Vinstri - flokkarnir vilja einfaldlega ekki virkja

"Jón Gunn­ars­son, formaður at­vinnu­vega­nefnd­ar, seg­ir Katrínu Júlí­us­dótt­ur, fv. iðnaðarráðherra, ekki skilja ferli ramm­a­áætl­un­ar"

Vinstri - flokkarnir vilja einfaldlega ekkert virkja, alveg sama hvort viðkomandi kostur er góður eða ekki.

Ég blæs á allt tal Samfylkingarinnar um náttúru og umhverfisvernd sem byggist fyrst og síðast á því að ekkert verði gert í virkjunarmálum.


mbl.is Sagði Katrínu ekki skilja ferlið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar

Það er vegna þess að vinstri flokkarnir hugsa aðeins lengra en út fyrir rassgati á sjálfum sér og núlifandi kynslóðum.  Það er þegar búið að virkja alltof mikið á Íslandi.  Þjóðin er beinlínis að borga með Kárahnjúkavirkjun og álverinu fyrir austan, rafmagnið er nánast gefins í mengandi stóriðju á kostnað þjóðarinnar.  Þau "verkefni" sem Jón Gunnarsson talar um eru einmitt meiri mengandi stóriðja með láglaunastörfum.  Allar vestrænar þjóðir eru að reyna að koma svona iðnaði í burtu enda tíðkanst hann aðallega í þriðja heiminum.

Óskar, 25.1.2015 kl. 12:54

2 Smámynd: Óðinn Þórisson

"Það er vegna þess að vinstri flokkarnir hugsa aðeins lengra en út fyrir rassgati á sjálfum sér og núlifandi kynslóðum"
Þetta er nákvæmlega það sem ég var kalla eftir að forystumenn vinstri - flokkana segji að þeir séu á móti vikjunum og hætti að fela sig á bak við þeirra eigin rammaáætlun.
Um leið og minnst er á að skoða nokkra kosti þá farið þið gjörsamlega á taugum enda er það heilagt í ykkar huga að virkja ekki.

Óðinn Þórisson, 25.1.2015 kl. 13:12

3 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Jarðýtustefna Sjálfstæðisflokksins í virkjunarmálum er á enda runninn.  Það er búið að virkja alla auðveldu kostina, og þessi 40% af virkjunarhæfu afli í landinu þarf að virkja af skynsemi og gá að sér að eyðileggja ekki landsvæði sem við erum að selja ferðamönnum. Það er ekki hægt að eiga kökuna og éta þó sjálfstæðismenn haldi það.

Jón Ingi Cæsarsson, 25.1.2015 kl. 20:24

4 Smámynd: Óðinn Þórisson

Jón Ingi - vinnubrögð fyrrv. ríkisstjórnar um rammaætlun hefur verið harðlega gagnrýnd af stjórnarþingmönnum og m.a vísað til bókar Össurar " Ár drekans "
Bjarni Ben. fór í ræðustól alþingis í síðustu viku og enn og aftur vakti athylgi á þessum vinnubrögðum.
Rammaáætun átti að vara sátt um nýtingu og vernd, fyrrv. ríkisstjórn eyðlagði það.
Vil enn og aftur minna á afhorð fyrrv. ríkisstjónarflokka 27 apríl 2013 og nú er nýr meirihluti á alþingi sem vill nýta auðlyndir landsins og koma okkur út þeirri stöðnun sem var hér á síðasta kjörtímabili.

Óðinn Þórisson, 25.1.2015 kl. 20:58

5 Smámynd: Pétur Kristinsson

Það er alltaf jafnforvitnilegt að lesa pistla sjálfstæðismanna þar sem þeir reyna að réttlæta ruglið og bullið í stuttbuxnastrákunum. Á síðasta ári vorum við við það að ná 1000.000 ferðamanninum til landsins og þeir koma hingað flestir vegna þess að við eigum staði eins og Dettifoss og Gullfoss. Þessi grein er að skapa okkur mun meiri tekjur en stóriðja og virkjanir vegna þess hversu fá störf stóriðjan skapar og hversu dýr stofnkostnaður virkjana er miðað við líftíma. Túrisminn er að skapa okkur tekjur án þess að við þurfum að eyðileggja landið okkar með uppistöðulónum og skemmdum á helstu náttúruundrum þess.

