17.1.2008 | 08:56
Hvernig stjórnmálamaður er Dagur B. Eggertsson
"Dagur B. Eggertsson borgarstjóri neitaði fréttastofu Sjónvarpsins í dag að taka myndir af fundi sem hann átti með fulltrúum Akurnesinga og Borgfirðinga vegna samskipta eigenda Orkuveitu Reykjavíkur. Alveg er þetta stórkostlegt og til marks um markviss vinnubrögð við að hafa stjórn á skilaboðum. Umræðustjórnmál hvað?
Hingað til hefur borgarstjóri sýnt mikinn dugnað við að leyfa borgarbúum að fylgjast með sér að störfum, hann hefur sent út boð þegar hann heimsækir skóla til að tala við börn hér og þar um ástand og aðbúnað á skólalóðum. Hann og aðstoðarmaður hans hafa verið afar fundvísir á góðar fréttir til að miðla. En þegar um er að ræða fund um viðkvæmt mál í samstarfi við önnur sveitarfélög eru fjölmiðlar beðnir að vera úti og málin rædd í (reyklausum) bakherbergjum"
Pétur Gunnarsson eyjan
Ef menn muna þá var það hans fyrsta verk sem borgarstjóri að minnka viðtalstíma sinn við borgarbúa.
Nú býður hann eftir því að Þorgerður Katrín menntamálaráðherra taki skiplagsákvörðun fyrir borgarstjórnarmeirihlutann um örlög húsanna laugaveg 4-6
Ég tek undir það sem Röggi sagði í pistili á eyjunni um daginn að Dagi skorti kjark sem leiðtogi þarf að hafa.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Óðinn Þórisson
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 4
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 96
- Frá upphafi: 888608
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 79
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.