Skipulagsvaldið tekið af Reykjavíkurborg

Það er komin upp grafalvarleg staða, rauði meirihlutinn í reykjavík ætlar sér með góðu eða illu að loka Reykjavíkurflugvelli.

69 þús skrifuðu undir að flugvöllurinn yrði áfram í Vatnsmýrinni, Jón Gnarr og Dagur B. virtust líta á undirskriftirnar sem salernispappír og núverandi meirihluti virðist horfa sömu augum á þær.

Það er alveg klárt mál að það þarf að taka skipulagsvaldið á vatnsmýrnarsvæðinu af Reykjavíkurborg.

Og enn einu sinni minni ég á að Reykjavíkurflugvöllur er öryggismál, samgöngumál og atvinnumál.


mbl.is Þjóðin ákveði framtíð flugvallarins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: rhansen

Algjörlega sammála !

rhansen, 5.11.2014 kl. 16:14

2 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Já segðu Óðinn, þetta eru óskyljanleg vinnibrögð hjá Borgarstjóra. Af hverju vilji meirihlutans er hunsaður svona eða öryggismálum, samgöngu og atvinnumálum stefnt í óöryggi er ekki nokkur heilvita-maður tel ég að skilja...

Það er nauðsynlegt að taka skipulagsvaldið af Borgarstjóra er að verða flestum ljóst...

Skrýtin staða uppi segi ég bara...

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 5.11.2014 kl. 17:17

3 Smámynd: Hjörtur Herbertsson

Algjörlega sammála ykkur hér á undan. Taka skipulagsvaldið af Borgarstjóra hvað Vatnsmýrina varðar, og það fyrr en seinna.

Hjörtur Herbertsson, 5.11.2014 kl. 17:27

4 identicon

Þeir geta reynt þetta en það tefur málið að hámarki um þann tíma sem það tekur Hæstarétt að dæma lögin ógild (stjórnarskrár varin eignarréttur og þess háttar)

Ríkið getur gert eignarnám á hlut RVK þarna en það er spurning hvort það hefur efni á því.

Elfar Aðalsteinn Ingvarsson (IP-tala skráð) 5.11.2014 kl. 17:38

5 Smámynd: Frosti Heimisson

Það getur nú ekki verið dýrt ef miðað er við verðmæti síðustu lóða sem hafa verið gefnar.  0 kr. á fm. er ókeypis og skiptir þá engu með hverju er margfaldað.

Frosti Heimisson, 5.11.2014 kl. 17:50

6 Smámynd: Óðinn Þórisson

rhansen - samkvæmt skoðanakönnun 7 apríl 2013  styðja 80 % þjóðarinnar að flugvöllurinn verði áfram í vatnsmýrinni.

Óðinn Þórisson, 5.11.2014 kl. 18:03

7 Smámynd: Óðinn Þórisson

Ingibjörg - þessi vinnubrögð er fullkomin vanvirðing fyrir lýðræðinu en eitthvað sem við eigum að fara að venjast þegar kemur að Samfylkingunni, icesave og esb.

Það er ekki annað hægt en að túlka þetta sem hreint hatur þessa fólks í garð flugvallarins.

Rétt það er skrýtin staða komin upp þegar 69 þús undirskriftir skipta engu máli og við völd í reykjavík er fólk sem hefur engan skyling á hlutverki flugvallarins.

Óðinn Þórisson, 5.11.2014 kl. 18:10

8 Smámynd: Óðinn Þórisson

Hjörtur - og það verður að gerast mjög hratt ef ekki á illa að fara fyrir flugvellinum.

Óðinn Þórisson, 5.11.2014 kl. 18:11

9 Smámynd: Óðinn Þórisson

Elfar - alþingi setur lögin í landinu ekki dómarar.

Ef þau lög sem eru sett á alþingi rétt skrifuð þá hefur hefur reykjavíkurborg engin tæki í höndunum til að bregðast við því að skipulagsvaldið verði tekið af þeim.

Óðinn Þórisson, 5.11.2014 kl. 18:13

10 Smámynd: Óðinn Þórisson

Frosti - er þetta ekki bara lóðabrask milli reykjavíkurborgar og valsmanna ?


Það er sorglegt ef lítill þröngsýnn öfgahópur fær að slátra flugvellinum og um leið strika út stóran hluta af flugsögunni.

Óðinn Þórisson, 5.11.2014 kl. 18:17

11 identicon

Dómarar geta hinsvegar dæmt lög sem stríða á móti stjórnarskránni ógild, eins og það að hrófla við eignarrétti eða það að lög séu of sértæk.

Elfar Aðalsteinn Ingvarsson (IP-tala skráð) 5.11.2014 kl. 18:50

12 Smámynd: Óðinn Þórisson

Elfar - málið snýst um að það að lítill þröngsýn hópur ætlar að loka flugvellinum og þar sem hann er hluti af þjóðaröryggi þá tel ég óliklegt að dómarar dæmi lög sem koma í veg fyrir það ógild.


Það einfaldlega verður að stoppa þetta og það er hver að verða síðastur till þess.

Óðinn Þórisson, 5.11.2014 kl. 19:36

13 Smámynd: Jónatan Karlsson

Sæll Óðinn og félagar

Það jaðrar sannarlega við sturlun að ætla að eyðileggja og loka Reykjavíkurflugvelli vegna lóðabrasks, en því miður nokkuð dæmigert fyrir ógnarvöld nokkra áhrifahópa sem virðast eiga sín eigin leiguþý og handbendi í öllu stjórnkerfinu hér á skerinu, rétt eins og blasir við hvert sem litið er.

Jónatan Karlsson, 5.11.2014 kl. 21:03

14 Smámynd: Óðinn Þórisson

Jónatan - aðeins ógnarstjórn myndi detta það í hug að fara gegn klárlega meirihluta þjóðarinnar og loka flugvellinum.
Þetta sýnir líka algjört skilningsleys þessa fólks á annarsvegar á hlutverki flugvallarins og hinsvegar hlutverki reykjavíkur sem höfuðborgar.
Svo toppar þetta fólk delluna og aflegaleiðinguna með þvi að tala um að færa flugvöllinn þegar það ætlar í raun að loka honum og um leið skerða öryggi allra ef t.d kæmi til náttúruhamfara hér á  stór reykjavíkursvæðinu.

Óðinn Þórisson, 5.11.2014 kl. 21:29

15 Smámynd: Brynjólfur Þorvarðsson

Skrítið hvað sumar undirskriftasafnanir eru "heilagar" en aðrar ekki. Hvernig var með þjóðaratkvæði um stjórnarskrá, það virðist hafa verið leikur einn að hundsa vilja meirihluta landsmanna þar. Undirskriftasöfnun um flugvöllinn, þar sem 

Áðurnefnd skoðanakönnun, þar sem 69 þúsund skrifuðu undir að flugvöllurinn yrði áfram í Vatnsmýrinni, hefur varla verið bundin við reykvíska kjósendur, sem eru um 87 þúsund. Hafi listinn verið opinn öllum landsmönnum þá er auðvitað ekki um neinn meirihlutavilja að ræða.

Annars verður gaman að sjá orðalagið á frumvarpinu, því hugtakið "skipulagsvald" er ekki til í skipulagslögum né neinum öðrum lagabálkum, enda óljóst hvort um slíkt vald sé að ræða hjá sveitarfélögum (lögin virðast frekar gera ráð fyrir skipulagsskyldu en skipulagsvaldi, en menn hafa rökstutt að í reynd veiti lögin sveitarfélögum vald til skipulagningar).

Samkvæmt lögum fer sveitarstjórnarstigið með skipulagsmál, og hafa auðvitað rétt til að skipuleggja að vild eigin eignarlönd. Hið opinbera getur tekið land eignarnámi, og eflaust getur Alþingi sett sérlög um ákveðin mikilvæg landsvæði. Hins vegar stórefast ég um að boðað frumvarp nái meirihlutafylgi á Alþingi.

Brynjólfur Þorvarðsson, 6.11.2014 kl. 06:16

16 Smámynd: Óðinn Þórisson

Brynjólfur - 20 okt kosningin gekk hreinlega ekki upp þar sem spurningar voru ekki nógu vel orðaðar.

Aldrei hafa fleiri skrifað undir en skrifiuðu undir stuðning við flugvöllinn, og held að það séu fáir á landsbyggðinni sem vilja að reykjavíkurflugvöllur verði tekin af sér.

Það er talsvert síðan Höskuldur fór að tala um þetta, báðir borgarfulltrúar flugvallarvina eru lögfræingar, held að enginn í rauða meirihlutanaum hafi þá menntun þannig að það er örugglega búið að skirfa þessi lög.

Hverjir verða á móti þessu, jú Samfylkinign, Björt Framtíð og hluti VG, sé ekki SJS og ÖJ greiða atkvæði á móti þessu, svo vilaustir eru þeir ekki.

Óðinn Þórisson, 6.11.2014 kl. 07:14

17 Smámynd: Brynjólfur Þorvarðsson

Óðinn, það er nú oft þannig að manni finnst spurningar mættu vera orðaðar öðruvísi.

Svo virðist sem talsverður meirihluti landsmanna sé fylgjandi því að flugvöllurinn sé áfram í Vatnsmýrinni samkvæmt skoðanakönnunum, líka meðal Reykvíkinga. Spurning hvort niðurstaðan væri sú sama ef spurt væri um valkosti: "Hvort viltu frekar að flugvöllurinn sé áfram í Vatnsmýri eða að lögð sé háhraðalest til Keflavíkur" osfrv., ef halda ætti þjóðaratkvæðagreiðslu um flugvöllinn finnst mér að það ætti einmitt að hafa spurningarnar þannig.

Brynjólfur Þorvarðsson, 6.11.2014 kl. 13:38

18 Smámynd: Skeggi Skaftason

Eins og sakir standa styð ég að flugvöllurinn verði áfram. En ég held að það megi vel leggja niður þessa þriðju braut sem er aldrei notuð. 

Skeggi Skaftason, 6.11.2014 kl. 15:38

19 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Jafnvel Keflavíkurflugvöllur er að springa - að óbreyttu er ekkert pláss þar fyrir innanlandsflugið.

Kolbrún Hilmars, 6.11.2014 kl. 16:37

20 Smámynd: Óðinn Þórisson

Brynjólfur - það hafa verið nefndar tölur varðandi lest til kef og miðað við að LSH er nánast að fara á hliðina þá eru engir peningar til þess að fara í þessa lestarframkvæmd.
Eru menn tilbúnir til að eyðileggja öskjuhliðina með einhverjum göngum þar í gegn, líka rétt að minna á fossvogskrijugarð.

Óðinn Þórisson, 6.11.2014 kl. 17:24

21 Smámynd: Óðinn Þórisson

Skeggi - það var samkomulag gert um að ekkert yrði gert á hlíðarendasvæðinu þar til Rögnunefndin myndi ljúka störfum.

Svo er vel hægt að byggja í vatnsmýrinn en það á ekki að vera á kostnað þessar 3 atriða sem ég nefndi í færslunni.

Óðinn Þórisson, 6.11.2014 kl. 17:30

22 Smámynd: Óðinn Þórisson

Kolbrún - rétt Kef - getur ekki tekið við innanlandsfluginu.

Óðinn Þórisson, 6.11.2014 kl. 17:33

23 Smámynd: Pétur Kristinsson

Þessi litli þröngsýni hópur sem þú talar um nýtur meirihluta stuðnings borgarinnar þannig að það er fáránlegt að tala um hlutina á þennan hátt.

Svo talar þú um ógnarstjórn sem fer gegn meirihluta þjóðarinnar. Er þá ekki ógnarstjórn á alþingi núna fyrst hún nýtur aðeins 30% stuðnings? Þjóðaratkvæði með/móti EB var líka mál sem mikill meirihluti vildi sjá fara í þjóðaratkvæðagreiðslu. Ógnarstjórnin þín sinnti því kalli ekki.

Pétur Kristinsson, 6.11.2014 kl. 21:01

24 Smámynd: Óðinn Þórisson

Pétur - það sem er fáránlegt það er það sé einu sinni umræða um það að loka reykjavíkurflugvelli.

Því miður er það svo að sá 4 flokka bræðingur sem fer með stjórn borgarinnar skilur hvorki hlutverk reykjavíkur sem höfuðborgar eða hlutverk flugvallarins fyri hagsmuni allra landsmanna.

Hvorki HBK né RR styðja þessa töllögu sem ítiir enn meira undir þá skoðun mína að sósíal - demókratar eru búinir að ná of miklum völdum innan flokksins og það þarf að fella HBK á næsta landsfundi.

Óðinn Þórisson, 6.11.2014 kl. 21:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Óðinn Þórisson

Höfundur

Óðinn Þórisson
Óðinn Þórisson

Það hefur aukist hér talsvert skoðanakúgun, hvað fólk má segja og hvað ekki. Ef fólk segir brandara fær það yfir sig holskeflu af gagnrýni frá þeim sem telja sig vera í þeirri stöðu að ákveða hvað má segja og hvað ekki. 

Skoðanakúgun hefst nákvmlega svona, fólk hættir að þora að tjá sig vegna hættu frá fólkinu sem telur sig eiga að ákveða hvað má segja og hvað ekki.

Tjáningarfrelsið skiptir okkur öllu máli , við búum enn í lýðræðisríki þar sem fólk á að hafa leyfi til að hafa sínar skoðanir án þess að vera hundelt fyrir það.

Ég vil verja tjáningarfrelsið og réttarríkið sem við búum í. 

Styð heilshugar baráttu Ísraels.

Frjálslyndur Íhaldsmaður sem telur að öflugt atvinnulíf sé forsenda öflugs velferðakerfis.
Lækka skatta og álögur á fólk sem leiðir til aukins hagvaxtar og það gengur betur hjá öllum

 

Spurt er

Eigum við að draga til baka ESB-aðildarumsóknina
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Ísrael stend með
  • Halldór Jónsson
  • Samfylkingin 2006
  • Flagg Ukrainu
  • karen elísabet

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 20
  • Sl. viku: 300
  • Frá upphafi: 871795

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 216
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband