Tekist á í Framsókn -

Ómar Stefánsson bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins hér í Kópavogi lagði allt undir og tryggði það innan síns flokks að við Kópavogsbúar mynum ekki fá vinstri meirihluta yfir okkur hér í Kópavogi. 
Framsóknarflokkurinn á eftir að njóta góðs af því í næstu kosningum - það er klárt mál.


mbl.is Vill að Ómar víki úr bæjarstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

Þegar að kosningum kemur hafa flestir lítið langtímaminni.

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 25.6.2009 kl. 13:47

2 Smámynd: Elfur Logadóttir

"fá yfir ykkur" vinstri meirihluta?

Æ þvílík hörmung sem það nú væri ...

Elfur Logadóttir, 25.6.2009 kl. 15:24

3 Smámynd: Óðinn Þórisson

Takk fyrir kommentin
Guðrún, kanski er það rétt hjá þér EN það hlýtur að vera sérstakt rannsóknarefni að 22% hafi merkt x við forræðishyggjuflokkinn vg.
Elfur, það hefði verið hörmung ef það hefði gerst en Ómar stóð sig vel og kom í veg fyrir það

Óðinn Þórisson, 25.6.2009 kl. 16:52

4 Smámynd: Elfur Logadóttir

Auðvitað er það hörmulegt fyrir Sjálfstæðisflokkinn að missa völd en það er um það bil eina "hörmungin" sem hefði fylgt stjórnarskiptum í Kópavogi, það er nokkuð ljóst.

... nema menn hafi einhverja sérhagsmuni að verja ...

Elfur Logadóttir, 25.6.2009 kl. 17:00

5 Smámynd: Óðinn Þórisson

Elfur, þú veist hvernig staðan er í Árborg og Grindavík - þar er SF í meirihluta OG með bæjarstjórastólinn - þá skilur þú kanski hversvegna ég hef engan áhuga að gefa SF tækifæri til að rústa því góða sem gert hefur verið hér í Kópavogi síðustu 19 ár.

Óðinn Þórisson, 25.6.2009 kl. 19:45

6 Smámynd: Elfur Logadóttir

Óðinn,

það dugir mér að vita hvernig staðan er í Kópavogi til þess að ég sé full af áhuga til þess að gefa Samfylkingunni tækifæri til þess að bæta það samfélag sem við búum í. Þensla, frekja, yfirgangur, ósannsögli, svik, falsanir og sambærileg hugtök vil ég ekki sjá í tengslum við stjórn bæjarins og það gerist ekki fyrr en skipt verður um meirihluta.

Elfur Logadóttir, 25.6.2009 kl. 19:56

7 Smámynd: Óðinn Þórisson

Elfur, því miður er SF í Kópavogi leiðtogalaus og hefur svokallaður oddviti eingöngu afrekað að vera með pólitískar árásir á Gunnar og hans fjölskyldu.
Gunnar mun snúa til baka sem bæjarfulltrúi þegar rannsókn er lokið - það er klárt mál - það mun ekki breyta neinu um þetta meirihlutasamstarf því Ómar vill ekki vinna með SF - skil ég hann mjög vel enda reynslan af því þegar Framsókn sagðist mynda verja minnihlutastjórn vinstriflokkana algjört FLOPP fyrir Framsókn -
Sem betur fer er búið að bjarga þessu meirihlutasamstarfi OG svo er það Kópavogsbúa að kveða upp sinn dóm í næstu kosningum  - ég hræðist þá niðurstöðu ekki -

Óðinn Þórisson, 25.6.2009 kl. 20:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Óðinn Þórisson

Höfundur

Óðinn Þórisson
Óðinn Þórisson

Það hefur aukist hér talsvert skoðanakúgun, hvað fólk má segja og hvað ekki. Ef fólk segir brandara fær það yfir sig holskeflu af gagnrýni frá þeim sem telja sig vera í þeirri stöðu að ákveða hvað má segja og hvað ekki. 

Skoðanakúgun hefst nákvmlega svona, fólk hættir að þora að tjá sig vegna hættu frá fólkinu sem telur sig eiga að ákveða hvað má segja og hvað ekki.

Tjáningarfrelsið skiptir okkur öllu máli , við búum enn í lýðræðisríki þar sem fólk á að hafa leyfi til að hafa sínar skoðanir án þess að vera hundelt fyrir það.

Ég vil verja tjáningarfrelsið og réttarríkið sem við búum í. 

Styð heilshugar baráttu Ísraels.

Frjálslyndur Íhaldsmaður sem telur að öflugt atvinnulíf sé forsenda öflugs velferðakerfis.
Lækka skatta og álögur á fólk sem leiðir til aukins hagvaxtar og það gengur betur hjá öllum

 

Spurt er

Eigum við að draga til baka ESB-aðildarumsóknina
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Ísrael stend með
  • Halldór Jónsson
  • Samfylkingin 2006
  • Flagg Ukrainu
  • karen elísabet

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 85
  • Sl. viku: 406
  • Frá upphafi: 871931

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 282
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband