4.1.2008 | 08:03
Mike Huckabee í Hvíta Húsið
Þetta byrjar vel hjá Mike Huckabee og ef hann fær útnefningu Repúblikana þá held ég að það yrði mjög gott fyrir bandarísku þjóðina.
Aðalmálið hlítur samt að vera að repúblikani verði áfram í Hvíta Húsinu.
Gaman að sjá Chuck Norris þarna bak við hann.
Aðalmálið hlítur samt að vera að repúblikani verði áfram í Hvíta Húsinu.
Gaman að sjá Chuck Norris þarna bak við hann.
Huckabee og Obama sigruðu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Óðinn Þórisson
Spurt er
Eigum við að draga til baka ESB-aðildarumsóknina
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 3
- Sl. sólarhring: 9
- Sl. viku: 95
- Frá upphafi: 888607
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 78
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
http://www.youtube.com/watch?v=t4Cc8t3Zd5E&feature=related
Þarna er þinn maður að hafna þróunarkenningunni.
Frábært - eða hitt þó heldur - að fá svona menn við stjórnvölinn.
Næst er hlýnun jarðar af mannavöldum bull og The Secret læknar krabbamein. Hættuleg braut, verð ég að segja.
Benedikt Bjarnason, 4.1.2008 kl. 09:12
"Aðalmálið hlítur samt að vera að repúblikani verði áfram í Hvíta Húsinu."
Þú hlýtur að vera að grínast með það?!
Benedikt Sigurðsson (IP-tala skráð) 4.1.2008 kl. 09:17
Ég sé að þú ert sjálfstæðismaður þannig að vitleisan í þér er skiljanleg. BNA menn eru búnir að vera með þroskaheftan forseta í tæp 8 ár og þú vilt óbreitt ástand.
Emma Vilhjálmsdóttir, 4.1.2008 kl. 09:44
Það hefur ekki verið Kristinn forseti við stjórnvölin í Bandaríkjunum í fleiri tugi ára. það að segjast vera Kristinn er ekki það sama og að vera það. Auðvitað nota Bush og fleiri Kristni kortið því það er einstaklega sterkt vopn, en sannkristið fólk hlýtur að sjá að það er ekki mikið um Kristin gildi á bakvið stefnur þeirra.
Huckabee er sá fyrsti í langan tíma sem virðist á yfirborðinu vera einlægur í sinni Kristnu trú, hvort hann sé það er svo annað mál.
Það að fá annan Rebúblikana við stjórnvölin táknar ekki endilega óbreytt ástand, það er augljóst að fólkið á bakvið marga af Rebúblikana frambjóðendunum er ekki það sama og við núverandi hauka stjórn, það má ekki láta flokksfylgi endilega blinda víðsýni á sjálfa frambjóðendur eða hindra þeim leið. Þá er látin fremur súr skilningur í flokkahugtakið í Bandaríkjunum, þó þetta yfirgnæfandi tveggja flokka kerfi sé vissuelga í sjálfu sér hálfger árás á lýðræðið.
RSPCT
Tryggvi Hjaltason, 4.1.2008 kl. 10:17
Þakka commentin.
Ég er lýðræðisinni og þó svo ákveðin comment séu yfir strikið þá mun ég leyfa þeim að standa.
Kristin trú skiptir miklu máli og Bush er mjög trúaður og það er eftirsjá í honum úr embætti forseta bandaríkjanna en ég vona að bandaríkjamenn séu skynsamir og velji Huckabee.
Óðinn Þórisson, 4.1.2008 kl. 11:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.