Vegna þess að þið sjallar skiljið ekkert annað en skjótfenginn gróða er rétt að nefna líka að auðvelt er að gera aðgang þannig að þessum stöðum úr garði að menn borgi eitt gjald fyrir að skoða Gullfoss, annað fyrir Dettifoss og þannig skapast gróði fyrir ríkissjóð sem færi á fáum árum langt umfram þann gróða sem skapast vegna stóriðju sem fær sitt rafmagn nánast gefins. Meira að segja grænmetisbændur hérna þurfa að borga mun meira fyrir sitt rafmagn heldur en erlendir eigendur álvera. Hvaða rugl er það?

Ég er ekki bundinn neinum flokk en að less svona kómíska bloggpistla finnst mér skemmtilegt oftast nær en þú gekkst fram af mér í að verja svona augljósa vitleysu í þetta skiptið.

Pétur Kristinsson, 25.1.2015 kl. 21:17

6 Smámynd: Óðinn Þórisson

Pétur - það skilar okkur engu í þessari umræðu um að tala eins og þú gerir " stuttbuxnastrákar " og " sjallar "
Vinstri - menn hafa reynt að eigna sér náttúrvend en þá eru þeir í raun að tala um að ekki megi gera eitt eða neitt í virkjunarmálum.
Ferðamannaiðnaðurinn er vissulega vaxandi atvinnugrein en það sem menn verða að gera er að hætta að ata atvinnugreinar gegn hvorri annarri eins og t.d er gert með hvalveiði og hvalaskoðun.
Að setja að virkja sé sama og eyðleggja einhverjar náttúruperlur er bara bull enda er enginn að tala um að gera það.
Atvinnustefna Sjáflstæðisflokksins er skýr og hún er að nýta auðlindir landsins og er heiðursmaðurinn Jón Gunnarsson að framfylgja þeirri stefnu

Óðinn Þórisson, 25.1.2015 kl. 21:43

7 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Man þá tíð þegar við virkjuðum Blöndu og ætluðum orkuna í Álver t.d. á Keilisnesi sem var svo hætt við. Iðnaðarráðuneyti sendi út bæklinga til allra risa fyrirtækja í orkufrekum iðnaði og bauð hér ódýra orku, þægar starfsmenn sem þyrftu ekki mjög hátt kaup. Er þetta ekki svona enn. Skilst að það seú um 3000 starfsmenn hjá orkuferkum stóriðjum sem fái svona rétt rúmlega meðalkaup en stóriðjan notar um 85% af allri raforku okkar en kemur sér undan að borga tekjuskatt bæði með fjárfestingasamningm, sem og að láta móðurfélög lána dótturfélögum hér á háum vöxtum, hirðir arðin og lánar svo enn frekar. Síðan ofan á þetta þá borga þau um 30% af orkuverði sem þau borga í örðum löndum og því rétt standa virkjanirnar undir sér. Hef ekki heyrt að við séum að fá háar greiðslur frá Landsvirkjun í arðgreiðslur. 

Það er ekkert að því að virkja það sem sátt er um en það er ekkert vit í að öll sú orka sé seld á lágmarksverði.

Magnús Helgi Björgvinsson, 25.1.2015 kl. 23:39

8 Smámynd: Pétur Kristinsson

Að draga stórlega úr rennsli í Dettifossi er að sjálfsögðu að eyðileggja náttúruperlur. Að setja upp jarðvarmavirkjun í Hveravöllum sömuleiðis. Það er enginn að ata saman atvinnugreinum nema þið sjallar. Haldið þið virkilega að þeir sem að lifa af ferðamannaiðnaðinum muni standi þegjandi hjá meðan að þið stundið þessi skemmdarverk? Ástæðan fyrir því að ég kalla ykkur sjalla en ekki sjálfstæðismenn er einfaldlega sú að ég get ekki notað orðið "sjálfstæði" í nafni flokksins ykkar meðan þið vinnið svona að því að eyðileggja það sem Ísland stendur fyrir. Ef þið ætlið að eyðileggja helstu náttúrperlur landsins fyrir erlend stórfyrirtæki eruð þið ekkert betri en þeir sem vilja setja sjálfstæði okkar undir þá i Brussell.

Þú kannski gerir þér ekki grein fyrir því að vísindamenn um allan heim eru að þrúa hagvkæmari leiðir til orkunýtingar úr sólarorku, vindorku og menn hafa loksins náð að framleiða meiri orku en þarf til þess að halda hitanum í skefjum hvað kjarnasamruna varðar. Eftir kannski 15-20 ár verða þessi rándýru orkuver okkar úrelt en við sitjum eftir með óafturkallanlegan skaða af ákvörðunum misvitra stjórnmálamanna.

Ég kalla svona einfeldningslega atvinnustefnu ekki skýra, langt því frá. Lestu líka það sem Magnús segir.

Pétur Kristinsson, 26.1.2015 kl. 00:32

9 Smámynd: Óðinn Þórisson

Magnús Helgi - ef við skoðun álverið á reyðarfirði og kárahnjúka er alveg ljóst að það bjargaði austfjörðum, eins og einn austfirðingur sagði þegar þið voruð í stjórn " hhvað höfum við gert ykkur "
Þessi síðasta setning hjá þér er bara gull, eða þannig, enn og aftur kem ég að vinnubrögðum fyrrv. rikisstjórnar sem eyðilagði sáttina um nýtingu og vernd með því að fara með sína pólitku putta í rammaáætlun og eyðilöggðu því alla sáttina.

Óðinn Þórisson, 26.1.2015 kl. 07:20

10 Smámynd: Óðinn Þórisson

Pétur - þar sem þú nefnir Samfylingari"náttúru"verndarmanninn Magnús Helga þá virði ég hans skoðanir en er langt því frá að vera honum sammála í einu eða neinu.
En heldur þú áfram með að tala um að ef það verði virkjað þá sé það sama og eyðilegging, þetta get ég ekki skrifað undir þar sem að nýta auðlindir landsins er ekki verðið að eyðileggja neitt það er verið að nýta til þess að fólk hafi það betra.

En aðalatriðð er þetta það er mikilvægt að vinstri - flokkarnrnir komi skýrt fram og heiðarlega og viðukrenni að þeir vilja einfaldlega ekki virkja sama hvað kosturinn er góður.

Óðinn Þórisson, 26.1.2015 kl. 07:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Óðinn Þórisson

Höfundur

Óðinn Þórisson
Óðinn Þórisson

Það hefur aukist hér talsvert skoðanakúgun, hvað fólk má segja og hvað ekki. Ef fólk segir brandara fær það yfir sig holskeflu af gagnrýni frá þeim sem telja sig vera í þeirri stöðu að ákveða hvað má segja og hvað ekki. 

Skoðanakúgun hefst nákvmlega svona, fólk hættir að þora að tjá sig vegna hættu frá fólkinu sem telur sig eiga að ákveða hvað má segja og hvað ekki.

Tjáningarfrelsið skiptir okkur öllu máli , við búum enn í lýðræðisríki þar sem fólk á að hafa leyfi til að hafa sínar skoðanir án þess að vera hundelt fyrir það.

Ég vil verja tjáningarfrelsið og réttarríkið sem við búum í. 

Styð heilshugar baráttu Ísraels.

Frjálslyndur Íhaldsmaður sem telur að öflugt atvinnulíf sé forsenda öflugs velferðakerfis.
Lækka skatta og álögur á fólk sem leiðir til aukins hagvaxtar og það gengur betur hjá öllum

 

Spurt er

Eigum við að draga til baka ESB-aðildarumsóknina
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Ísrael stend með
  • Halldór Jónsson
  • Samfylkingin 2006
  • Flagg Ukrainu
  • karen elísabet

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 416
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 301
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband