16.5.2023 | 10:42
Sjúkraflug í hættu með minnkandi notagildi Reykjajvíkurflugvallar.
Borgarstjórinn í Reykjavík er læknir og ætti að hafa þann skylning hveru mikilvægt sjúkraflug er fyrir heildarhagsmuni allra landsmanna að komst á LSH sem fyrst, því eins og hann veit best sjálfur þá skiptir hver mínúta máli þegar um alvarleg veikindi er að ræða.
Það að skerða notagildi flugvallarins er beinlíns hættulegt og ef menn vilja auka ástæðu þá er þetta varaflugvölur sem skiptir íslenk flugfélög miklu máli varðandi að bera eldsneyti.
Oddviti Framsóknar hefur sagt að dauðir hlutir skipta hann ekki þegar kemur að afstöðu hans til Reykjavíkurflugvallar og verður því að spyrja hann.
Skylur hann hlutverk Reykjavíkur sem höfuðborgar og flugvallarins fyrir heildarhagsmuni allra landsmanna ?
Það getur ekki verið valkostur að þrengja meira að flugvellinum fyrr en liggur fyrir hvar á að byggja nýjan flugvöll, hvað það tekur mörg ár að byggja hann og hvað slík framkvæmd myndi kosta.
Áhrif byggðar verði rannsökuð frekar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:45 | Facebook
Um bloggið
Óðinn Þórisson
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 5
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 53
- Frá upphafi: 888613
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 43
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ef það væri einhver "töggur" í ráðamönnum landsins færu þeir í að tryggja notkunargildi Reykjavíkurflugvallar, svo notagildi hans yrði ótvírætt þar til annað jafngott eða betra flugvallarstæði er fundið. Og það er ekki nóg að finna annað flugvallarstæði heldur tekur það 10 - 20 ár að byggja flugvöllinn eftir að ásættanlegt flugvallarstæði er fundið (þetta segi ég miðað við hvaða tíma aðrar framkvæmdir hafa tekið). Það er frekar lítið mál að gera flugvöllinn mjög góðan; það er lítið mál að lengja flugbrautir út í sjó og að virkja "neyðarbrautina" aftur þá þarf að lengja hana út í sjó, reynda þyrfti að rífa tvö eða þrjú flugskýli áður en þar þyrftu að koma til samningar, sem ættu ekki að vera neitt vandamál ef vilji er til að leysa málin. Þá þyrfti að fara fram umtalsvert skógarhögg í Öskjuhlíðinni og grisjun. Allt sem þarf er bara að taka ÁKVÖRÐUN og fyrir stjórnmálamenn að standa í lappirnar.......
Jóhann Elíasson, 16.5.2023 kl. 12:57
Jóhann - fyrir nokkrum árum bauð Framsón fram í Reykjavík undir nafni Framsókn og Flugvallarvina og hefur flokkurinn alltaf í borgarstjórn sem og þingmenn stutt það að flugvöllurinn verði áfram í Vatnsmýrinni þar til ný staðsetning hafi fundist og meðan á framkvæmdatíma flugvallarins stendur.
Nú er komin upp alveg ný staða hjá Framsókn í Reykjavík eftir að Rúvarinn var gerður að oddvita flokksins í borginni.
Þetta er allt rétt sem þú segir og ég er þér alveg sammála.
Ég hef talað fyrir því að skipulagsvaldið yfir Reykjavíkurflugvelli veriði tekið af borginni þar sem þeir sem þar stjórna skylja ekki hlutverk og skyldur Reykjavíkur sem höfuðborgar Íslands og flugvallarins fyrir öryggi allra landsmanna varðandi sjúkraflug.
Það er vonandi að borgarstjórnarmeirithlutinn í Reykjavík standi við gerða samninga um flugvöllinn og innviðaréðherra Framsóknar standi með fólkinu á landsbyggðinni en ekki sérhagsmunafólkinu sem stjórnar Reykjavík.
Óðinn Þórisson, 16.5.2023 kl. 15:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.