Sjúkraflug í hættu með minnkandi notagildi Reykjajvíkurflugvallar.

Borgarstjórinn í Reykjavík er læknir og ætti að hafa þann skylning hveru mikilvægt sjúkraflug er fyrir heildarhagsmuni allra landsmanna að komst á LSH sem fyrst, því eins og hann veit best sjálfur þá skiptir hver mínúta máli þegar um alvarleg veikindi er að ræða.

Það að skerða notagildi flugvallarins er beinlíns hættulegt og ef menn vilja auka ástæðu þá er þetta varaflugvölur sem skiptir íslenk flugfélög miklu máli varðandi að bera eldsneyti.

Oddviti Framsóknar hefur sagt að dauðir hlutir skipta hann ekki þegar kemur að afstöðu hans til Reykjavíkurflugvallar og verður því að spyrja hann.

Skylur hann hlutverk Reykjavíkur sem höfuðborgar og flugvallarins fyrir heildarhagsmuni allra landsmanna ?


Það getur ekki verið valkostur að þrengja meira að flugvellinum fyrr en liggur fyrir hvar á að byggja nýjan flugvöll, hvað það tekur mörg ár að byggja hann og hvað slík framkvæmd myndi kosta.


mbl.is Áhrif byggðar verði rannsökuð frekar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ef það væri einhver "töggur" í ráðamönnum landsins færu þeir í að tryggja notkunargildi Reykjavíkurflugvallar, svo notagildi hans yrði ótvírætt þar til annað jafngott eða betra flugvallarstæði er fundið.  Og það er ekki nóg að finna annað flugvallarstæði heldur tekur það 10 - 20 ár að byggja flugvöllinn eftir að ásættanlegt flugvallarstæði er fundið (þetta segi ég miðað við hvaða tíma aðrar framkvæmdir hafa tekið).  Það er frekar lítið mál að gera flugvöllinn mjög góðan; það er lítið mál að lengja flugbrautir út í sjó  og að virkja "neyðarbrautina" aftur þá þarf að lengja hana út í sjó, reynda þyrfti að rífa tvö eða þrjú flugskýli áður en þar þyrftu að koma til samningar, sem ættu ekki að vera neitt vandamál ef vilji er til að leysa málin.  Þá þyrfti að fara fram umtalsvert skógarhögg í Öskjuhlíðinni og grisjun.  Allt sem þarf er bara að taka ÁKVÖRÐUN og fyrir stjórnmálamenn að standa í lappirnar.......

Jóhann Elíasson, 16.5.2023 kl. 12:57

2 Smámynd: Óðinn Þórisson

Jóhann - fyrir nokkrum árum bauð Framsón fram í Reykjavík undir nafni Framsókn og Flugvallarvina og hefur flokkurinn alltaf í borgarstjórn sem og þingmenn stutt það að flugvöllurinn verði áfram í Vatnsmýrinni þar til ný staðsetning hafi fundist og meðan á framkvæmdatíma flugvallarins stendur.

Nú er komin upp alveg ný staða hjá Framsókn í Reykjavík eftir að Rúvarinn var gerður að oddvita flokksins í borginni.

Þetta er allt rétt sem þú segir og ég er þér alveg sammála.

Ég hef talað fyrir því að skipulagsvaldið yfir Reykjavíkurflugvelli veriði tekið af borginni þar sem þeir sem þar stjórna skylja ekki hlutverk og skyldur Reykjavíkur sem höfuðborgar Íslands  og flugvallarins fyrir öryggi allra landsmanna varðandi sjúkraflug.

Það er vonandi að borgarstjórnarmeirithlutinn í Reykjavík standi við gerða samninga um flugvöllinn og innviðaréðherra Framsóknar standi með fólkinu á landsbyggðinni en ekki sérhagsmunafólkinu sem stjórnar Reykjavík.

Óðinn Þórisson, 16.5.2023 kl. 15:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Óðinn Þórisson

Höfundur

Óðinn Þórisson
Óðinn Þórisson

Það hefur aukist hér talsvert skoðanakúgun, hvað fólk má segja og hvað ekki. Ef fólk segir brandara fær það yfir sig holskeflu af gagnrýni frá þeim sem telja sig vera í þeirri stöðu að ákveða hvað má segja og hvað ekki. 

Skoðanakúgun hefst nákvmlega svona, fólk hættir að þora að tjá sig vegna hættu frá fólkinu sem telur sig eiga að ákveða hvað má segja og hvað ekki.

Tjáningarfrelsið skiptir okkur öllu máli , við búum enn í lýðræðisríki þar sem fólk á að hafa leyfi til að hafa sínar skoðanir án þess að vera hundelt fyrir það.

Ég vil verja tjáningarfrelsið og réttarríkið sem við búum í. 

Styð heilshugar baráttu Ísraels.

Frjálslyndur Íhaldsmaður sem telur að öflugt atvinnulíf sé forsenda öflugs velferðakerfis.
Lækka skatta og álögur á fólk sem leiðir til aukins hagvaxtar og það gengur betur hjá öllum

 

Spurt er

Eigum við að draga til baka ESB-aðildarumsóknina
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Ísrael stend með
  • Halldór Jónsson
  • Samfylkingin 2006
  • Flagg Ukrainu
  • karen elísabet

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 213
  • Sl. sólarhring: 280
  • Sl. viku: 1108
  • Frá upphafi: 871145

Annað

  • Innlit í dag: 157
  • Innlit sl. viku: 776
  • Gestir í dag: 146
  • IP-tölur í dag: 142

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband