7.1.2020 | 18:57
Jón Valur BaráttuMaður fyrir Hagsmunum Íslands
Hans verður minnst sem mikils baráttumans fyrir hagsmunum íslands og þar ber hæst Baráttan gegn Icesave og ESB.
Guð geymi Jón Val. og takk fyrir þitt framlag fyrir hagsmuni lands og þjóðar.
Andlát: Jón Valur Jensson | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Óðinn Þórisson
Spurt er
Eigum við að draga til baka ESB-aðildarumsóknina
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 3
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 95
- Frá upphafi: 888607
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 78
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sammála.
Sigurður I B Guðmundsson, 7.1.2020 kl. 19:22
Tek undir þetta.
Guðmundur Ásgeirsson, 7.1.2020 kl. 19:41
Blessuð sé minning hans.
Hann stóð vaktina.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 7.1.2020 kl. 19:42
Það er missir að Jóni Val. Votta fjölskyldu hans alla samúð.
Þorsteinn Siglaugsson, 7.1.2020 kl. 19:44
Það er mikill missir af þessum baráttumanni sem benti fólki á hin kristnu gildi með skrifum sínum. Megi Guð styrkja fjölskyldu hans. Blessuð sé minning Jóns Vals.
Steindór Sigursteinsson, 7.1.2020 kl. 20:24
Minning Jóns Vals og einlæg barátta hans fyrir góðum málefnum lifir.
Jónatan Karlsson, 7.1.2020 kl. 20:41
Fylgd
Komdu, litli ljúfur,
labbi, pabba stúfur,
látum draumsins dúfur
dvelja inni um sinn.
-- heiður er himinninn.
Blærinn faðmar bæinn,
býður út í daginn.
Komdu, kalli minn.
Göngum upp með ánni
inn hjá mosaflánni,
fram með gljúfragjánni
gegnum móans lyng,
-- heyrirðu hvað ég syng --
líkt og lambamóðir
leiti á fornar slóðir
innst í hlíðarhring.
Héðan sérðu hafið
hvítum ljóma vafið,
það á geymt og grafið
gull og perluskel,
ef þú veiðir vel.
En frammi á fjöllum háum
fjarri sævi bláum
sefur gamalt sel.
Glitrar grund og vangur,
glóir sund og drangur.
Litli ferðalangur
láttu vakna nú
þína tryggð og trú.
-- Lind í lautu streymir,
lyng á heiði dreymir,
-- þetta land átt þú.
Hér bjó afi og amma
eins og pabbi og mamma.
Eina ævi og skamma
eignast hver um sig.
-- stundum þröngan stig.
En þú átt að muna
alla tilveruna,
að þetta land á þig.
Ef að illar vættir
inn um myrkragættir
bjóða svikasættir
svo sem löngum ber
við í heimi hér,
þá er ei þörf að velja:
þú mátt aldrei selja
það úr hendi þér.
Göngum langar leiðir,
landið faðminn breiðir.
Allar götur greiðir
gamla landið mitt,
sýnir hjarta sitt.
Mundu, mömmu ljúfur,
mundu, pabba stúfur,
að þetta er landið þitt.
Guðmundur Böðvarsson
Óðinn Þórisson, 7.1.2020 kl. 22:04
Tek undir þetta.
Þorsteinn Sch Thorsteinsson, 7.1.2020 kl. 22:19
Þetta er sláandi hef hvergi séð eða heyrt um andlát hans. Eg ætlaði að hringja í hann fljótlega eftir nokkuð erfitt tímabil. Guð blessi minningu hans og styrki fjölskyldu hans.
Helga Kristjánsdóttir, 7.1.2020 kl. 23:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.