Uppstillingar á framboðslista Samfylkingarinnar gengið mjög illa

Nú síðast sáum við hvað gerðist í suðurkjördæmi og það sem gerðist í Reykjavík var eins mikið póltískt klúður og hægt var og verður lengi munað eftir..

Var að hlusta á Bylgjuna í síðustu viku þar sem tókust á fulltrúi úr forystu-elítu Samfylkingarinanr og talsmaður heimilanna sem er í dag frambjóðandi flokks fólksins.

Þar var rætt um heimilin í tíð Jóhönnustjórnarinnar. Þetta var vont viðtal fyrir foystu-elítu Samfylkingarinnar.

Svo mætti í Silfrið i gær annar úr forystu-elítu Samfylkingarinnar þar var alveg á hreinu að ríkið og ríkisstarfmenn skipta öllu máli.

Það þekkja allir Glúm, hann mun taka eitthvað fylgi frá Samfylkunni, gamlir jafnarðarmenn sem eru landlausir í dag.


mbl.is Glúmur skipar oddvitasætið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Tilefnið að baki viðtalinu á Bylgjunni þar sem þingmaður Samfylkingarinnar hrapaði til jarðar í ljósum logum, voru eftirfarandi ummæli Oddnýjar G. Harðardóttur á Alþingi:

"Herra forseti. Ég styð þessa skýrslubeiðni, fyrst og fremst vegna þess að það er tími til kominn að slá á þær flökkusögur sem hv. þingmenn Miðflokksins hafa m.a. haldið fram um fjölda heimila sem fóru í gjaldþrotaskipti eftir hrun. Við þurfum að vita hve mörg heimili þetta voru og hvenær þau voru komin upp í 10.000. ..."

Í fyrsta lagi hefur enginn haldið því fram að 10.000 heimili hafi undirgengist gjaldþrotaskipti frá hruni (rétt tala er 3.751 einstaklingar en heimili eru aldrei tekin til gjaldþrotaskipta). Í öðru lagi vísar talan 10.000 til fjölda heimila/fjölskyldna sem hafa verið svipt húsnæði sínu frá hruni, samkvæmt opinberum tölum sem hafa komið fram í svörum ráðherra við fyrirspurnum þingmanna. Að kalla það flökkusögu er gróf móðgun við þessi heimili sem eru að minnsta kosti 10.000 talsins og örugglega mun fleiri. Með framgöngu sinni hefur Samfylkingin nú gert það fyllilega ljóst að hún hefur hvorki áhuga á að viðurkenna þær hörmungar sem þessi stóri hópur hefur mátt þola né að gera neitt til að rétta hlut þeirra.

Guðmundur Ásgeirsson, 29.3.2021 kl. 15:43

2 Smámynd: Óðinn Þórisson

Guðmundur - takk fyrir gott og málefnalegt innlegg. Ekkert við þetta að bæta.

Óðinn Þórisson, 30.3.2021 kl. 07:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Óðinn Þórisson

Höfundur

Óðinn Þórisson
Óðinn Þórisson

Það hefur aukist hér talsvert skoðanakúgun, hvað fólk má segja og hvað ekki. Ef fólk segir brandara fær það yfir sig holskeflu af gagnrýni frá þeim sem telja sig vera í þeirri stöðu að ákveða hvað má segja og hvað ekki. 

Skoðanakúgun hefst nákvmlega svona, fólk hættir að þora að tjá sig vegna hættu frá fólkinu sem telur sig eiga að ákveða hvað má segja og hvað ekki.

Tjáningarfrelsið skiptir okkur öllu máli , við búum enn í lýðræðisríki þar sem fólk á að hafa leyfi til að hafa sínar skoðanir án þess að vera hundelt fyrir það.

Ég vil verja tjáningarfrelsið og réttarríkið sem við búum í. 

Styð heilshugar baráttu Ísraels.

Frjálslyndur Íhaldsmaður sem telur að öflugt atvinnulíf sé forsenda öflugs velferðakerfis.
Lækka skatta og álögur á fólk sem leiðir til aukins hagvaxtar og það gengur betur hjá öllum

 

Spurt er

Eigum við að draga til baka ESB-aðildarumsóknina
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Ísrael stend með
  • Halldór Jónsson
  • Samfylkingin 2006
  • Flagg Ukrainu
  • karen elísabet

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 12
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 319
  • Frá upphafi: 870037

Annað

  • Innlit í dag: 12
  • Innlit sl. viku: 223
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 10

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband