3.2.2012 | 18:38
Hver er staða Guðríðar ?
Það er rétt að velta aðeins fyrir sér pólitískri framtíð Guðríðar Arnardóttur oddvita Samfylkingarinnar hér í Kópavogi.
Varla hefur Jóhanna verið ánægð með það að hafa tapað Kópavogi til höfuðandstæðings flokksins sem hún er nýbúin að halda hatursræðu um á síðasta fundi Samfylkingarinnar.
Hvað gerir Jóhanna, Árni Páll og Kristján Möller voru sviptir sínum embættum og nú er spurning hvort hún muni í bakvið tjöldin grafa undan henni og Guðríður verið hætt í stjórnmálum áður en langt um líður eða mun hún einfaldelga hætta og gefast upp eins og Þórunn.
Ægivald Jóhönnu yfir sínu fólki er algjört og minnir um margt á kúgun og yfirgang gömlu Sóvétleiðtoganna.
Erum að sigla í rétta átt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Óðinn Þórisson
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 48
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 39
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Held að þú ofmetir algjörlega völd Jóhönnu! Og auk þess get ég frætt þig á því að Guðríður nýtur stuðning innan Samfylkingar enda var það Hjálmar sem hljóp út úr meirihluta sem og að Guðríður sýndi staðfestu að halda bandalagi við Vg þrátt fyrir gylliboð um annað. Hvernig sem allt þróast hjá henni þá verður það ekki Samfylkingin sem ýtir henni út. Það yrði þá hún sjálf sem myndi hætta.
Enda er Guðríður ákveðin, rökföst og á gott með að vinna með samherjum. Hún hefur mátt þola áróður Gunnars Birgissonar og fleiri um að hún sé einhver gribba og eiginhagmuna potari en það sem ég þekki til þá er þetta bull og leiðiinlegt að þetta hafi náð að sá sér út til fólks sem þekkir hana ekkert.
Magnús Helgi Björgvinsson, 3.2.2012 kl. 19:20
Magnús - það velkist enginn í vafa um hver stjórnar sf og nú síðast hótaði hún nánast Ragnheiði Ástu sviptingu forsetastóls alþingis fyrir að hafa leyft að þingmál var tekið inn í þingið vegna þess að það huggnaðist henni ekki.
Það er hægt að beita fólki þrýstingi til að hætta og það kann að verað að Guðríður njóti trausts inn flokkfélags sf - hér í Kóp en það skiptir engu máli þegar kemur að vilja Jóhönnu.
Guðríður hefur staðið í stríði við Gunnar og sumir segja við hans fjölskyldu um árabil þannig að skyljanlegt hversvegna hann er ekki æstur að vinna með henni.
Það hefur verið ákveðin sátt að halda fjölskyldum stjórnmálamenn utan við dægurþrasið - hefur Guðríður gert það ?
Óðinn Þórisson, 3.2.2012 kl. 21:13
Sæll Óðinn það er eins og mig minnir að ég hafi lesið það að það sem gerði útslagið hjá Hjálmari var að skilyrðið fyrir samvinnu frá samfylkingarfólkinu var að Guðríður yrði fyrir fram ákveðin næsti Bæjarstjóri...
Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 3.2.2012 kl. 21:29
Ingibjörg - sf hefur alltaf frá upphafi gert þessa kröfu við litlar undirtektir t.d x-kóp.
Hjálmar staðfesti þetta um daginn að skilyrði fyrir viðræðum nú við hann væri að Guðríður fengi bæjarstjórastólinn en Hjálmar sagði NEI.
Var það ekki valdagræðgi Guðríður sem leiddi fyrst og fremst til að meirihlutinn sprakk ?
Óðinn Þórisson, 4.2.2012 kl. 09:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.