17.8.2013 | 12:09
Á Sjálfstæðisflokkurinn að sniðganga Rúv ?
Það er spurning hvort Sjálfstæðisflokkurinn hafi í raun eitthvað að gera að tala við Rúv sem margir vilja meina að sé fullvinstri - sinnað.
Það hefur komið skýrt hér fram hjá mér að það sé bara tveir valkostir í stöðunni varðandi Rúv selja það eða leggja stofnuina niður ef enginn vill kaupa.
Ef formaður flokksins eða aðrir fulltrúar flokksins vilja koma í viðtöl þar sem þarf koma stefnu flokksins skýrt til skila er til slík stöð.
Við höfum einnig 365 og Morgunblaðið.
Repúblikanar sniðganga CNN og NBC | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Óðinn Þórisson
Spurt er
Eigum við að draga til baka ESB-aðildarumsóknina
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 3
- Sl. sólarhring: 9
- Sl. viku: 95
- Frá upphafi: 888607
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 78
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Rúv á að nýta peninginn betur sem kemur inn.
Rúv á að sérhæfa sig í innlendum & erlendum heimildarmyndum sem gætu þroskað þjóðina inn í framtíðina=Rúv á að vera að leysa lífsgátuna hverja einustu mínutu.
Það geta aðrir sýnt ameríska glæpahneygð og innihaldslaust íþróttasprikl.
Jón Þórhallsson, 17.8.2013 kl. 12:46
Það eru bara breyttir tímar, síðan RÚV var stofnað og þá var aðalmálið þetta "öryggishlutverk", sem stofnunin hafði gagnvart landsmönnum. Í gegnum tíðina og þá á fyrri hluta síðustu aldar sinnti RÚV þessu öryggishlutverki sínu ágætlega og stundum af stkri prýði. En þegar fór að líða á skipti þetta minna og minna máli hjá stofnuninni og keyrði alveg um þverbak í Suðurlandsskjálftanum 17 júní árið 2000. En þá var RÚV með beina útsendingu frá annaðhvort HM í knattspyrnu eða EM (man ekki hvort var) og sáu ekki nokkra ástæðu til að rjúfa útsendingu og tilkinna um atburðina. Svo hefur það bæst við núna seinni árin að fréttastofa RÚV er orðin MJÖG pólitísk. ÉG GET EKKI MEÐ NOKKRU MÓTI SÉÐ AÐ ÞAÐ SÉ NEINU FÓRNAÐ ÞÓTT RÚV YRÐI EINKAVÆTT.................
Jóhann Elíasson, 17.8.2013 kl. 13:26
Jón - það er kannski hægt að réttæta rás 1 með eitthvað öryggissjónarmið að leiðarljósi - ekkert annað.
Netmiðlar hafa tekið við og spurning hvort t.d fréttatíminn í sjónvarpinu skipti einhverju máli lengur.
Rúv er á samkeppnismarkaði og ég vil ekki borga 18 þús á ári til Rúv.
Óðinn Þórisson, 17.8.2013 kl. 13:29
Jóhann - það er mjög gott að þú kemur inn á hvað rúv gerði þ.e gerði ekkert vegna fótboltaleiks þegar suðurlandsskjalftinn varð.
Það vilja margir meina að þar hafi rúv gjörsamlega brugðist þessu öryggishlutverki sínu en Stöð 2 stóð vaktina.
Það þarf ekki annað en minnast á t.d spegilinn og svokallaða " álitsgjafa " rúv.
Auðvitað á að einkavæða rúv og eins og ég segi ef enginn vill kaupa þá liggur fyrir hvað á að gera.
Óðinn Þórisson, 17.8.2013 kl. 13:35
Sæll Óðinn,
Þetta hlýtur að vera ekk-frétt ársins! Sú hugmynd að Repúblikanar myndu nota eða horfa á CNN eða NBC er hreinlega fjarlæg hér í Bandaríkjunum og ég held að það dytti ekki nokkrum einasta manni í hug að þetta væri einhvernvegin öðruvísi. Hér er flokksstjórn Repúblikanaflokksins að auglýsa að þeir hafi komist að því að 2 + 2 séu 4 og hafi samþykkt að framvegis muni Repúblikanar nota þessa formúlu.
Að bera saman RÚV og CNN/NBC er út í hött þar sem þessar stöðvar eru einkareknar. PBS er eina "ríkis-rekna" útvarps og sjónvarpsstöðin hér í Bandaríkjunum, en hún fær stóran hluta tekna sinna frá frjálsum framlögum. Það væri því nær að bera þessar stöðvar saman, en PBS sýnir ekki auglýsingar og því hefur hvorugur flokkurinn hér neinn áhuga á henni.
Kveðja
Arnór Baldvinsson, 17.8.2013 kl. 15:24
Arnór - verð að viðurkenna að þekki því miður lítið til PBS. Það þarf að gera breytingar á rekstri Rúv og það vita það allir sem vilja vita að Rúv verður ekki rekin áfram í núverandi mynd.
Takk fyrir málefnalegt og gott innleggg í umræðuna
Óðinn Þórisson, 18.8.2013 kl. 11:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.