28.6.2012 | 18:36
Sannfæring Ólafur er langt besti kosturinn
Ég hvet fólk til að mæta á kjörstsað og nýta þennan lýðræðislega rétt sinn og taka afstöðu samkvæmt sinni sannfæringu.
Þessi kosningabarátta hefur litast talsvert af pólitík eftir að Þóra Arnórsdóttir ákvað að bjóða sig fram þar hennar framboð virðist mjög svo tengjast Samfylkingunni.
En það sem ræður hver fær mitt atkvæði er fyst og fremst sá einstaklingur sem ég tel að sé hæfasti og best til þess fallinn að gegna embætti forsta íslands.
Tryggum ÓRG - endurkjör.
Að kjósa taktískt eða með hjartanu? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Óðinn Þórisson
Spurt er
Eigum við að draga til baka ESB-aðildarumsóknina
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 48
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 39
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Óðinn. Þér finnst Ólafur Ragnar besti kosturinn. Það er þín einka-skoðun, og ekki rétt að fullyrða svona, eins og fyrirsögn pistilsins segir.
Lýðræðislegar kosningar byggjast á því að upplýsa opinberlega, og af heiðarleika, alla kosti og alla galla þeirra sem eru í framboði, og senda svo ákvarðanavaldið beint til lýðsins (almennings).
Það er ábyrgðarlaust að fullyrða eitthvað um hver sé bestur, verstur eða réttur. Lýðræðið er of mikils virði til að fórna því fyrir ólýðræðislegan og tækifæris-sinnaðan einstaklings-áróður.
Ég ber of mikla virðingu fyrir lýðræðinu til að leyfa mér að koma með fullyrðingar. Ég hvorki get né vil bera ábyrgð á því að spilla hjartans sannfæringu kosningabærra einstaklinga, með einhverjum þröngsýnum fullyrðingum, sem eru einungis mínar takmörkuðu skoðanir.
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 28.6.2012 kl. 22:47
Anna Sigríður - tel mig ekki að vera að fullyrða eitt eða neitt enda færsla eingöngu byggð á minni skoðun á ÓRG.
Þetta er lýðræðislegar kosningar, færls mín byggð á heiðarleika en alfarið mitt val hvort ég fjalla um aðra einstaka frambjóðendur.
Það er ekki þröngsýni að telja ÓRG besta kostinn - það kallast raunsæi að mínu mati.
Óðinn Þórisson, 29.6.2012 kl. 13:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.