Steingrímur á endastöð með klofinn flokk

vgÞað má segja að hjásetja þeirra Ásmundar Einars, Atla Gíslasonar og Lilju Mósesdóttur þingmanna vg í atkvæðagreiðslunni um fjárlagafrumvarpið sé annarsvegar mikið áfall fyrir Steingrím J og hinsvegar stuðningur við stefnu flokksins í evrópumálum.
Það er alveg klárt að þingflokkurinn að aðskildum þeim 3 endurspegli ekki grasrót flokksins og vekur það enga undrun að Árni Þór Sigurðsson strengjabrúða Steingríms lýsi yfir óánægju með hjásetu þeirra við atkvæðagreiðsluna.
Það er alveg ljóst að ríkisstórnin er verulega löskuð eftir þetta og það er alveg rétt það sem haft er eftir þingmanni SF sem lítur ekki á þau 3 lengur sem stjórnarþingmenn og eflaust óánægur með að þau hafi fylgt samfæringu sinni en það er ekki í boði í SF þar sem flokksaginn og foryngjadýrkunin er algjör en það er eitt af því sem Lilja Mósesdóttir hefur gagnrýnt mjög innan vg. 
Getur Steingrímur starfað áfram sem formaður, verður hann ekki að víkja ef á ná sátt aftur í flokknum og verður hann ekki að gera grein fyrir vinnubröðgum sínum að hafa sett til hliðar stefnu og hugsjónir flokksins fyrir völd -
mbl.is Hefnd fyrir Evrópumálin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: corvus corax

Þingmennirnir þrír sem neituðu að hlýða fyrirmælum formannsins af því að það stríddi gegn þeirra eigin sannfæringu, hafa kjark og þor til að standa á sínu. Það eru þá a.m.k. þrír þingmenn með viti (ennþá) á alþingi. Hinir 60 þurfa að hugsa sinn gang.

corvus corax, 17.12.2010 kl. 07:52

2 Smámynd: Óskar Guðmundsson

Formaðurinn með lofið "fokk", endar með klofinn flokk

Óskar Guðmundsson, 17.12.2010 kl. 09:20

3 Smámynd: Jón Sveinsson

Að sitja hjá er ekki afstaða það er ákvörðunarfælni og það á ekki að vera slíkt fólk á þingi að sitja hjá er dautt atkvæði, ef þér líkar ekki hvernig farið er að málum þá segir þú nei ekki mér er alveg sama.

Jón Sveinsson, 17.12.2010 kl. 09:35

4 Smámynd: Óðinn Þórisson

Takk fyrir commentin
corvus corax - sammála það mættu margir þingmenn taka þau sér til fyrirmyndar
Óskar - klofinn er hann en Steingrímur er ekki maðurinn til leyða grasrótina til sátta við flokksforystuna
Jón - það er hefð fyrir því að sitja hjá en það er hefð sem kominn er tími á að brjóta - menn eiga að sjálfsögðu að taka afstöðu

Óðinn Þórisson, 17.12.2010 kl. 09:45

5 Smámynd: Elle_

Ég skil ekkert í þeim að segja ekki NEI ef þau voru á móti.  Og voru þau þá að fylgja sannfæringu sinni?  Vissulega er það samt afstaða að sitja hjá, það lýsir vanþóknun, en ekki nógu sterk afstaða fyrir stjórnmálamann að mínum dómi í alvarlegu máli.  Get ekki verið sammála að þau 3 séu sterkir stjórnmálamenn, Lilja Mósesd. og Ögmundur ein allra í stjórnarflokkunum sögðu NEI við ICESAVE, Atli og Ásmundur sögðu JÁ og það gleymist aldrei.  Nú sjáum við hverjir hleypa ICESAVE-FJÁRKÚGUNINNI í gegn og þeir verða búnir í stjórnmálum.  

Elle_, 17.12.2010 kl. 11:02

6 Smámynd: Óðinn Þórisson

Elle -  var það sannfæring þeirra að sitja hjá - það geta þau bara ein svarað. En vissulega sögðu atli og ásmundur já við icesave - og það hefur skaðað þá verulega - og jú nú sjáum við hvort ögmundur muni ekki segja já vegna stólsins

Óðinn Þórisson, 17.12.2010 kl. 17:24

7 Smámynd: Elle_

Óðinn, já, spurningin mín var vangavelta og það er satt að þau ein geti svarað. 

Elle_, 17.12.2010 kl. 17:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Óðinn Þórisson

Höfundur

Óðinn Þórisson
Óðinn Þórisson

Það hefur aukist hér talsvert skoðanakúgun, hvað fólk má segja og hvað ekki. Ef fólk segir brandara fær það yfir sig holskeflu af gagnrýni frá þeim sem telja sig vera í þeirri stöðu að ákveða hvað má segja og hvað ekki. 

Skoðanakúgun hefst nákvmlega svona, fólk hættir að þora að tjá sig vegna hættu frá fólkinu sem telur sig eiga að ákveða hvað má segja og hvað ekki.

Tjáningarfrelsið skiptir okkur öllu máli , við búum enn í lýðræðisríki þar sem fólk á að hafa leyfi til að hafa sínar skoðanir án þess að vera hundelt fyrir það.

Ég vil verja tjáningarfrelsið og réttarríkið sem við búum í. 

Styð heilshugar baráttu Ísraels.

Frjálslyndur Íhaldsmaður sem telur að öflugt atvinnulíf sé forsenda öflugs velferðakerfis.
Lækka skatta og álögur á fólk sem leiðir til aukins hagvaxtar og það gengur betur hjá öllum

 

Spurt er

Eigum við að draga til baka ESB-aðildarumsóknina
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Ísrael stend með
  • Halldór Jónsson
  • Samfylkingin 2006
  • Flagg Ukrainu
  • karen elísabet

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 11
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 318
  • Frá upphafi: 870036

Annað

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 222
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband