26.6.2019 | 07:25
Þórhildur Sunna sýni gott fordæmi og segi af sér þingmennsku
Píratar hefur verið sá flokkur sem hefur hve oftast annarsvegar talað um virðingu alþingis og hinsvegar að alþingsmenn/ráðherrar axli pólitíska ábyrð.
Miðað við þessa niðurstöðu að hún hafi brotið siðareglur fyrir alþingismenn þá geri ég ráð fyrir því að hún boði til blaðamannafundar strax í dag og tilkynni um afsögn sína sem alþingismaður.
Það er það eina í raun í stöðunni hjá henni eða ætlar hún að taka niður þá litlu virðingu sem Píratar hafa og bara sitja áfram eftir þessu hrikalegu niðurstöðu fyrir hana sem stjórnmálamann.
Forsætisnefnd sammála siðanefnd | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Óðinn Þórisson
Spurt er
Eigum við að draga til baka ESB-aðildarumsóknina
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 4
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 96
- Frá upphafi: 888608
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 79
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þú getur hengt þig upp á það að hún kemur ekki til með að segja af sér. Píratarnir eru allir með tölu (nema kannski Jón Þór Ólafsson, sem hefur sýnt af sér smá dug og einarðleika), búnir að lýsa því yfir að þeir séu ósammála niðurstöðu siðanefndar. Og Þórhildur Sunna er það óforskömmuð að hún kemur bara til með að rífa kjaft og hunsa þetta álit......
Jóhann Elíasson, 26.6.2019 kl. 07:44
Kanntu annan?
Sigurður I B Guðmundsson, 26.6.2019 kl. 10:28
Jóhann - Píratar eru yfirleitt ósammála því sem hentar þeim ekki.
Sammála hún mun halda áfram að rífa kjaft þrátt fyrir að vera dæmd fyrir að brjóta siðarelgur fyrir alþingsmenn.
Það verður holur hljómur hjá Pirötum næst þegar þeir ætla að krefjast þess að stjórnmálamenn axli pólitíska ábyrð , nú liggur fyrir að þeir gera það ekki sjálfir.
Óðinn Þórisson, 26.6.2019 kl. 12:35
Sigurður I - kannski var þessi færsla byggð á óskhyggju að hún væri samkvæm sjálfri sér.
Óðinn Þórisson, 26.6.2019 kl. 12:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.