Árni Páll kristinnar trúar og ályktun ungra jafnaðarmanna

14.04.2014 Ályktun Ungra jafnaðarmanna vegna ummæla Árna Páls Árnasonar í þættinum “Mín skoðun” þann 13.apríl

Ungir jafnaðarmenn vilja í ljósi ummæla Árna Páls Árnasonar um samfylgd ríkis og kirkju, í þættinum ,,Mín skoðun” þann 13.apríl, vekja sérstaka athygli á að stefna Ungra jafnaðarmanna í þeim efnum er að ríki og kirkja eigi að vera aðskilin.

Ungir jafnaðarmenn telja það vera mikla tímaskekkju á 21.öldinni að eitt trúfélag hafi lögformlega æðri stöðu í samfélaginu umfram önnur. Það er stefna og markmið Ungra jafnaðarmanna að skapa samfélag þar sem stjórnarskrá okkar hyglir ekki einu trúfélagi framar öðru.

Skora Ungir jafnaðarmenn á Samfylkinguna að samþykkja ályktun um aðskilnað ríkis og kirkju á næsta landsfundi sínum. Hefja þarf þá vegferð að færa þá mikilvægu grunnþjónustu sem Þjóðkirkjan veitir úr höndum trúfélags og til ríkisins að fullu. Vilja Ungir jafnaðarmenn að flokkurinn sýni að hann sé flokkur jafnréttis þegar kemur að trúmálum.Telja Ungir jafnaðarmenn að raunverulegu jafnrétti í trúmálum verði ekki komið á fyrr en ríki og kirkja hafa verið að fullu aðskilin.

Ísland hefur á síðustu áratugum orðið meira og meira fjölmenningarsamfélag þar sem fólk af öllum menningarheimum og trúarbrögðum kemur saman og það að hafa þjóðkirkju er ekki í takt við þær samfélagsbreytingar.

„Ég er í þjóðkirkjunni og mikill talsmaður þjóðkirkjunnar.“
Árni Páll Árnason




mbl.is Ekki endilega góð en skiljanleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristbjörn Árnason

Sæll Óðinn, þessi uppreisn ungs fólks gegn þjóðkirkunni er meðal ungs fólks í öllum stjórnmálahreyfingum. Vendipunkturinn er auðvitað atferli Ólafs Skúlasonar þegar hann var biskup. Því miður að þá er þetta staðan og þjóðkirkjunni hefur ekki tekist að snúa þessari þróun við.

Ég fór í kaffiboð hjá VR á uppstigningardag í Hörpu og þar var Egill Ólafsson m.a. skemmtikrafta. Hann notaði tækifærið að tala gegn þjóðkirkjunni. Þetta er að verða einhver tíska. 

kveðja

Kristbjörn Árnason, 7.5.2016 kl. 14:39

2 Smámynd: Óðinn Þórisson

Kristbjörn - ég held að þetta sé tímabil sem við erum að fara í gegnum og þú orðar það, tíska og m.a útvarpsþáttur á x - inu sem gerir út á að tala gegn kristinni trú og þjóðkirkjunni.

Þegar einsaklingar lenda í erfiðleikum veikindum o.s.frv  þá leitar fólk oftast til trúarinnar, kannski er það bara kúl i augnablikinu að vera gegn þjóðkirkjunni og kristinni trú.

Málið sem þú vísar í varðandi fyrrv. biskup var ekki til að hjálpa kirkjunni og vissulega þarf kirkjan að taka sér tak.

Óðinn Þórisson, 7.5.2016 kl. 15:14

3 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Trúað fólk getur eftir sem áður leitað í trúnna ef eitthvað bjátar á óháð því hvort við aðskiljun ríki og kirkju eða ekki. En fólk sem er ekki trúað leitar eðli málsins samkvæmt ekki í trúnna þegar eitthvað bjátar á og það á rétt á sömu þjónustu frá hinu opinbera og því er það tímaskekkja að vera með opinbera þjónustu til þeirra sem lenda í áföllum í formi presta. Fólk getur sjálft leitað til prestanna ef það telur það hjálpa sér meira en þjónusta sálfræðinga eða sérfræðinga í áfallahjálp. 

Það eru 6 prestar en engin sálfræðingur á Vestfjörðum. Er það eðlilegt?

Sigurður M Grétarsson, 7.5.2016 kl. 17:37

4 Smámynd: Óðinn Þórisson

Sigurður M - umræðan um aðskilað ríkis og kirkju á fullan rétt á sér og þegar/ef af því verður er alveg ljóst að margt um breytast sem ég held að menn geri sér ekki alveg grein fyrir.

Vill það fólk sem talar fyrir þessum aðskilaði loka kirkjum fyrir sjálfu sér, hvað með útfarir, hvar eiga þær að fara fram, þ.e ef kirkjur verði í raun reknar af því fólki/safnarmeðlimum sem borga rekstur þeirra, ekki getur fólk sem borgar ekki ætlast til þess að fá aðgang að kirkjum landsins.

Óðinn Þórisson, 7.5.2016 kl. 18:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Óðinn Þórisson

Höfundur

Óðinn Þórisson
Óðinn Þórisson

Það hefur aukist hér talsvert skoðanakúgun, hvað fólk má segja og hvað ekki. Ef fólk segir brandara fær það yfir sig holskeflu af gagnrýni frá þeim sem telja sig vera í þeirri stöðu að ákveða hvað má segja og hvað ekki. 

Skoðanakúgun hefst nákvmlega svona, fólk hættir að þora að tjá sig vegna hættu frá fólkinu sem telur sig eiga að ákveða hvað má segja og hvað ekki.

Tjáningarfrelsið skiptir okkur öllu máli , við búum enn í lýðræðisríki þar sem fólk á að hafa leyfi til að hafa sínar skoðanir án þess að vera hundelt fyrir það.

Ég vil verja tjáningarfrelsið og réttarríkið sem við búum í. 

Styð heilshugar baráttu Ísraels.

Frjálslyndur Íhaldsmaður sem telur að öflugt atvinnulíf sé forsenda öflugs velferðakerfis.
Lækka skatta og álögur á fólk sem leiðir til aukins hagvaxtar og það gengur betur hjá öllum

 

Spurt er

Eigum við að draga til baka ESB-aðildarumsóknina
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Ísrael stend með
  • Halldór Jónsson
  • Samfylkingin 2006
  • Flagg Ukrainu
  • karen elísabet

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 22
  • Sl. sólarhring: 30
  • Sl. viku: 307
  • Frá upphafi: 871769

Annað

  • Innlit í dag: 19
  • Innlit sl. viku: 219
  • Gestir í dag: 16
  • IP-tölur í dag: 15

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband