Framsóknarflokkurinn skilur ekki alvöru málsins

Gylfi Arnbjörnsson forseti ASI hefur nánst lofað verkfalli hans fólks, læknar munu að öllum líkindum samþykkja verkfall og ekki er búið að semja við flugmenn.

Þetta eru mjög alvarlegir hlutir og það síðasta sem þjóðin þarf á að halda er stjórnarflokkur sem hefur verið að haga sér eins og Framsókn.

Það er ekki nóg að Sjálfstæðisflokkurinn sýni ábyrgð heldur er löngu kominn timi til að Framsókn geri það líka og hætti að bera á borð ruglhugmyndir eins og flytja Fisksistofu og að setja fyrirvara við fjárlagafrumvarpið.

 


mbl.is Verkfall flugmanna ekki ástæðan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ber Framsóknarflokkurinn ábyrgð á þessum lygum Icelandair? Er Icelandair ekki stjórnað af "ættgóðum-sjálfstæðismönnum" undir forystu Björgólfs Jóhanssonar formanns Samtaka atvinnulífsins og fyrrum stjórnarformanni LÍÚ?

Hvernig lýsir hin mikla ábyrgð Sjálfstæðisflokksins sér nákvæmlega varðandi komandi verkföll?  

Er fjárlagafrumvarpið  gersamlega garnrýnisfrír og heilagur pappír, er engin þörf á að ræða neitt í því plaggi? Er Bjarni Dýrlingur Ben óskeikull eða kannski nýr Mídas, verður allt að gulli sem hann snertir?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 5.10.2014 kl. 11:19

2 Smámynd: Óðinn Þórisson

Axel - ekki ætla ég að taka afstöðu til málsins varðandi hvor sé að segja satt og ekki.
Ég held að stjórnedur Icelandair myndi ekki samþykkja að félagði væri stjórnað af Sjálfstæðisflokknum enda er það ekki þannig.


Fjárlagafrumvarpið er stjórnarfrumvarp og það er í hæsta máta óeðlilegt að Framsókn geri fyrirvara við það.

Það má ekki verða þannig með þessa ríkisstjórn að hún snúist bara um að halda völdum eins og var með fyrrv. ríkisstjórn.

Nei Bjarni er ekki hafinn yfir gagnrýni.



 

Óðinn Þórisson, 5.10.2014 kl. 12:13

3 Smámynd: Kristinn Geir Briem

það er rétt eg skil ekki alvarleika málsins asi virðist vera á móti þessum tilögu framsókn setur fyrirvara. samhvæmt mínum bókum er það sjálstæðisflokkurin sem skilur ekki alvarleika málins

Kristinn Geir Briem, 5.10.2014 kl. 16:31

4 Smámynd: Óðinn Þórisson

Kristinn - hafa verður í huga að það er kosningar framundan hjá ASI og Gylfi er í framboði.

Framsókn er að spila einhvern leik með þennan matarskatt sem er flokknum ekki til framdráttar.

Óðinn Þórisson, 5.10.2014 kl. 17:14

5 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ég sagði ekki Óðinn, að Sjálfstæðisflokkurinn stjórnaði Icelandair, heldur að þar væru Sjálfstæðismenn í forsvari. Sérðu engan mun þar á?

En aftur;  Hvernig lýsir hin mikla ábyrgð Sjálfstæðisflokksins sér nákvæmlega varðandi kröfur um verulegar launahækkanir og komandi verkföll?

Hvernig er það, kemur Framsóknarflokknum ekkert við hvernig fjárlagafrumvarpið, sem er stærsta mál hverrar ríkisstjórnar, er úr garði gert? Á hann að sitja hjá og þegja, þó sitthvað komi þar á óvart? Gagnrýni Framsóknar bendir til skorts á samvinnu við gerð frumvarpsins.

Já Óðinn minn, ég veit að þú yrðir fyrsti maðurinn til að viðurkenna ókosti og galla Bjarna, þ.e.a.s. ef hann hefði einhverja.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 6.10.2014 kl. 06:33

6 Smámynd: Óðinn Þórisson

Axel - ætli innan stjórnar Icelandair finnst ekki fólk úr öllum flokkum nema kannski vg og er það bara gott fyrir fyrirtækið og einnig ef það er frjálslyndur Sjálfstæðismaður sem situr í forstjórastól.

Ábyrgð Sjálfstæðisflokksins felst í fjárlagafrumvarpinu, borga niður skuldir og láta stofnanir haldi fjárlög, t.d núna mun rúv líklega fara fram á 190 milljónir, þetta gengur ekki lengur.

Fjárlagafrumvarpið er stjórnarfrumvarp, að Framsókn setji fyrirvara er ekki hægt að líta neimum öðrum augum að um poppúlistapólitík sé að ræða.

Það er mikilvægt að geta gagnrýnt formann síns flokks og hef ég sagt að Bjarni verði að vera mun beittari þegar hann svarar þegar vinstri menn gera aðför að honum og flokknum.

Óðinn Þórisson, 6.10.2014 kl. 07:26

7 Smámynd: Kristinn Geir Briem

og sjálfstæðismenn eru ekki að leika sér með kjósendur sínar sem þeir lofuðu skattalækunum en juku skatteimtu um 40.ma.kr. aðhaldskrafa uppá 5ma.kr. sem þíðir að sjálfstðismenn séu að auka eiðslu ríkisins um 35ma.kr. hvort framsókn sé að spila einhvern leik veit ég ekki en pólutíkin virðist vera stórt leikhús

Kristinn Geir Briem, 6.10.2014 kl. 07:36

8 Smámynd: Óðinn Þórisson

Kristinn - það tekur tíma að breyta yfir 100 skattabreytingum fyrrv. ríkisstjórnar sem voru allar á þann veg, finna nýja skatta og hækka skatta.

Vörugjöld verða afnumin um árámót, það hefði fyrrv . ríkisstjórn aldrei gert. 

Óðinn Þórisson, 6.10.2014 kl. 17:21

9 Smámynd: Kristinn Geir Briem

100 skattabreiyíngar er nokkuð teigjanlet að mér skilst. þrssar skattabreitíngar um áramótin eru nokkuð skrítið reikníngsdæmi og útkoman ekki skattalækun því þeir hækka vaskin á lægra á móti svo það mun enda í lítilli eða eingri skattalækkun en auðnelgar eftirlit sem er gott en skattalækun er það varla hvað sú seinasta mindi hafa gert veit ég ekki hvað ef hitler hefði ekki hefði verið drepin í bjóruppresninni hefði þá aldrei orðið stríð

Kristinn Geir Briem, 6.10.2014 kl. 18:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Óðinn Þórisson

Höfundur

Óðinn Þórisson
Óðinn Þórisson

Það hefur aukist hér talsvert skoðanakúgun, hvað fólk má segja og hvað ekki. Ef fólk segir brandara fær það yfir sig holskeflu af gagnrýni frá þeim sem telja sig vera í þeirri stöðu að ákveða hvað má segja og hvað ekki. 

Skoðanakúgun hefst nákvmlega svona, fólk hættir að þora að tjá sig vegna hættu frá fólkinu sem telur sig eiga að ákveða hvað má segja og hvað ekki.

Tjáningarfrelsið skiptir okkur öllu máli , við búum enn í lýðræðisríki þar sem fólk á að hafa leyfi til að hafa sínar skoðanir án þess að vera hundelt fyrir það.

Ég vil verja tjáningarfrelsið og réttarríkið sem við búum í. 

Styð heilshugar baráttu Ísraels.

Frjálslyndur Íhaldsmaður sem telur að öflugt atvinnulíf sé forsenda öflugs velferðakerfis.
Lækka skatta og álögur á fólk sem leiðir til aukins hagvaxtar og það gengur betur hjá öllum

 

Spurt er

Eigum við að draga til baka ESB-aðildarumsóknina
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Ísrael stend með
  • Halldór Jónsson
  • Samfylkingin 2006
  • Flagg Ukrainu
  • karen elísabet

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 18
  • Sl. sólarhring: 57
  • Sl. viku: 820
  • Frá upphafi: 871182

Annað

  • Innlit í dag: 16
  • Innlit sl. viku: 579
  • Gestir í dag: 14
  • IP-tölur í dag: 14

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband