Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Sjálfstæðisflokkurinn verður að verða aftur Sjálfstæðisflokkurinn

" Hann seg­ir að stjórn­völd hafi í raun lokað fyr­ir nýliðun sér­greina­lækna. Ekki megi gleyma því að fallið hafi héraðsdóm­ur í tengsl­um við það og stjórn­völd tapað mál­inu."

Þó svo að formaður Sjálfstæðisflokksins sé í ríkisstjórn með VG þarf hann ekki að vera klappstýra Svandísar í ríkisvæðingarstefnu hennar á heilbrigðiskerfinu.

Sjálfstæðisflokkkurinn er flokkur einstaklingsins, gildi og hugsjónir flokksins eru um að minnka ríkisafskipti ekki auka þau. 

Ég enda þessa færslu eins og ég endaði þá síðustu Sjálfstæðisflokkurinn verður að fara að vakna.


mbl.is Á ábyrgð ríkisstjórnarinnar allrar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verk Svandísar Svavarsdóttir með samþykki Sjálfstæðisflokksins

Sú stefna VG að ríkisvæða alla heilbrigðisstarfsemi á íslandi er að verða mjög dýr fyrir okkar íslendinga.

Ljóst að Sjálfstæðisflokkurinn verður að taka þetta á sig að hafa leyft Svandísi Svavarsdóttir að láta þetta gerast.

Það er kominn tími til að Sjálfsæðiflokkurinn standi í lappirinr gegn þessari ríksvæðingarstefnu Svandísar Svavarsdóttir áður en þetta verður allt ónýtt.

Skim­anir fyr­ir leg­hálskrabba­meini eru í tætlum undir stjórn Svandísar Svavarsdóttir. 

Sjálfstæðisflokkurinn verður að fara að vakna.


mbl.is Domus Medica lokað um áramót
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hafa lýðræðislegt umboð frá flokksmönnum ólíkt Samfó og Viðreisn

SjálfstæðisflokkurinnÉg vil byrja á að óska Guðrúnu og Njáli Trausta og til hamingju með oddvitasætin.

Sjálfstæðisflokkurinn er stærsti flokkur landsins og sá lýðræðislegasti þar sem einstaklingurinn skiptir mestu máli.

Það hefur verið mikið skrifað um vandamál Samfó og Viðreisnar vegna þeirra leiðar að velja á lista en þar hafa frambjóðendur ekkert umboð frá flokksmönnum.

Sjálfstæðisflokkurinn
stétt með stétt


mbl.is Guðrún og Njáll leiða lista Sjálfstæðisflokks
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dilja Mist Einarsdóttir frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík um Borgarlínuna

"Hugleiðing um Borgarlínu sem verður einsdæmi í sögu samgönguframkvæmda í heiminum: að komið sé til móts við eftirspurn sem ekki er til staðar til að verða við kröfum þeirra sem enga þörf hafa fyrir þjónustuna.
🚲Staðan er nefnilega sú að þeir sem minnsta nota almenningssamgöngur, þeir sem minnsta þörf hafa fyrir að almenningssamgöngu, þeir sem eru þannig í sveit settir að komast flestra sinna ferða gangandi eða á hjóli, þeir eru helstu stuðningsmenn Borgarlínu."

Mjög góð greyning hjá Dilju Mist og er ég sammála henni.

Borgarlínan er fyrst og síðsst framtíðarskattur á Reykvíkinga og við því segi ég NEI.

mbl.is Vilja bensínstöðina burt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frambjóðandi Rúv Gegn Samherja ?

"Hann tel­ur vert að skoða stöðu Rík­is­út­varps­ins á aug­lýs­inga­markaði vand­lega en þó þannig að rekst­ur þess sé tryggðu"

Hversvegna eiga skattgreiðendur að halda úti ríkisfjölmðili, Rúv er Bleiki fílinn í stofunni, Rúv er vandmála frjálsra fjölmiðla.

Er ekki Viðreisn að breytast í einhvarja skrítna blöndu af Kvennaframboðinu, Bjartri Framtíð og Besta flokknum.

Ef rétt er hversvegna var stofnanda flokksins og fyrrv. formanni boðið neðsta sætið ?

Hversvegna fær varaformaður flokksins aðeins 2 sætið á lista flokksins í Reykjavík ?


mbl.is Heilög barátta að standa vörð um tjáningarfrelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þingmenn eiga aldrei að tala niður lýðræðið á íslandi

Með einhverja poppúlista - hugsun að leiðarljósi óska Píratar eftir aðkomu ÖSE að lýðræðislegum kosningum á íslandi.

Rökin eru í mínu huga mjög léttvæg ef ekki hlægileg.


mbl.is Vill að ÖSE hafi eftirlit með alþingiskosningum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grundvallarmur á Sjálfstæðisflokknum og Viðreisn þegar kemur að vali á framboðslista

Það er grundvallarmunur á Viðreisn og Sjálfstæðisflokknum þegar kemur að því hvernig frambjóðendur fá umboð sitt til að taka sæti á lista flokkana.

