Þannig liggur í því

Tefja meðferð eða vönduð og ábyrg vinnubrögð.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur sýnt það aftur og aftur að hann er flokkur sem vinnur hlutina að mikilli yfirvegun og ábyrgð og kemst að réttri niðurstöðu.
Hér má t.d nefna ESB málið þar sem flokkurinn skipaði nefnd. Fundað var um málið  um allt land, málið skoðað hlutlaust og svo á landsfundi kom rétt ályktun að ESB væri ekki rétt fyrir hagsmuni Íslands.
Það er ekki góð pólitík hjá þessu ágæta fólki að ætla að keyra málið í gegn án samráðs við Sjálfstæðifslokkinn og eru þeir því ábyrgir fyrir því að bullandi ágreyningur er um þetta mál. Þeir verða að leita sátta við Sjálfstæðisflokkinn og aðallega átta sig á því að svona vinnubrögð eru mjög óábyrg.
mbl.is Bullandi ágreiningur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Óðinn, þú virðist ekki bara elska Sjálfstæðisflokkinn heldur dýrka hann líka, nú kemur Viðskiptaráð og segir að þjóð geti ekki átt eign og þar með sé ekki hægt að setja í stjórnarskrá, að þjóðin eigi auðlindirnar. Hvað, út af hverju er þá þessi andstaða við lögin? Á ekki þjóðin Þingvelli, eða á kannski Sjálfstæðisflokkurinn líka Þingvelli?

Því í fjandanum kýs fólk flokk sem vill ekki setja í stjórnarskrá að þjóðin eigi auðlindirnar? Vill fólk virkilega að auðlindirnar séu gefnar einhverjum útvöldum einstaklingum til að græða á þeim? Mikið er þetta klikkað eitthvað. Með réttu ætti þessi blessaði frjálshyggjuflokkur að þurkast út. Núna liggur fyrir að allir flokkar nema Sjálfstæðisflokkur vilja auka við lýðræði til almennings, allir flokkar nema Sjálfstæðisflokkur vilja að auðlindir þjóðarinnar verði eign almennings og að þær verði ekki seldar eða gefnar einhverjum vinum Sjálfstæðisflokksins (það vill Sjálfstæðiflokkurinn ekki) Út úr þessu kemur bara eitt, og það er að Sjálfstæðisflokkurinn er frjálshyggjuflokkur sem getur ekki unt fólkinu í landinu að eiga NEITT! og Sjálfstæðisflokkurinn getur ekki sætt sig við að geta ekki gefið auðlindir þjóðarinnar til valinna vina sinna.

Hvers vegna kýs þriðjungur þjóðarinnar þennan Sjálfstæðisflokk? Kýst þú Sjálfstæðisflokkinn? Villt þú ekki að auðlindirnar verði þjóðareign, villt þú ekki að t.d. olíuauðlindir á Drekasvæðinu og hagnaður af því svæði verði þjóðareign? Eða villtu að Sjálfstæðisflokkurinn geti í framtíðinni einkavinavætt olíuauðlindir þjóðarinnar þannig að einhverjir vinir Sjálfstæðisflokksins geti grætt skriljónir á olíunni og hennt einhverjum 10% fjármagnstekjuskatti í andlitið á okkur þjóðinni? Kýst þú Sjálfstæðisflokkinn? Finnst þér gaman að skjóta þig í fæturnar? Eða elskar þú kannski Sjálfstæðisflokkinn meira en þjóð þína? Hugsaðu áður en þú kýst!

Valsól (IP-tala skráð) 1.4.2009 kl. 21:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Óðinn Þórisson

Höfundur

Óðinn Þórisson
Óðinn Þórisson

Það hefur aukist hér talsvert skoðanakúgun, hvað fólk má segja og hvað ekki. Ef fólk segir brandara fær það yfir sig holskeflu af gagnrýni frá þeim sem telja sig vera í þeirri stöðu að ákveða hvað má segja og hvað ekki. 

Skoðanakúgun hefst nákvmlega svona, fólk hættir að þora að tjá sig vegna hættu frá fólkinu sem telur sig eiga að ákveða hvað má segja og hvað ekki.

Tjáningarfrelsið skiptir okkur öllu máli , við búum enn í lýðræðisríki þar sem fólk á að hafa leyfi til að hafa sínar skoðanir án þess að vera hundelt fyrir það.

Ég vil verja tjáningarfrelsið og réttarríkið sem við búum í. 

Styð heilshugar baráttu Ísraels.

Frjálslyndur Íhaldsmaður sem telur að öflugt atvinnulíf sé forsenda öflugs velferðakerfis.
Lækka skatta og álögur á fólk sem leiðir til aukins hagvaxtar og það gengur betur hjá öllum

 

Spurt er

Eigum við að draga til baka ESB-aðildarumsóknina
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Ísrael stend með
  • Halldór Jónsson
  • Samfylkingin 2006
  • Flagg Ukrainu
  • karen elísabet

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 323
  • Frá upphafi: 870018

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 227
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband