18.9.2016 | 14:24
Hr. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Allt frá Rúv - aðförunni hefur Sigmundur Davíð átt undir högg að sækja en hefur nú nánst unnið stórsigur á öflum innan flokksins, pólitískum andstæðingum og ekki sýst á Rúv.
Það verður gott að hafa hann með í baráttu borgalegu aflanna í þessu landi gegn vinstri - flokkunum.
Vinsti mönnum hlakkar ekki til baráttunnar við SDG sem kemur núna tvíefldur til baka eftir Rúv - aðförina.
Hlakka til kosninganna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Óðinn Þórisson
Spurt er
Eigum við að draga til baka ESB-aðildarumsóknina
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 4
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 96
- Frá upphafi: 888608
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 79
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hvaða RUV aðför ert þú að tala um Óðinn? Varla ertu að mæla með því að það hefði átt að þegja um Wintris málið? SDG gróf sína eigin gröf, það var engin sem hjálpaði honum til þess verkefnis, hann sá um það alfarið sjálfur!
Jónas Ómar Snorrason, 18.9.2016 kl. 17:00
Jónas Ómar - þetta var pólitískt skot úr laumsátri hjá fréttastofu Rúv. SDG birti færslu um fjölda frétta Rúv um hann en á endanum þá verður fréttastofa Rúv að lifa við það sem þeir gerðu.
Óðinn Þórisson, 18.9.2016 kl. 17:20
Aðför RÚV og stórsigur á öflum innan flokksins...geysp.
Friðrik Friðriksson, 18.9.2016 kl. 22:14
SDG á dyggan aðdáendahóp í NA og NV en ekki í öðrum kjördæmum. Það mun enginn vilja vinna með honum eftir kosningar. Þetta er ábyggilega ágætis náungi en hann er sjálfum sér verstur.
Sigurður Helgi Magnússon (IP-tala skráð) 18.9.2016 kl. 22:50
Frirðik - " Aðför RÚV og stórsigur á öflum innan flokksins " staðreynd.
Óðinn Þórisson, 19.9.2016 kl. 07:18
Sigurður Helgi - það verður að teljast mjög ólíklegt að SIJ bjóði sig fram gegn honum á flokksfundin og hver vill og vill ekki vinna með Framsókn undir forystu SDG.
Hvaða umboð mun t.d Litla Samfylkingin hafa eftir kosningar en þar var nánast engin endurnýjun og prófjkör sem enginn hafði áhuga á.
Óðinn Þórisson, 19.9.2016 kl. 07:23
Ég fullyrði að enginn flokkur vilji vinna með SDG. Vonandi þurrkast Samfylkingin út.
Sigurður Helgi Magnússon (IP-tala skráð) 19.9.2016 kl. 08:42
Sigurður Helgi - ef þessi fullyrðing er rétt hjá þér þá hljóta Framsóknarmenn að kjósa SIJ þ.e ef hann hefur pólitísk þrek&þor til að fara gegn SDG.
Óðinn Þórisson, 19.9.2016 kl. 10:40
Ég átta mig ekki á hvað þú ert að verja Óðinn. Enn síður að þú skulir vera að ásaka RUV, sem ásamt fjöldan allan af erlendum miðlum upplýstu almenning um nöfn í skattaskjólum. það vildi bara þannig til, að íslendingur að nafni Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var æðstur á titlaskalanum, var sem sagt forsætisráðherra síns lands, sem reyndi að fela sem best hann gat aðkomu sína að sínum skattaskjóls reikningi. Það er vitað, það geymir ekki nokkur maður/félög peninga á þessum stöðum, af öðrum hvötum en að leyna einhverju, ég vona að þú sért ekki svo barnalegur að reyna að halda öðru fram.
Jónas Ómar Snorrason, 19.9.2016 kl. 12:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.