Almennir flokksmenn Sjálfstæðisflokksins mæta á kjörstað, fá úthlutaðan kjörseðil þar sem flokksmaðurinn ákveður sjálfur hverjir hann vill hafa á listanum og hefur þannig bein áhrif á listann.

Almennir flokksmenn Viðreisnar hafa enga aðkomu að því hvernig framboðslistinn er skipaður þannig frambjóðendur hafa ekkert umboð frá almennum flokksmönnum,

Svo var sorglegt hvernig forsysta flokksins fór með stofnanda flokksins sem vildi leiða lista en var boðið neðsta sætið.

Ástæðan fyrir höfnun er líklega sú að Viðreisn hefur breyst mjög mikið varðandi frjálslyndi og orðinn meiri forræðishyggjuflokkur.

Þessi ömurlega framkoma við stofnanda og fyrrrv. formann flokksins mun kosta flokkinn þegar talið verður upp úr kjörkössunum í September.

Sjálfstæðisflokkurinn
stétt með stétt


mbl.is Hanna Katrín og Þorbjörg Sigríður leiða listana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kristján Þór bendir Þórhildi Sunnu að hún hafi brotið siðareglur þingmanna

"að hún væri fyrsti og eini þingmaður­inn sem hef­ur fengið áminn­ingu fyr­ir að hafa brotið siðaregl­ur Alþing­is."

Kristján Þór Sjávarútvegsráðherra íslands bendir hér á það sem skipir að mínu mati mestu máli.

"Pírat­ar, Viðreisn og Sam­fylk­ing­in lögðu áherslu á að stjórn­völd væru ekki að gera nógu mikið til þess að koma í veg fyr­ir að svona starf­semi lýðist"

Þegar Samfylkingarflokkarnar koma með eitthvað svona nenni ég ekki að standa í einhvrju eða setja nokkra vigt á svona pólitískan leikaraskap.

Stundin og Karninn eru að mínu mati ekki trúverðugir fjölmiðlar og eins og ég hef áður sagt myndi ég aldrei styða eða styrkja þá.


mbl.is Hart tekist á um Samherjamálið á þingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Trúveðugleiki Fréttastofu Rúv ?

" höfðu talið að for­manns­kosn­ing­ar í Blaðamanna­fé­lag­inu sner­ust um að RÚV hygðist taka yfir fé­lagið og nota það gegn Sam­herja "

Er þetta ekki gríðarlega alvarlegt þar um ríkisfjölmiðil er að ræða ?

Almenningur borgar fyrir Rúv hvort sem það vill eða ekki.


Ég ætla eki að ræða um fjölmiðla eins og Kjarnann og Stundina og myndi aldrei að nokkurn hátt styðja rekstur þeirra.


mbl.is Samherji hafi reynt að hafa áhrif á formannskjör BÍ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Reykjavíkurflugvöllur verður í Vatnsmýrinni næstu 20 árin ?

551283_394060587387120_735076052_n[1]"að þar sem fyr­ir­hugað væri að flytja Reykja­vík­ur­flug­völl á ann­an stað" Pawel Bartoszek borgarfulltrúi Viðreisnar

Bara til að leiðrétta borgarfulltrúa Viðreisnar þá eru flugvellir ekki fluttir, þeim er lokað og nýjir byggðir.

Öll þessi umræða um borgarlínuna og loka Reykjavíkurflugvelli er ekki byggð á neinum raunvöruleika.


mbl.is Sjálfstæð ákvörðun borgarinnar að úthýsa Gæslunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Óðinn Þórisson

Höfundur

Óðinn Þórisson
Óðinn Þórisson

Það hefur aukist hér talsvert skoðanakúgun, hvað fólk má segja og hvað ekki. Ef fólk segir brandara fær það yfir sig holskeflu af gagnrýni frá þeim sem telja sig vera í þeirri stöðu að ákveða hvað má segja og hvað ekki. 

Skoðanakúgun hefst nákvmlega svona, fólk hættir að þora að tjá sig vegna hættu frá fólkinu sem telur sig eiga að ákveða hvað má segja og hvað ekki.

Tjáningarfrelsið skiptir okkur öllu máli , við búum enn í lýðræðisríki þar sem fólk á að hafa leyfi til að hafa sínar skoðanir án þess að vera hundelt fyrir það.

Ég vil verja tjáningarfrelsið og réttarríkið sem við búum í. 

Styð heilshugar baráttu Ísraels.

Frjálslyndur Íhaldsmaður sem telur að öflugt atvinnulíf sé forsenda öflugs velferðakerfis.
Lækka skatta og álögur á fólk sem leiðir til aukins hagvaxtar og það gengur betur hjá öllum

 

Spurt er

Eigum við að draga til baka ESB-aðildarumsóknina
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Charlie Kirk
  • George W. Bussch. um hið vonda
  • Úkraína
  • Donald Trump 47, forseti BNA mynd, BNA nóv 24
  • Donald Trump 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.9.): 14
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 831
  • Frá upphafi: 909140

Annað

  • Innlit í dag: 14
  • Innlit sl. viku: 684
  • Gestir í dag: 11
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband