mælt er með því að fólk sniðgangi þau fyrirtæki sem auglýsa vörur og þjónustu á stöðinni."
Þetta minnir mjög svo á Ísralelsmál borgarstjórnarmeirihlutans á síðasta ári.
Stöndum vörð um tjáningar og skoðanafrelsið.
Ég hef verslað við Kost og mun halda áfram að gera það hvort sem þeir auglýsa eða auglýsa ekki á Útvarpi Sögu enda er KOSTUR frábær verslun.
![]() |
Gagnrýnir aðförina að Útvarpi Sögu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.7.2016 | 09:14
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins segi NEI við nýjum búvörusamning
Ef frá er skilinn lítill hópur þá virðist vera almenn óánægja með nýja búvörusaminginn.
Gunnar Bragi hefur sagt að það komi ekki til greyna að breyta honum.
Ég skora hér með á þingmenn Sjálfstæðisflokksins að segja NEI við nýja búrvörusamningi Framsóknar.
![]() |
Ungir bændur ósáttir með samning |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.6.2016 | 16:47
Ósigur landsbyggðarinnar og flugöryggis
Þetta er vond niðurstaða fyrir landsbyggðina og flugöryggi íslands sem er eyja.
Vissulega hefur Dagur B. verið flugvallarandstæðingur nr.1 og veit að þessi niðurstaða er banabiti Reykjavíkurflugvallar en einnig verður að gagnrýna Knnattspyrnufélagið Val fyrir að taka þátt í innanríkisdeilu á þennan hátt.
Það verður bara að koma í ljós hve mikil áhrif lokun neyðarbrautarinnar mun hafa á sjúkraflug og innanlandsflug.
Dagur B. er a.m.k búinn að marka sín spor sem borgarstjóri og það ekki á góðan hátt.
![]() |
Dagur: Niðurstaðan fullnaðarsigur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.6.2016 | 17:52
Píratar samir við sig taka ekki afstöðu
Ekkert nýtt hér, Píratar þora ekki að taka afsöðu til mála, hvað gerist ef þessi flokkur kemst i ríkisstjorn ?
![]() |
Sagði sjö mínútur ekki nóg |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.6.2016 | 15:41
Pólitískur andstæðingur Oddnýjar Harðardóttur kveður
Það er alger grundvarllarmunur á annarsvegar Sjálfstæðisflokknum hinsvegar hinum tæru vinstri - flokknum Samfylkingunni og VG.
Það er vissulega eftirsjá af Hönnu Birnu af hinu pólitíska sviði en hún hefur verið öflugur liðsmaður í hinni pólitísku baráttu gegn Oddný Harðardóttur og öðrum vinstri mönnum.
Sjálfstæðisflokkurinn
stétt með stétt
![]() |
Hanna Birna gefur ekki kost á sér |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.6.2016 | 12:25
Svik og klúður Samfylkingarinnar í ESB - málinu
Það voru beinlínis svik og verið að ganga framhjá þjóðinni að hefja aðildarviðræður við ESB án þess að þjóðin fengi að koma að því.
Það var skýrt loforð Samfylkingarinnar að aðildarsamingur yrði lagður fyrir þjóðina, stað þess að klára málið setti ríkisstjórn Jóhönnu aðildarsaminginn á ÍS.
Hvort Samfylkining sé í dag búin að biðjast afökunar á því að hafa sniðgengið þjóðna skiptir það nákvæmlega engu máli, staðreyndirnar blasa við.
Samfylkingin fékk tækifæri á síðasta kjörímabili til að leyfa þjóðinni að koma að ESB - umsókninni en í þau 3 skipti sem flokkurinn fékk tækifæri til þess var niðurstaðan alltaf NEI við þjóðina.
Það er enginn aðlidarsamingur við ESB í boði, aðeins að Ísland aðlagi sín lög og reglur að ESB.
![]() |
Stefnir enn á ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Óðinn Þórisson
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.9.): 3
- Sl. sólarhring: 137
- Sl. viku: 507
- Frá upphafi: 909738
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 464
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar