21.6.2019 | 08:02
Uppstokkun og endurnýjun ríkisstjórnarinnar
Mikil óánægja er meðal sjálfstæðismanna að Sjálfstæðisflokkurinn sitji í ríkisstjórn þar sem verkstjórinn er sósíalisti.
Varðandi heilsbriðgismálin þá held ég að ríkisvæða allt heilbrigiskerfið sé hvergi að finna í stefnu Sjálfstæðisflokksins.
Umhverfisráðherra er fyrrverandi formaður Landverndar og nálgun hans er mjög öfgafull og ekki mjög raunsæ.
Það þarf að stokka upp í ríkisstjórnnni, VG út, Sjálfstæðisflokkurinn er að stórskaðast á samstarfi við sósíalista.
Boðar endurskoðun reglna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:03 | Facebook
Um bloggið
Óðinn Þórisson
Spurt er
Eigum við að draga til baka ESB-aðildarumsóknina
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 49
- Frá upphafi: 888609
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 40
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það er ekki hægt að kenna vg eða sósíalistum um þetta stórslys sem sjálfstæðisflokkurinn er orðinn í dag, sökin liggur alfarið hjá þeim þingmönnum og forystusauðnum sem þar er núna, ég get ekki hugsað mér að kjósa flokkinn í núverandi mynd. Bjarni Ben þarf að fara, hann hefur sýnt það núna oftar en einu sinni að hann hefur ekkert þarna að gera.
Halldór Björgvin Jóhannsson, 21.6.2019 kl. 08:14
Það er kannski ekki skrítið að Sjálfstæðisflokkurinn skuli sitja í ríkisstjórn undir verkstjórn sósíalista þar sem flokkurinn hefur sjálfur breyst í sósíalista flokk.
Tómas Ibsen Halldórsson, 21.6.2019 kl. 10:30
Halldór - það voru stór mistök hjá forystu flokksins að fara í ríkisstjórn með sósíalistum og hvað þá hafa verksjórann úr þeirra röðum.
Þau mistök er hægt að leiðrétta og slíta þessu stjórnarsamsarfið við sósíalista, getur bara hagnast flokknum svo ekki sé minnst á að forystan fari að spá aðeins í vilja sinna flokksmanna og landsfunarsamþykkta.
Það eru margir sem telja að tími Bjarna sé liðinn sem formaður, búinn að vera það í 10 ár, það er óskandi að við fengjum strerk mótframboð gegn Bjarna á næsta landsfundi.
Óðinn Þórisson, 21.6.2019 kl. 11:32
Tómas - Sjálfstæðisflokkurinn styður ríkisvæðu alls heilbrigðiskerfsins og aðför að sérlæknum, af þessari leið verður forystan að fara, það er klárt mál.
Óðinn Þórisson, 21.6.2019 kl. 11:34
Eins og íþróttamenn segja; "við lærum af þessu", tökum þá prófið núna! Við þekkjum muninn á réttu og röngu en höfum látið það ranga viðgangast a.m.k.frá hruni.VIð lítum bænaraugum á formann stærsta flokksins og bíðum eftir að hann tæki af skarið.Við sáum stjórnleysingja vaða uppi í nær allri stjórnsýslunni.- Enginn hreyfir andmælum á þingi þótt okkar gamla góða RÚV standi að árás á forsetann sem Ólafur Ragnar sá í hæfileikana til stjórnunar. Hvar var vinurinn og samstaðan og ættjarðarástin,þeirra sem andstæðingar teiknuðu skrípó af í hjónasæng.- - Er ekki máltækið "gamalt og gott" í fullu gildi þegar við hlýðum á þá sem settu svip á Alþingi og fyrri ríkisstjórnir OG eru enn að leggja Íslandi lið með skrifum sínum.
Helga Kristjánsdóttir, 21.6.2019 kl. 13:22
Helga - vandi alþings er í raun að það hefur ekki náðst að uppfæra alþingi til nútíms og þar með að þar sé fyrst og síðast unnið með hagsmuni fólksins í landinu að leiðarljósi.
Uppgangur anarkista og trúleysingja er áhyggjuefni, sjálfstæðisflokkurinn þarf að verða aftur flokkurinn sem var með eftirfarandi orð að leiðarljósi, stétt með stétt.
Óðinn Þórisson, 21.6.2019 kl. 19:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.